Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 46
Þessir ungu leik-
menn sem hafa
verið að koma inn í hópinn
hafa aðlagast því hratt og vel
hvernig við vinnum. Þær eru
með mikið sjálfstraust.
Sara Björk Gunnarsdóttir
FÓTBOLTI Ísland hefur leik í undan
keppni EM 2021 í knattspyrnu
kvenna í kvöld en liðið fær þá Ung
verja í heimsókn. Íslenska liðið
hefur farið í lokakeppni EM síðustu
þrjú skiptin en liðið er enn að sleikja
sárin eftir vonbrigðin sem fylgdu
því að komast ekki á lokakeppni
HM í fyrsta skipti í sögunni í haust.
Jón Þór Hauksson tók við liðinu af
Frey Alexanderssyni eftir undan
keppnina fyrir HM 2019 og mun
hann þar af leiðandi stýra liðinu í
sínum fyrsta mótsleik í kvöld.
Jón Þór hefur ákveðið að fara í
ákveðin kynslóðaskipti með liðið
en í leikmannahópnum er hinn
16 ára gamli markvörður Cecil ía
Rán Rún ars dótt ir, Blikarnir Áslaug
Munda Gunnlaugsdóttir, Al ex andra
Jó hanns dótt ir og Karólína Lea Vil
hjálms dótt ir og Guðný Árna dótt ir
og Hlín Eiríksdóttir úr Val. Jón Þór
hefur lagt áherslu á það í viðtölum
í kringum þá leiki sem hann hefur
stýrt að hann vilji bæta liðið í að
halda boltanum innan liðsins, við
að stýra leikjum og í pressuvörn.
Guðbjörg Gunnarsdóttir sem
verið hefur fyrsti kostur í marki
landsliðsins síðustu ár er ólétt og
af þeim sökum mun keflið annað
hvort fara til Söndru Sigurðardóttur
eða Sonnýjar Láru Þráinsdóttur
í þessari undankeppni. Sandra
hefur hafið f leiri leiki undir stjórn
Jóns Þórs og því þykir líklegt að hún
muni byrja í markinu. Jón Þór sagði
á blaðamannafundi í gær að hann
væri búinn að ákveða hver myndi
standa í markinu en vildi ekki gefa
upp hver það yrði.
Ungir leikmenn að gera sig
gildandi í hópnum
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði
íslenska liðsins, sagði á sama fundi
að hún væri ánægð með hvernig
fyrrgreindir leikmenn hefðu komið
inn í hópinn. „Þessir ungu leikmenn
sem hafa verið að koma inn í hópinn
hafa aðlagast því hratt og vel hvern
ig við vinnum. Þær eru með mikið
sjálfstraust og hafa komið af krafti
inn í æfingarnar í þessari viku.
Það er augljóst að þær hafa mikinn
áhuga á að vera áfram hluti af þessu
liði,“ segir Sara Björk um þá ungu og
efnilegu leikmenn sem Jón Þór valdi
í fyrstu leiki undankeppninnar.
Búist er við því að Jón Þór muni
halda sig við reynsluboltana í
varnarlínunni, það er þær Hall
beru Guðnýju Gísladóttur, Sif Atla
dóttur, Glódísi Perlu Viggósdóttur
og Ingibjörgu Sigurðardóttur. Hins
vegar kemur bakvarðarpar Breiða
bliks einnig til greina í þessum leik
en Ásta Eir Árnadóttir hefur spilað
talsvert undir stjórn Jóns Þórs og
Áslaug Munda hefur hraða og eigin
leika til þess að sækja bakvið varnir
andstæðinganna úr bakvarðarstöð
unni. Sá eiginleiki Áslaugar Mundu
gæti nýst vel gegn liðum eins og
Ungverjalandi sem líkleg eru til
þess að spila þéttan varnarleik.
Mikilvægt að fá Dagnýju aftur
til leiks í góðu líkamlegu formi
Dagný Brynjarsdóttir er að koma
inn í liðið eftir fjarveru frá móts
leikjum síðan árið 2016 en hún kom
inn í liðið á Algarvemótinu í upp
hafi þessa árs og spilaði svo í báðum
leikjunum gegn Finnlandi í vor.
Dagný sagði í samtali við Frétta
blaðið að hún væri að nálgast sitt
besta form. Hún hefði fengið mikil
vægar mínútur í Algarve og komist
almennilega inn í leikstíl Jóns Þórs
í leikjunum við Finna.
Miðjuþr íhy r ning ur inn Sara
Björk, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
og Dagný sem spilað hafa í ára
raðir með íslenska liðinu mun að
öllum líkindum vera á miðsvæðinu
í kvöld. Verði íslenska liðið í vand
ræðum með að brjóta á bak aftur
vörn ungverska liðsins er gott að
vita af reynsluboltanum og marka
hróknum Margréti Láru Viðars
dóttur sem hefur leikið frábærlega
með toppliði Vals í sumar.
