Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 26
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Hann á sér merkilega sögu, Golfklúbburinn á Hellu, en hann hefur verið starfræktur nær sleitulaust síðan 1952. „Völlurinn hefur verið færður tvisvar sinnum síðan klúbburinn var stofnaður. Í dag heitir völlurinn Strandarvöllur og hann staðsettur á Strönd sem er alveg tilvalin staðsetning. Undirlendið er sendið og þurrt og því sjaldan sem völlurinn er gegnsósa af vatni, enda er grasið fljótt að þorna vegna sandsins. Völlurinn er yfirleitt tilbú- inn til notkunar snemma að vori, en tæknilega séð er hann opinn allt árið um kring. Þannig að ef vel viðrar og völlurinn er ekki á kafi í snjó þá má spila hér golf,“ segir Óskar Pálsson. Fjölbreyttur og skemmtilegur völlur Upphaflega var völlurinn níu holur en í dag er hann átján holur. „Völlurinn er gífurlega skemmtilegur og í þau fjöldamörgu ár sem ég hef stundað golfið, þá hef ég satt að segja aldrei fengið leiða á þessum velli. Hann hentar bæði byrjendum sem lengra komnum þar sem hver iðkandi velur lengd vallarins eftir eigin getustigi.“ Hentar sérlega vel til mótahalds Það eru 105 félagar í klúbbnum sem sjá um starfsemina. „Við golfvöllinn stendur ein besta íþróttaaðstaða í gjörvallri Rangárvallasýslu, ef ekki á öllu Suðurlandi. Klúbbhúsið er gamall skóli og aðstaðan þar býður upp á að hægt sé að halda heilt Íslands- mót með nær engum fyrirvara.“ Þess má geta að þann 1. maí 2019 verður haldið heljar golfmót 39. árið í röð á Strandarvelli. Frábær veitingastaður Í klúbbhúsinu er einnig rekinn einn af bestu veitingastöðum á svæðinu. „Hér er sérlega hæfileikaríkur kokkur frá Kólumbíu sem galdrar fram dýrindis mat fyrir gesti og gangandi. Hann hefur algerlega komið okkur á kortið á Tripadvisor enda er veitinga- staðurinn þar með nær fullt hús stiga.“ Fagurt útsýni og veðursæld Frá matsalnum er gífurlega fallegt útsýni yfir fjöll, firnindi og ægi fagrar eldstöðvar. „Hér ber við himin hin ægifagra Hekla, tignarlegur Tindfjallajökull, Eyjafjallajökull og Vestmanna eyjar. Svo glittir stundum í Mýrdalsjökul á góðviðrisdögum. Svo er hér sérlega veðursælt og merki þess má sjá á trjánum hér í kring. Þau vaxa öll tiltölulega beint upp í loftið sem sýnir það svart á hvítu hvað hér er ekki vindasamt.“ „Ég get ekki ímyndað mér betri dagsferð en að aka um söguslóðir Njálu, taka í kylfu á Strandarvelli og enda svo daginn á dýrindismáltíð í klúbbhúsinu hjá okkur. Það er þó alltaf vissara að panta borð enda er staðurinn vinsæll hjá bæði heima- mönnum og ferðamönnum,“ segir Óskar. Strandarvöllur er í rúmlega klukku- stundar akstursfjarlægð frá Reykjavík og er mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Sími: 487-8208 ghr@ghr.is Hin fegursta fjallasýn GOLFKLÚBBUR HELLU:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.