Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 18
18 26. apríl 2019FÓKUS Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Lífseigir rokkarar Áratugir af sukki og svínaríi N ýlega þurftu hvor tveggja The Rolling Stones og Black Sabbath að fresta tónleikum vegna heilsufarsvandamála. Það ætti ekki að koma fólki á óvart í ljósi þess að meðlimir hljóm sveitanna eru komnir á áttræðisaldur. Í rauninni er það ráðgáta að menn á borð við Keith Richards og Ozzy Osbourne séu enn á lífi eftir að hafa plægt rokkakurinn áratugum saman. Að vera rokkstjarna er ekki heilbrigðasti lífsstíllinn. Margar af þeim helstu hafa innbyrt allar tegundir eiturlyfja og smit- ast af öllum kynsjúkdómum í bókinni. Í rauninni er það krafta- verk þegar þær ná ellilífeyrisaldri. Hér eru nokkrar af lífseigustu rokkstjörnum samtímans. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Ozzy var söngvari í Black Sabbath þegar þeir bjuggu til þunga rokkið í upphafi áttunda áratugarins. Allir með limirnir lentu snemma í mikilli óreglu, eiturlyfjaneyslu og undarlegum uppákomum tengdum dulspeki. Eftir að hann var rekinn úr bandinu hóf hann vel heppnaðan sólóferil og þá jókst óreglan. Frægt var þegar hann beit höfuðið af leðurblöku. Dúfa lenti líka í tönnunum á honum og maurar upp í nösina. Ozzy fagnaði sjötugs afmælinu í desember síðastliðnum. Ozzy Osbourne Hann lifir okkur öll er viðkvæð- ið um Keith Richards, gítarleik- ara The Rolling Stones. Hann er nú 75 ára gamall. Richards glímdi við heróínfíkn frá sjö- unda áratugnum og komst oft í kast við lögin. Í dag segist hann aðeins nota áfengi og kannabis. Keith Richards Árið 2001 kom út bókin The Dirt, ævisaga glamrokksveitarinnar Mötley Crue, og á þessu ári kom út kvikmynd byggð á bókinni. Allir eru meðlimirnir enn þá á lífi, þeir Tommy Lee, Vince Neil, Nikki Sixx og Mick Mars. En bassaleikarinn Sixx lést í nokkrar mínútur árið 1987 og söngvarinn Neil slasaðist illa í bílslysi þar sem ann- ar lést. Neil sat við stýrið, vel undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Meðlimir Mötley Crue eru nú á sextugs- og sjötugsaldri. Mötley Crue Svall þungarokkshljómsveitarinn- ar Pantera frá Texas á tíunda ára- tugnum var nánast fordæmalaust. Var það fest á filmu og gefið út á alræmdum vídeóspólum. Bræð- urnir Dimebag Darrel og Vinnie Paul eru nú horfnir yfir móðuna miklu. Dimebag var myrtur á sviði og Paul fékk hjartaáfall. Söngvarinn Phil Anselmo lést eftir inntöku heróíns árið 1996 en var endurlífgaður og stend- ur nú á fimmtugu. Bassaleikar- inn Rex Brown hefur svo miklar lifrarskemmdir að hann má ekki drekka dropa af áfengi í dag. Pantera MacGowan var söngvari og leiðtogi þjóðlaga- pönksveitarinnar The Pogues. Hann er ein mesta örlaga- fyllbytta samtímans og hefur einnig tekið slag við heróínið. Söngur hans og framkoma hefur verið sérstök í gegnum tíðina og lífsstíllinn markað hana. Í eitt skipti þurfti að óla hann fastan við stól til að hann gæti klárað tónleika. MacGowan er 61 árs gamall í dag. Hann missti allar tennurnar og er nú kominn í hjólastól. Shane MacGowan Í slendingar hafa átt sínar rokkstjörnur sem glímt hafa við áfengi og sukk. Þó sennilega ekkert í líkingu við þá sem hér að framan eru nefndir. Hér eru þeir helstu. Jet Black Joe var heitasta rokkhljómsveit landsins í upphafi tíunda ára- tugarins og margir bjuggust við að þeir myndu „meikaða.“ Drykkju- læti og ýmsar skrautlegar uppákomur áttu sér reglulega stað, stundum tengdar lögreglunni. Árið 1996 frelsaðist söngvarinn, Páll Rósinkranz, og sagði skilið við sukkið. Jet Black Joe Popparinn og bassaleikarinn Pálmi Gunnarsson gerði allt vit- laust með lögum á borð við Þorp- arann og Hvers vegna varst’ ekki kyrr?. Auk þess söng hann með ICY-tríóinu í fyrstu Eurovision- -keppni Íslendinga. Árið 1995 steig hann inn á Vog eftir mörg ár í áfengis- og fíkniefnaneyslu. Pálmi er 68 ára gamall í dag. Pálmi Gunnarsson Rokksveitin Mínus kom upp úr harðkjarnasenunni um aldamótin og vakti töluverða athygli erlendis. Í sveitinni voru meðal annarra Krummi, útvarpsmaðurinn Frosti Logason og leikarinn Björn Stefánsson. Sukk og svínarí einkenndi hljómsveitina á þessum árum og var því til dæmis lýst í frægu viðtali við breska tímaritið Kerrang! Pönk- og rokkkóngurinn Bubbi hefur verið opinn um sína fíkn. Hann kynntist kókaíni árið 1982 og lenti illa í neyslu. Þá var hann skærasta stjarna íslenskrar tónlistar. Bubbi fór í meðferð og náði sér á strik. Bubbi Morthens Mínus
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.