Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 32
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Golf í friðsælu umhverfi og frábært hótel Við erum eini golfklúbburinn á Íslandi með aðstöðu sem kallast getur „Golf Resort“. Hótel Hamar, sem er í hjarta Hamarsvallar er í raun klúbbhúsið fyrir golfvöllinn“ segir Jóhannes Ár- mannsson, framkvæmda- og vallar- stjóri hjá Golfklúbbi Borgarness. Hamarsvöllur í Borgarnesi er sambland af skógar- og vatnavelli og þykir ákaflega fallegur, snyrtilegur og friðsæll golfvöllur. Hótel Hamar Icelandair Hotels, í miðju vallarins, er umvafið skógi vöxnum brautum á alla vegu en þó með ágætis útsýni yfir fjallahringinn. Hótelið býður upp á framúrskarandi gistingu sem og veitingar á breiðu verðbili. Síðan er það klúbbhús GB og athvarf fyrir gesti Hamarsvallar en 1. teigur og 18. flöt eru við hótelið. Fjölmargir gestir Hótels Hamars velja bæði gistingu og golf, sem og kvöldverð. „Það koma um 35.000 gestir á svæðið á ári. Yfir vetrartímann sækj- ast þeir einvörðungu eftir gistingu og nýta að sjálfsögðu ekki golfvöllinn. Yfir sumarið koma hingað um 12.000 Íslendingar sem spá bara í golfvöllinn en ekki hótelið. Og síðan eru enn aðrir sem gista á hótelinu og leika golf, jafnt Íslendingar sem erlendir ferða- menn, en færst hefur í aukana að erlendir ferðamenn sem gista á Hótel Hamar vilji ólmir taka hring þegar þeir sjá golfvöllinn. Af 35.000 gestum eru þó erlendir viðskiptavinir í meirihluta,“ segir Jóhannes og leikur sér örlítið með tölfræðina en Hamarsvöllur og tilheyrandi eru án efa einn vinsælasti staður landsins fyrir golfara. Hér er eitt dæmi um vinsældirnar: „Sem dæmi þá auglýstum við GB paramót fyrir 80 pör – samtals 160 manns – í febrúar, en mótið verður haldið í lok júní. Það bókaðist allt upp á einni viku,“ segir Jóhannes. „Hér er þægilegt umhverfi, friðsælt og áreitislaust. Þegar fólk er að spila golf í Reykjavík þá eru svo margir fleiri í kringum það, þannig að þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref geta ekki almennilega notið sín vegna áreitis. Þess vegna leita svo margir byrjendur hingað,“ segir Jóhannes. Nánar má lesa um þetta á vefsíðunni gbgolf.is. Þegar þar er komið inn er einnig hægt að smella á hnappinn „Hamar“ og þar er hægt að bóka gistingu og golf. Mörg spennandi tilboð eru í gangi fyrir bæði pör og hópa. Að sögn Jóhannesar er algengt að golfhópar sæki Hamarsvöll og gisti á hótelinu. Þar á fólk ljúfar stundir á milli þess sem það nýtur þess að spila golf á Hamarsvelli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.