Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 26
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Hann á sér merkilega sögu, Golfklúbburinn á Hellu, en hann hefur verið starfræktur
nær sleitulaust síðan 1952. „Völlurinn
hefur verið færður tvisvar sinnum
síðan klúbburinn var stofnaður. Í
dag heitir völlurinn Strandarvöllur
og hann staðsettur á Strönd sem er
alveg tilvalin staðsetning. Undirlendið
er sendið og þurrt og því sjaldan
sem völlurinn er gegnsósa af vatni,
enda er grasið fljótt að þorna vegna
sandsins. Völlurinn er yfirleitt tilbú-
inn til notkunar snemma að vori, en
tæknilega séð er hann opinn allt árið
um kring. Þannig að ef vel viðrar og
völlurinn er ekki á kafi í snjó þá má
spila hér golf,“ segir Óskar Pálsson.
Fjölbreyttur og skemmtilegur völlur
Upphaflega var völlurinn níu holur en
í dag er hann átján holur. „Völlurinn
er gífurlega skemmtilegur og í þau
fjöldamörgu ár sem ég hef stundað
golfið, þá hef ég satt að segja aldrei
fengið leiða á þessum velli. Hann
hentar bæði byrjendum sem lengra
komnum þar sem hver iðkandi velur
lengd vallarins eftir eigin getustigi.“
Hentar sérlega vel til mótahalds
Það eru 105 félagar í klúbbnum sem
sjá um starfsemina. „Við golfvöllinn
stendur ein besta íþróttaaðstaða í
gjörvallri Rangárvallasýslu, ef ekki á
öllu Suðurlandi. Klúbbhúsið er gamall
skóli og aðstaðan þar býður upp á
að hægt sé að halda heilt Íslands-
mót með nær engum fyrirvara.“ Þess
má geta að þann 1. maí 2019 verður
haldið heljar golfmót 39. árið í röð á
Strandarvelli.
Frábær veitingastaður
Í klúbbhúsinu er einnig rekinn einn
af bestu veitingastöðum á svæðinu.
„Hér er sérlega hæfileikaríkur kokkur
frá Kólumbíu sem galdrar fram
dýrindis mat fyrir gesti og gangandi.
Hann hefur algerlega komið okkur á
kortið á Tripadvisor enda er veitinga-
staðurinn þar með nær fullt hús
stiga.“
Fagurt útsýni og veðursæld
Frá matsalnum er gífurlega fallegt
útsýni yfir fjöll, firnindi og ægi fagrar
eldstöðvar. „Hér ber við himin
hin ægifagra Hekla, tignarlegur
Tindfjallajökull, Eyjafjallajökull og
Vestmanna eyjar. Svo glittir stundum
í Mýrdalsjökul á góðviðrisdögum. Svo
er hér sérlega veðursælt og merki
þess má sjá á trjánum hér í kring. Þau
vaxa öll tiltölulega beint upp í loftið
sem sýnir það svart á hvítu hvað hér
er ekki vindasamt.“
„Ég get ekki ímyndað mér betri
dagsferð en að aka um söguslóðir
Njálu, taka í kylfu á Strandarvelli og
enda svo daginn á dýrindismáltíð
í klúbbhúsinu hjá okkur. Það er þó
alltaf vissara að panta borð enda er
staðurinn vinsæll hjá bæði heima-
mönnum og ferðamönnum,“ segir
Óskar.
Strandarvöllur er í rúmlega klukku-
stundar akstursfjarlægð frá
Reykjavík og er mitt á milli Hellu og
Hvolsvallar.
Sími: 487-8208
ghr@ghr.is
Hin fegursta
fjallasýn
GOLFKLÚBBUR HELLU: