Fréttablaðið - 29.08.2019, Page 33
Eldey er nýr
og glæsilegur
fundarsalur í
Bláa Lóninu.
Hann rúmar allt
að 18 manns
við stórt og gott
borð og er bú-
inn fullkomnum
tækjakosti.
Á veitingastöðum Bláa Lónsins, Lava og Moss, starfa framúrskarandi
meistarakokkar sem gleðja bæði munn og maga fundargesta.
Það er notalegt að velja sér vínglas í vínkjallaranum á Moss eftir fundi.
Séð yfir Lava Restaurant þar sem útsýni út á lónið er óviðjafnanlegt.Iðjagrænn mosi, kolsvart hraun og blátt lónið gleður augu gesta á Moss.
Stóri salurinn í Bláa Lóninu tekur allt að 80 manns. Frá honum er fagurt út-
sýni og er salurinn útbúinn tæknibúnaði sem mætir öllum nútíma kröfum.
Bláa Lónið er kynngimagnaður staður þar sem hægt er að halda fundi og viðburði í glæsilegum sölum, borða dýrindis mat og láta líða úr sér í hita lónsins eftir annasaman fundardag.
„Hér er allt sem þarf fyrir árang-
ursríkan fund og góða samveru
og starfsfólk Bláa Lónsins er alltaf
innan handar, ef með þarf.“
Sælkeraupplifun í
einstöku umhverfi
Meðan á fundarhöldum stendur í
Bláa Lóninu eru í boði fjölbreyttar
veitingar sem eru framreiddar af
matreiðslumeisturum hússins.
„Á veitingastaðnum Lava er til-
valið fyrir fundarhópa að snæða
saman hádegisverð eða kvöldverð.
Lava rúmar jafnt stóra sem litla
hópa og býður upp á stórfenglegt
útsýni yfir Bláa Lónið. Í boði er
meðal annars spennandi hópmat-
seðill sem auðveldar skipuleggj-
endum funda að velja matseðil við
hæfi handa sínum fundargestum,“
segir Hulda.
Moss er nýjasti veitingastaður
Bláa Lónsins en hann var opnaður
í apríl 2018 samhliða Retreat, nýrri
heilsulind og hóteli, en Moss er
á lista Michelin yfir þá staði sem
þeir mæla með.
„Á Moss er tilvalið fyrir litla
hópa að setjast niður í kvöldverð
eftir góðan fundardag og njóta
útsýnis yfir hraunbreiðuna sem
umlykur Bláa Lónið. Þá er bæði
spennandi og velkomið að fara
ofan í vínkjallarann og dreypa
þar á vínglasi áður en sest er
til kvöldverðar. Sömuleiðis er
skemmtileg upplifun að borða á
Chef Table.“
Á öllum veitingastöðum Bláa
Lónsins reiða meistarakokkar
fram ljúffenga rétti úr fyrsta flokks
hráefni.
„Fyrir þá sem ætla að funda í
lengri tíma eða vilja njóta staðar-
ins í framhaldi af fundum er hægt
að láta fara vel um sig og gista á
Silica hótel eða Retreat,“ upplýsir
Hulda.
Sölufólk Bláa Lónsins aðstoðar
með mikilli ánægju og gerir tilboð
í viðburði. Best er að hafa samband
í gegnum contact@bluelagoon.is
eða hringja í síma 420 8800.
https://www.bluelagoon.com/is/
topics/fundarsalir
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 RÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-8
7
7
4
2
3
A
9
-8
6
3
8
2
3
A
9
-8
4
F
C
2
3
A
9
-8
3
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K