Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.2015, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.2015, Qupperneq 6
6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 14. janúar 2015 Þeir komu færandi hendi, Drullu- sokkarnir, á Sjúkrahúsið fyrir stuttu. Komu þeir með 20 stóla sem þeir gáfu stofnuninni. „Við vildum láta gott af okkur leiða sagði talsmaður Drullusokkanna, Jens Karl Jóhannesson, í samtali við Fréttir. Það voru Guðný Bogadóttir hjúkrunarfræðingur og Ágúst Óskar Gústafsson, heilsugæslulæknir sem tóku við gjöfinni. F.v. Bryndís Gísladóttir, Guðný, Sigurður Óli Steingrímsson, Ágúst, Jens Karl, Gunnar Adólfsson og Sæþór Gunnarsson með dótturina Bjarteyju Ósk. Í síðustu viku tóku 16 nemendur í Framhaldsskólanum þátt í keppninni Oilsim og komst einn hópurinn áfram og keppir í Englandi um aðra helgi. Það var liðið Exxon Valdez sem í eru Elliði Ívarsson, Ólafur Freyr Ólafsson, Valur Marvin Pálsson og Þórður Örn Stefánsson sem halda áleiðis til London ásamt Helgu Kristínu Kolbeins, skólameistara sem verður liðinu til halds og trausts. „Strákarnir unnu á dög- unum landskeppnina í olíuleitar- leiknum Oilsim og öðluðust þar með þátttökurétt til að taka þátt í lokakeppninni í London. Keppnin verður haldin í Imperial College sem er mjög virtur og eftirsóttur skóli. Ferðakostnaður og allt uppihald er greitt af styrktaraðilum keppninnar. Við vonum svo sannarlega að okkar mönnum gangi sem best ytra og helgin verði þeim ánægjuleg,“ sagði Helga Kristín. Kennsla hófst í skólanum samkvæmt stundaskrá miðvikudag- inn 7. janúar. Að venju valdi Lionsklúbbur Vestmannaeyja jólahúsið og varð hús Emmu Pálsdóttur og Kristjáns Óskarssonar, Illugagata 32, fyrir valinu að þessu sinni. HS-veitur veita verðlaunin sem eru skjal til staðfestingar á valinu og afslátt af rafmagnsreikningi. Fulltrúar Lions og HS-Veitna mættu til Emmu og Kristjáns um jólin og afhentu þeim viðurkenn- inguna. F.v. Ægir Ármannsson frá Lions, Sigurjón Ingólfsson frá HS-Veitum, Kristján og Emma og Höskuldur Kárason og Óskar Örn Ólafsson frá Lions. Fjarskipta- og samgöngumál eru yfirleitt mál málanna þegar ég ræði við fólk í hinu ægifagra og víðfeðma Suðurkjördæmi. Það er nauðsynlegt að þessum málaflokk- um sé vel sinnt þar sem þeir eru grundvöllur atvinnuuppbyggingar, námsmöguleika og að allir landsmenn geti sótt nauðsynlega grunn- þjónustu með góðu móti. Framsókn hefur lagt mikla áherslu á mikilvægi fjarskipta- mála á landsbyggðinni. Fjarskiptin í forgangi Fjárlagafrumvarpið var samþykkt þann 16. desember síðastliðinn og ég er ánægð með forgangsröðunina sem þar birtist, ekki síst út frá umræddum málaflokkum. Þess má einnig geta að annað árið í röð samþykkir þingið hallalaus fjárlög og að þessu sinni með 3,5 milljarða króna afgangi. Samþykkt var að veita 300 milljónum í Fjarskiptasjóð til þess að hefja fyrsta áfanga framkvæmda við fyrirhugaða fjarskiptaáætlun. Með fjárveitingunni verður hægt að skipuleggja og kortleggja innviða- grunn ljósleiðara, hefja tengingar á ótengdum svæðum auk þess að hringtengja landsvæði. Uppbygging innanlands- flugvalla Innanlandsflug er mikilvægur hluti almenningssamgangna. Samt sem áður hefur viðhaldi innanlandsflug- valla ekki verið sinnt sem skyldi undanfarin ár, ekki frekar en vegakerfinu, og þarna þarf að gera bragarbót á. Þingið samþykkti nú að veita 500 milljónum króna til að koma til móts við uppsafnaða viðhaldsþörf á flugvöllum á landsbyggðinni. Þessi liður er fjármagnaður með arðgreiðslum frá ISAVIA sem renna í ríkissjóð. Þar með er komin lausn áralangrar deilu varðandi það hvernig hægt sé að fjármagna viðhald flugvalla á landsbyggðinni. Sumir hafa gagnrýnt þá leið og haldið fram að sú ráðstöfun muni draga úr nauðsynlegu viðhaldi og uppbygg- ingu á Keflavíkurflugvelli. Sú er ekki raunin. Hagnaður ISAVIA er tæpir 3 milljarðar króna og batnar ár frá ári. Styrking innanlandsflug- valla mun ekki hafa áhrif á framkvæmdahraða á Keflavíkur- flugvelli. Framkvæmdir munu halda áfram samkvæmt áætlun og þær verða fjármagnaðar með arði og lántökum. Störf munu ekki hverfa frá Suðurnesjum, heldur þvert á móti. Samgöngumálin í brennidepli Auk þess að leggja áherslu á uppbyggingu fjarskiptakerfis og bættra flugsamgangna þá var einnig ákveðið að leggja tugi milljóna til nauðsynlegra endurbóta á hafnarmann- virkjum í Þorlákshöfn. Það felast miklir hagsmunir í því fyrir allt Suðurland að eiga góða höfn. Af þessari upptalningu má sjá hver forgangsröðun fjármuna í kjör- dæminu var. En betur má ef duga skal. Enn eru fjölmörg verkefni óleyst. Það stærsta er eflaust áframhaldandi uppbygging Landeyjahafnar og smíði nýs Herjólfs. Það verkefni er mjög aðkallandi. Einnig þarf að fara í stórátak í viðhaldi vega, þá sérstaklega tengivega, að ógleymdri fækkun einbreiðra brúa í Skafta- fellssýslum. Af nógu er að taka og mun ég halda áfram að leggja mitt á vogarskálarnar í þeirri vinnu. Það er kominn tími til að tengja silja dögg gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins Þingið samþykkti nú að veita 500 millj- ónum króna til að koma til móts við uppsafnaða viðhaldsþörf á flugvöllum á landsbyggðinni. Þessi liður er fjármagn- aður með arðgreiðslum frá ISAVIA sem renna í ríkissjóð.” Drullusokk- ar færðu Sjúkrahús- inu 20 stóla Emma og Kristján áttu Jólahúsið í ár FÍV :: Frábær árangur í olíuleitarleik: Strákarnir í Exxon Valdez á leið til London í lokakeppni Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.