Fréttir - Eyjafréttir - 14.09.2016, Page 23
7Eyjafréttir / Miðvikudagur 14. september 2016 / SJÁVARÚTVEGSBLAÐIÐ
Íslandsbanki og Vestmannaeyjar
Íslandsbanki og Vestmanneyjar
eiga langa og merkilega sögu
sem áhugavert er að rifja upp
nú í upphafi nýs fiskveiðiárs.
Sjávarútvegurinn er einmitt
rauði þráðurinn í þessari sögu
og hefst hún fyrir rúmlega 100
árum. Fiskveiðisjóður Íslands og
Útvegsbanki Íslands fléttast inn í
söguna og eru nú hluti af þeim
Íslandsbanka sem við þekkjum í
dag.
Íslandsbanki var stofnaður 7. júní
1904, sama dag og Binni í Gröf,
einn mesti aflamaður Vestmanna-
eyja, hefur haldið upp á 6 mánaða
afmæli sitt. Bankinn var stofnaður
af erlendum kaupsýslumönnum og
fjármálastofnunum til þess að mæta
þeirri miklu þörf fyrir fjármagn sem
einkenndi íslenska atvinnuvegi,
einkum sjávarútveginn. Lands-
bankinn hafði verið starfræktur frá
1. júlí 1886 en upp úr aldamótum
hafði hann ekki bolmagn til þess að
svara síaukinni eftirspurn eftir
fjármagni. Um þetta leyti var mikill
framkvæmdahugur í útgerðar-
mönnum víða um land sem tengdist
vélvæðingu flotans og togaraútgerð.
Til marks um þennan framkvæmda-
hug þá keypti Fiskveiðifélag
Faxaflóa fyrsta togarann til Íslands,
Coot, og kom hann til hafnar í
Hafnarfirði 6. mars 1905. Coot (154
brúttótonn) var grunnslóðartogari
smíðaður í Glasgow 1892, útbúinn
til botnvörpuveiða og greitt var fyrir
30 þúsund króna kaupverðið með
eigin fé eigenda. Íslandsbanki
byrjaði snemma að láta til sín taka í
fjármögnun til sjávarútvegs og kom
bankinn til að mynda að fjár-
mögnun fyrsta togarans sem
smíðaður var sérstaklega fyrir
Íslendinga. Þetta var Jón forseti,
smíðaður í Englandi 1906 fyrir
útgerðina Alliance hf. í Reykjavík
og var kaupverðið 150 þúsund
krónur. Jón forseti (233 brúttótonn)
var stór úthafstogari og með komu
hans til hafnar 22. janúar 1907 hófst
bylting í atvinnusögu íslensks
sjávarútvegs. Má segja að tækni-
öldin hafi formlega hafist hér á
landi þá.
Útibúið opnað 1919
Útibú Íslandsbanka var opnað í
Vestmannaeyjum 30. október 1919.
Starfsmenn voru tveir fyrstu árin,
útibússtjórinn Haraldur Viggó
Björnsson sem jafnframt var bókari
og bréfritari og gjaldkerinn Halldór
Halldórsson. Útibúið hóf starfsemi
sína í húsi Kristmanns Þorkels-
sonar, Steinholti, við Kirkjuveg.
Aðstöðunni var lýst sem bágbor-
inni að flestu leyti og samanstóð
vélarkosturinn af einni ritvél. Gengi
erlendra gjaldmiðla var sent
útibúinu daglega í símskeyti frá
aðalbankanum. Í þá daga var
„fljótandi gengi“ á íslensku
krónunni. Útibúið hafði ætíð litið á
það sem skyldu sína að styðja við
bakið á útgerð og fiskvinnslu og fór
þannig stór hluti af lánsfjármagni
bankans í að styðja við atvinnulífið
í Eyjum, auk lána til einstaklinga.
Íslandsbanki lánaði mikið fé til
fiskverslunar og togarakaupa, auk
rekstrarlána til útgerðarinnar, allt
fram til ársins 1930 þegar bankinn
var lagður niður. Endalok Íslands-
banka voru í beinum tengslum við
rekstrarerfiðleika útgerðarfyrirtækja
eftir gengishækkun og lækkun
afurðarverðs á árunum 1920 til
1930. Það fór svo að lokum að
Útvegsbanki Íslands var stofnaður
og tók hann yfir eignir og skuldir
Íslandsbanka.