Fanndís Friðriksdóttir og Agla
María Albertsdóttir hafa verið
fyrstu tveir kostir í kantstöðuna
í gegnum tíðina en frammistaða
Hlínar með Val í sumar gæti skilað
henni á annan vænginn. Annað
hvort Elín Metta Jensen eða Berg
lind Björg Þorvaldsdóttir eru líkleg
ustu kandídatarnir til þess að leiða
framlínuna og Elín Metta er líklegri.
Þá getur Svava Rós Guðmundsdóttir
sem hefur mikinn hraða og kraft
leikið í öllum þremur framherja
stöðunum.
Auk Íslands og Ungverjalands
eru Slóvakía, sem verður mót
herji íslenska liðsins á mánudag
inn kemur, Svíþjóð og Lettland í
riðlinum. Níu riðlar eru í undan
keppninni en efsta liðið í hverjum
riðli kemst í lokakeppnina. Þau þrjú
lið sem verða með bestan árangur
í öðru sæti komast einnig beint
áfram og hin sex liðin sem enda í
öðru sæti í riðlunum fara í umspil
í október á næsta ári.
Ef að líkum lætur mun Ísland
berjast við Svía sem unnu brons
verðlaun á HM í sumar um efsta
sætið og Ungverjar og Slóvakar
freista þess að gera íslenska liðinu
skráveifu. Lettland er svo lakasta
liðið á pappírnum í riðlinum.
hjorvaro@frettabladid.is
Vegferðin til Englands hefst í kvöld
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu byrjar undankeppni EM 2021 í kvöld er liðið mætir Ungverjalandi á Laugardalsvellinum.
Ætli íslenska liðið sér að fara á fjórðu lokakeppni Evrópumótsins í röð verður það helst að fara með sigur af hólmi í þessum leik.
Sara Björk Gunnarsdóttir verður í eldlínunni með Íslandi sem leikur sinn fyrsta mótsleik undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FÓTBOLTI Sögu Bury sem fótbolta
félags lauk á miðvikudag þegar
félagið var úrskurðað gjaldþrota.
Það var 134 ára og vann enska
bikarinn tvisvar. Aðeins f jórir
mánuðir eru síðan félagið fór upp
um deild, skuldum vafið og veðsett
upp í topp. Nú óttast spekingar í
Bretlandi að f leiri lið séu að stefna
í sömu átt. Bolton, sem er granni
Bury á Manchestersvæðinu, hefur
fengið 14 aukadaga til að finna nýja
eigendur annars fer það sömu leið.
Leikmenn og starfsfólk Bury hafa
ekki fengið greidd laun svo mánuð
um skiptir og hefur einn leikmaður,
Stephen Dawson, viðurkennt að
hann þurfi að selja húsið sitt – til að
ná endum saman. Fyrirliðinn Neil
Danns sagði að eigandinn Steve
Dale hefði eyðilagt líf fjölmargra.
Nigel Adams, íþróttamálaráðherra
Bretlands, sagði að dagurinn sem
Bury féll hefði verið svartur dagur
í sögu enska boltans.
Það er í reglum ensku deildar
innar að félög mega ekki eyða um
of í laun. Í tölum frá gagnafyrir
tækinu Vysyble fyrir 20172018
tímabilið má sjá að liðin sem eru í
League One eyða að meðaltali 94
prósentum af allri innkomu sinni
í laun. Í deildinni fyrir neðan er
talan 78 prósent. Stóru sex í úrvals
deildinni voru með 52 prósent en
afgangurinn eyddi 67 prósentum
af innkomunni í laun.
Ekki eru allir eigendur jafn ríkir
og eigendur Chelsea, Manchester
City og fleiri liða.
Nú er kallað eftir hertum reglum
um eigendur félaga á Englandi, sem
kaupa félög í von um að komast upp
í Úrvalsdeildina – þar sem allur
peningurinn er. Þeir eru margir
sem eru sagðir vera að veðja um of
til að komast þangað, taka lán og
veðsetja jafnvel velli og aðrar eigur
félaganna. Og stundum gengur veð
málið ekki upp. Eins og sést með
eiganda Bury. Hann átti ekki fyrir
reikningnum. – bb
Bury kannski bara byrjunin
Stuðningsmenn Bury sameinuðust í sorginni í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
2,7
milljónir punda þurfti
eigandi Bury að koma með
að borði ensku deildarinnar
til að bjarga félaginu. Það
tókst ekki. Skuldirnar eru
sagðar enn meiri.
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
9
-9
B
3
4
2
3
A
9
-9
9
F
8
2
3
A
9
-9
8
B
C
2
3
A
9
-9
7
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K