Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.2015, Qupperneq 16
16 Eyjafréttir / Miðvikudagur 14. janúar 2015
Árlegt Þrettándagrímuball Eyverja:
Fiðrildi, risaeðla, Mary Poppins
Einsi kaldi og Aulinn ég
:: unnu til verðlauna :: Um 250 krakkar tóku þátt í fjörinu
Það mátti sjá margar furðuverur
á vappi um Höllina síðastliðinn
föstudag þegar fram fór árlegt
þrettándagrímuball Eyverja. Um
250 börn voru mætt í hinum
ýmsu gervum.
Veitt voru fimm verðlaun. Besti
búningurinn þótti fiðrildi Andreu
Lífar Grímsdóttur, í öðru sæti var
Arnar Berg Arnarsson sem
hjálparsveinn úr Aulinn ég. Þriðja
sætið hlaut Clara Björt Kristjáns-
dóttir sem risaeðla. Frumlegasti
búningurinn þótti Bíll Einsa kalda
en honum klæddust tvenn systkini,
þau Sunna og Dagur Einarsbörn og
Andrés Marel og Birna Dís
Sigurðarbörn. Verðlaun voru einnig
veitt fyrir líflegustu framkomuna og
þau hlaut Eva Sigurðardóttir en hún
var klædd sem Mary Poppins.
Lilli klifurmús var kynnir og
afhenti verðlaunin með aðstoð
tveggja jólasveina sem gáfu svo
öllum sem mættu sælgætispoka.
Verðlaunahafar
kvöldsins ásamt
Lilla klifurmús og
jólasveinunum.
Jólasveinar gáfu öllum þátttakendum glaðning. Solla stirða og Anna prinsessa mættu á ball. Þessar mættu sem kossabás.
Það var mikið fjör á
Tröllagleðinni í Íþrótta-
miðstöðinni á laugar-
daginn. Í boði voru
fjölbreyttir leikir og
þrautir um allt hús sem
börn á öllum aldri tóku
þátt í. Íris Sæmunds-
dóttir hafði yfirumsjón
með gleðinni.
Tröllagleðin er orðin fastur
liður í þrettándahelginni
og vinsælt að fara þangað
með börnin þar sem þau
fá tækifæri til að ærslast
og skottast. Boðið var upp
á boltaleiki, þrautakóng,
badminton og fleiri
íþróttir.
Er þetta gott framtak þar
sem foreldrar og jafnvel
ömmur og afar fá tækifæri
til að taka þátt í leik með
börnunum. Aðsóknin
sýnir að fólk kann að meta
Tröllagleðina.
Tröllagleðin engan svíkur