Skömmu fyrir tveggja ára afmælið
hans Binna í Gröf 10. nóvember
1905 var Fiskveiðisjóður Íslands
stofnaður til stuðnings sjávarútvegi
í landinu. Sjóðurinn var stofnaður
eftir langvarandi óánægju vegna
þess hve mikið hafði verið gert fyrir
landbúnað samanborið við
sjávarútveg. Óánægjan var
skiljanleg ef litið er á fjárlög fyrir
1907 þar sem áætlað var að verja 50
þúsund krónum til eflingar á
landbúnaði en verja átti 600 krónum
til sjávarútvegs. Þessar 600 krónur
átti Bjarni Sæmundsson náttúru-
fræðingur að nýta til fiskirann-
sókna. Þetta misræmi var sérkenni-
legt í ljósi þess að á þessum tíma
var hluti sjávarafurða í útflutningi
mun stærri en hlutur landbúnaðar-
vöru.
Fiskveiðisjóðurinn gegndi
mikilvægu hlutverki frá stofnun þó
að stofnunin hafi verið heldur
fjárvana til að byrja með. Fyrir-
komulagið frá 1905 til 1930 var að
Íslandsbanki fjármagnaði togara-
kaup og aðrar stórar fjárfestingar á
meðan Fiskveiðisjóður lánaði lægri
upphæðir sem runnu einkum til
vélbátaútgerðarinnar. Samspil
þessara fjármálastofnana var því
gott fyrir sjávarútveginn þar sem
fjármagnsþörf bæði minni sem og
stærri útgerða var fullnægt með
þessu móti. Tímamót urðu svo í
sögu Fiskveiðisjóðs 1930 þegar
Útvegsbanki Íslands er stofnaður.
Útvegsbanki Íslands
Útvegsbanki Íslands var stofnaður
2. apríl 1930 á sama tíma og Binni í
Gröf sinnti formennsku á vél-
bátnum m/b Gullu. Útvegsbankinn
var stofnaður í skyndi eftir að
Íslandsbanki var lagður niður.
Bankinn tók ekki aðeins yfir eignir
og skuldir Íslandsbanka heldur líka
stjórn og starfsemi Fiskveiðisjóðs
Íslands. Fiskveiðisjóðurinn var
rekinn sem sjálfstæð deild innan
Útvegsbankans og fylgdi sem fyrr
þeim lögum og reglugerðum sem
um hann giltu. Hlutverk Útvegs-
bankans var fyrst og fremst að lána
fé til sjávarútvegs en einnig til
verslunar og iðnaðar. Það má segja
sem svo að með stofnun Útvegs-
bankans 1930 hafi bankamál
útgerðarinnar verið í svipuðu horfi
næstu sex áratugina eða allt fram til
1990 en þá riðaði bankinn til falls.
Endalok Útvegsbankans má að
mestu rekja til kreppunnar í
sjávarútvegi upp úr 1980 og
gjaldþroti Hafskips sem hafði verið
stór viðskiptavinur bankans.
Grunnurinn lagður
Íslandsbanki var stofnaður í
ársbyrjun 1990 eftir að samkomulag
hafði náðst um að Alþýðubankinn,
Iðnaðarbanki Íslands og Verslunar-
banki Íslands keyptu allt hlutafé í
Útvegsbankanum af ríkinu. Allir
fjórir bankarnir voru síðan
sameinaðir undir nafni Íslands-
banka og hafði þessi sameining
umtalsverð áhrif á bankaumhverfið
í Vestmannaeyjum. Talið var að
Útvegsbankinn hafi verið með um
80% hlutdeild í útlánum til
fyrirtækja í Vestmannaeyjum á
þessum tíma og tengsl hans við
atvinnulífið á staðnum því mikil.
Aftur var komið að tímamótum
þegar Íslandsbanki og FBA
sameinuðust 2000 en Fiskveiði-
sjóður hafði sameinast FBA 1997.
Þarna er kominn grunnurinn af
þeirri fjármálastofnun sem við
köllum Íslandsbanka í dag.
Saga Íslandsbanka og Vestmanna-
eyja er samofin og hefur bankinn átt
mikilli velgengni að fagna í áratugi.
Við starfsfólk bankans erum
gríðarlega þakklát fyrir það traust
sem okkur hefur verið sýnt í
gegnum árin og einnig þau góðu
viðskiptasambönd sem hafa
myndast. Við hlökkum til áfram-
haldandi samstarfs og spennandi
nýs fiskveiðiárs.
Binni í Gröf (1904 – 1972).
Haraldur Viggó Björnsson, fyrsti
útibússtjóri Íslandsbanka í
Vestmannaeyjum.
Mynd: Gunnar Ingi
Steinholt við Kirkjuveg.