Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.2015, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.2015, Blaðsíða 1
Eyjafréttir Vestmannaeyjum 22. júlí 2015 :: 42. árg. :: 29. tbl. :: Verð kr. 450 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is Íslandsmót eldri kylfinga fór fram í Vestmannaeyjum í síðustu viku og mættu yfir 130 kylfingar þar til leiks, þar af sextán frá GV. Hér einn þeirra, Sigurjón H. Adolfsson, staddur með sínu holli á 6. braut en Sigurjón lék best Eyjamanna í flokki karla 55-69 ára. Nánar er sagt frá mótinu á bls. 14. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á mánudaginn var tekið fyrir erindi frá ÍBV-íþróttafélagi um leyfi til að stækka bílastæði til vesturs á leiðinni inn í Herjólfsdal. Samþykkt var að stækka þau um 7,5 m til vesturs sem sagt er vera í samræmi við ákvæði gildandi deiliskipulags. Ráðið setur skilyrði um að framkvæmd og frágangur verði í fullu samráði við starfsmenn umhverfis-og fram- kvæmdasviðs. Allur kostnaður vegna framkvæmda leggst á leyfishafa og skal frágangi lokið að fullu eigi síðar en 15. september nk. Dóra Björk Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri ÍBV, sagði að stækk- unin væri um 75 fermetrar og tilgangurinn sé að bæta aðgengi að Herjólfsdal á þjóðhátíð. „Það á bæði við fótgangandi gesti og bílaumferð,“ sagði Dóra Björk. „Við ætlum að stjórna umferð fólks og bíla þannig að fólk noti merkta göngustíga á leið sinni í og úr Dalnum. Stærsta málið er þó að við ætlum að búa til hringtorg á svæðinu og öll umferð gangandi fólks verður norðan megin við veginn í Dalinn. Það er stígurinn sem fyrir er og svo hluti af svæðinu norðan megin við snúningsplanið. Verður það merktur sérstaklega. Allir bílar sem hafa leyfi til að fara inn á hátíðarsvæðið í Dalnum verða að fara um hringtorgið sem á að tryggja öruggari umferð í báðar áttir.“ Ljóst er að dagar bekkjabílanna eru taldir en í staðinn verða notaðir fjórir strætisvagnar og til viðbótar er 20 manna bíll á álagstímum. „Með þessu erum við að fjölga sætum úr 210 í 380 og afgreiðslan á að ganga greiðar. Það er gengið inn í vagnana að framan og út að aftan sem flýtir fyrir. Rekstraraðilar vagnanna ætla að bjóða upp á tíu miða kort sem flýtir enn meira fyrir. Með þessu teljum við okkur vera að bregðast við þeim tappa sem myndaðist þegar fólk var að fara heim með börnin eftir brennu, flugelda og brekkusöng. Vagnarnir taka snúninginn á hringtorginu og þurfa ekki að bakka sem líka eykur öryggið. Einnig vil ég koma því á framfæri að þegar stikun og tjöldun fer fram þá er fólk hvatt til að nýta neyðarstíg sem er við gamla golfskálann til að fara út úr Dalnum, þetta er gert til að tappi myndist ekki við efra svæðið,“ sagði Dóra Björk að endingu. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir hringtorg í Herjólfsdal: Aðskilja á umferð gangandi fólks og bíla með merktum gangstígum :: Strætisvagnar í stað bekkjabíla :: Fjölga sætum úr 210 í 380 Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is >> 8 >> 14 EYJABLIKK 18 ÁRA Í PALESTÍNU AÐ LÆRA ARABÍSKU ÍSLANDSMÓT ÖLDUNGA Í GOLFI>> 7

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.