Fréttablaðið - 29.08.2019, Qupperneq 37
g-events hefur einnig þjónað sem nokkurs konar ferðaskrif-
stofa fyrir erlend fyrirtæki
sem koma í heimsókn og komið
að sjónvarps- og kvikmyndaverk-
efnum hér heima fyrir erlenda
aðila. Fyrirtækið stefnir að því að
hafa frumleikann að leiðarljósi alla
daga. Engir tveir viðburðir hafa
verið nákvæmlega eins.
Gunnar Traustason, eigandi og
framkvæmdastjóri g-events, segir að
fyrirtækið leggi sig fram við að veita
góða þjónustu. „Við erum með mjög
hátt þjónustustig og tökum þarfir
kúnnans fram yfir okkar eigin,“ segir
hann. „Það þýðir að ef við þurfum
að vinna langt fram á kvöld eða eitt-
hvað þess háttar til að sinna öllum
þörfum kúnnans þá gerum við það
með bros á vör. Við segjum alltaf við
okkar kúnna að við getum reddað
öllu fyrir hann, alveg sama hvað, svo
lengi sem það er löglegt.
Vinnudagarnir hjá okkur verða
oft langir, en ég tel mig lánsaman að
fá að vinna við þetta,“ segir Gunnar.
„Þetta er skemmtilegasta vinna í
heimi, maður er alltaf að skapa eitt-
hvað nýtt og spennandi.
Að fá að skapa minningar sem
lifa í huga kúnnans í mörg ár eru
forréttindi,“ segir Gunnar.
Hugsa út fyrir boxið
„Við höfum fengið að heyra að við
séum frjó í hugmyndum þegar
kemur að því að skipuleggja við-
burði,“ segir Gunnar. „Starfsfólkið
fær frumlegar hugmyndir sem
eru svolítið út fyrir boxið og getur
þannig oft komið viðskiptavinum
á óvart. Við höfum lagt gríðar-
lega vinnu í að finna frumlega og
skemmtilega sali og staðsetningar
fyrir viðburði.
Við tökum að okkur allar gerðir
viðburða og getum séð um allt
sem tengist viðburðahaldinu. Við
höfum séð um alls kyns fundi,
ráðstefnur, hvataferðir, árshátíðir,
stórar opnanir hjá tískukeðjum
sem hafa verið sýndar í beinni í
fréttum og allar aðrar mögulegar
tegundir fyrirtækjaviðburða líka,“
segir Gunnar. „Við erum mjög
fjölhæf þegar kemur að því að
skipuleggja flotta viðburði.“
Alltaf að breyta og bæta
„Við getum séð um skipulagning-
una frá A-Ö. Það fer gríðarlegur
tími í að skipuleggja flottan við-
burð, en með aðstoð frá fagfyrir-
tæki fæst nýr vinkill á hlutina,“
segir Gunnar. „Auk þess hefur
starfsfólk sem er í fullri vinnu ekki
endilega tíma fyrir alla undirbún-
ingsvinnuna fyrir viðburði.“
Viðskiptavinir g-events eru
allt frá litlum fyrirtækjum upp í
þau stærstu á landinu og allt þar
á milli. „Sem dæmi um verkefni
sem við erum að vinna að núna má
nefna 5.000 gesta hátíð sem verður
haldin um helgina og svo erum
við líka búin að vera að vinna í
hátíð sem hefst í febrúar á næsta
ári þar sem við eigum von á 20-30
þúsund manns, en hún stendur
yfir í 4-6 vikur,“ segir Gunnar.
„Svo erum við að undirbúa mikið
Frumleg og fjölhæf viðburðaþjónusta
Gunnar Trausta-
son, eigandi og
framkvæmda-
stjóri g-events.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Árshátíðir, fundir og ráðstefnur eru meðal algengustu verkefna g-events.
g-events getur séð um skipulagningu viðburða frá A-Ö.
Gunnar segir að engir tveir viðburðir séu eins, því þeir
séu klæðskerasaumaðir að þörfum hvers og eins.
Viðskiptavinir g-events eru allt frá litlum fyrirtækjum
upp í þau stærstu og allt þar á milli.
Starfsfólk g-events fær frumlegar hugmyndir sem eru svolítið út fyrir boxið
og getur þannig oft komið viðskiptavinum á óvart.
g-events stýrir
öllum tegundum
viðburða fyrir
stór og smá fyrir-
tæki og hefur
gert það síðustu
átta ár.
af árshátíðum og hvataferðum
fyrir seinnipart ársins og næsta ár
ásamt alls konar öðrum flottum
viðburðum.
Engir tveir viðburðir hafa verið
nákvæmlega eins, við setjum alltaf
smá „twist“ á þetta fyrir hvern
kúnna og klæðskerasaumum við-
burðina að þörfum hvers og eins.
Við erum í rauninni alltaf að gera
eitthvað nýtt,“ segir Gunnar. „Þó
að ég væri að þessu í 100 ár væri
samt hægt að gera eitthvað nýtt
á hverjum degi, bæði vegna þess
að það eru mismunandi þarfir hjá
viðskiptavinunum og við erum
alltaf að vinna í nýjum hugmynd-
um og útfærslum á hverjum degi.“
Að fá að skapa
minningar sem lifa
í huga kúnnans í mörg ár
eru forréttindi.
KYNNINGARBLAÐ 11 F I M MT U DAG U R 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 RÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-A
E
F
4
2
3
A
9
-A
D
B
8
2
3
A
9
-A
C
7
C
2
3
A
9
-A
B
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K