Fréttablaðið - 29.08.2019, Side 30
Fyrir framan skelli-
hlæjandi hóp af
fólki man ég af hverju ég
vinn við þetta.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Sóli Hólm hefur tekið að sér veislustjórn til margra ára. Núna er hann meira
farinn að troða upp sem skemmtikraftur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Sóli var spurður hvað góður veislustjóri þurfi að hafa til að bera og var ekkert hik á
svari: „Fyrir minn smekk þá þarf
veislustjóri að vera skemmtilegur
en líka skipulagður. Ég er samt
tilbúinn að fyrirgefa óskipulag ef
viðkomandi er mjög fyndinn.“
Hann segir að í fyrstu hafi verið
erfitt að koma fram en nú sé þetta
auðvelt enda spili reynslan þar
inn í. „Ég hef alltaf átt auðvelt
með þetta en var auðvitað stress-
aðri yfir að veislustjórnin myndi
klikka fyrir 10 árum. Svo spilar
auðvitað margt inn í eins og andi í
fyrirtækinu almennt og auðvitað
ölvunarstig,“ upplýsir hann.
Sóli segist geta mælt út stemm-
inguna í salnum mjög fljótt.
„Maður finnur allavega ef hún er
sérstaklega góð. Ef hún er hægari
þá þarf að taka upp einhver leyni-
vopn. Maður þarf að lesa salinn
og alls ekki reyna að sjokkera fólk
með því að vera grófur. Það er
reyndar ódýrasta leiðin. Veislu-
stjórinn þarf að varast taktleysi.
Misjafnt er hversu miklar kröfur
fólk gerir til veislustjóra en fólk
vill samt alveg fá eitthvað fyrir
peninginn,“ segir hann. „Ég hef
þó ekki upplifað ósanngjarnar
kröfur,“ bætir hann við.
Sóli segir að veislustjórinn eigi
miklu frekar að vera fyndinn og
skemmtilegur en einhver svaka-
legur brandarakarl. „En það er
auðvitað smekksatriði,“ segir
hann. Sóli hefur ekki lent í veislu
þar sem salurinn er ekki móttæki-
legur fyrir veislustjóranum. „Þótt
stemmingin sé auðvitað ekki alltaf
frábær nær maður að trekkja fólk
í gang með réttu brögðunum. Ég
er svo lánsamur að hafa gítarinn
og sönginn að grípa í ef fólk er til
dæmis orðið of drukkið fyrir talað
mál.“
Þegar hann er spurður hvort
hann hafi upplifað vandræðalegt
augnablik, svarar hann: „Senni-
lega var það þegar ég var að byrja
að veislustýra og var skammaður
af manni fyrir að láta ekki röðina
ganga nógu hratt í ístertuna sem
var búið að kaupa. Hann var sér-
staklega ánægður með tertuna því
hún var með sérpantaða áletrun.
Þessi sérstaka áletrun var Árshátíð
2010!“
Sóla finnst langskemmtilegast
að veislustýra troðfullum félags-
heimilum úti á landi en segist
alltaf hafa gaman af þessu starfi.
„Já, ég geri það. Ég viðurkenni að
stundum nenni ég ekki af stað
en þegar ég stend á sviði seinna
um kvöldið fyrir framan skelli-
hlæjandi hóp af fólki þá man ég af
hverju ég vinn við þetta.“
Finnur fljótt hvort
stemmingin sé góð
Sólmundur Hólm, eða Sóli eins og hann er betur þekktur,
hefur lengi tekið að sér að skemmta fólki í veislum, bæði
sem veislustjóri og skemmtikraftur. Núna hefur hann
dregið úr veislustjórn en skemmtunin heldur áfram.
Silfurbrúðkaup, stórafmæli, skírn eða stúdentsveisla?
Harpa býður upp á sali, herbergi og rými af öllum
stærðum og gerðum – fyrir öll tilefni.
Nánar á harpa.is/veislur
Fagnaðu
áfanganum
í Hörpu
4 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RRÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-9
B
3
4
2
3
A
9
-9
9
F
8
2
3
A
9
-9
8
B
C
2
3
A
9
-9
7
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K