Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 18
18 26. apríl 2019FÓKUS
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Lífseigir rokkarar
Áratugir af sukki og svínaríi
N
ýlega þurftu hvor tveggja
The Rolling Stones
og Black Sabbath að
fresta tónleikum vegna
heilsufarsvandamála. Það ætti
ekki að koma fólki á óvart í ljósi
þess að meðlimir hljóm sveitanna
eru komnir á áttræðisaldur. Í
rauninni er það ráðgáta að menn
á borð við Keith Richards og Ozzy
Osbourne séu enn á lífi eftir að
hafa plægt rokkakurinn áratugum
saman.
Að vera rokkstjarna er ekki
heilbrigðasti lífsstíllinn. Margar
af þeim helstu hafa innbyrt
allar tegundir eiturlyfja og smit-
ast af öllum kynsjúkdómum í
bókinni. Í rauninni er það krafta-
verk þegar þær ná ellilífeyrisaldri.
Hér eru nokkrar af lífseigustu
rokkstjörnum samtímans.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Ozzy var söngvari í Black Sabbath
þegar þeir bjuggu til þunga rokkið
í upphafi áttunda áratugarins.
Allir með limirnir lentu snemma
í mikilli óreglu, eiturlyfjaneyslu
og undarlegum uppákomum
tengdum dulspeki. Eftir að hann
var rekinn úr bandinu hóf hann
vel heppnaðan sólóferil og þá
jókst óreglan. Frægt var þegar
hann beit höfuðið af leðurblöku.
Dúfa lenti líka í tönnunum á
honum og maurar upp í nösina.
Ozzy fagnaði sjötugs afmælinu í
desember síðastliðnum.
Ozzy Osbourne
Hann lifir okkur öll er viðkvæð-
ið um Keith Richards, gítarleik-
ara The Rolling Stones. Hann
er nú 75 ára gamall. Richards
glímdi við heróínfíkn frá sjö-
unda áratugnum og komst oft í
kast við lögin. Í dag segist hann
aðeins nota áfengi og kannabis.
Keith Richards
Árið 2001 kom út bókin The Dirt, ævisaga glamrokksveitarinnar
Mötley Crue, og á þessu ári kom út kvikmynd byggð á bókinni. Allir
eru meðlimirnir enn þá á lífi, þeir Tommy Lee, Vince Neil, Nikki
Sixx og Mick Mars. En bassaleikarinn Sixx lést í nokkrar mínútur
árið 1987 og söngvarinn Neil slasaðist illa í bílslysi þar sem ann-
ar lést. Neil sat við stýrið, vel undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Meðlimir Mötley Crue eru nú á sextugs- og sjötugsaldri.
Mötley Crue
Svall þungarokkshljómsveitarinn-
ar Pantera frá Texas á tíunda ára-
tugnum var nánast fordæmalaust.
Var það fest á filmu og gefið út á
alræmdum vídeóspólum. Bræð-
urnir Dimebag Darrel og Vinnie
Paul eru nú horfnir yfir móðuna
miklu. Dimebag var myrtur á
sviði og Paul fékk hjartaáfall.
Söngvarinn Phil Anselmo lést
eftir inntöku heróíns árið 1996
en var endurlífgaður og stend-
ur nú á fimmtugu. Bassaleikar-
inn Rex Brown hefur svo miklar
lifrarskemmdir að hann má ekki
drekka dropa af áfengi í dag.
Pantera
MacGowan var söngvari
og leiðtogi þjóðlaga-
pönksveitarinnar The Pogues.
Hann er ein mesta örlaga-
fyllbytta samtímans og hefur
einnig tekið slag við heróínið.
Söngur hans og framkoma hefur
verið sérstök í gegnum tíðina og
lífsstíllinn markað hana. Í eitt
skipti þurfti að óla hann fastan
við stól til að hann gæti klárað
tónleika. MacGowan er 61 árs
gamall í dag. Hann missti allar
tennurnar og er nú kominn í
hjólastól.
Shane MacGowan
Í
slendingar hafa átt sínar rokkstjörnur sem glímt hafa við áfengi og
sukk. Þó sennilega ekkert í líkingu við þá sem hér að framan eru
nefndir. Hér eru þeir helstu.
Jet Black Joe var heitasta rokkhljómsveit landsins í upphafi tíunda ára-
tugarins og margir bjuggust við að þeir myndu „meikaða.“ Drykkju-
læti og ýmsar skrautlegar uppákomur áttu sér reglulega stað, stundum
tengdar lögreglunni. Árið 1996 frelsaðist söngvarinn, Páll Rósinkranz, og
sagði skilið við sukkið.
Jet Black Joe
Popparinn og bassaleikarinn
Pálmi Gunnarsson gerði allt vit-
laust með lögum á borð við Þorp-
arann og Hvers vegna varst’ ekki
kyrr?. Auk þess söng hann með
ICY-tríóinu í fyrstu Eurovision-
-keppni Íslendinga. Árið 1995
steig hann inn á Vog eftir mörg ár í
áfengis- og fíkniefnaneyslu. Pálmi
er 68 ára gamall í dag.
Pálmi
Gunnarsson
Rokksveitin Mínus kom upp úr harðkjarnasenunni um aldamótin og
vakti töluverða athygli erlendis. Í sveitinni voru meðal annarra Krummi,
útvarpsmaðurinn Frosti Logason og leikarinn Björn Stefánsson. Sukk og
svínarí einkenndi hljómsveitina á þessum árum og var því til dæmis lýst
í frægu viðtali við breska tímaritið Kerrang!
Pönk- og rokkkóngurinn Bubbi
hefur verið opinn um sína fíkn.
Hann kynntist kókaíni árið
1982 og lenti illa í neyslu. Þá var
hann skærasta stjarna íslenskrar
tónlistar. Bubbi fór í meðferð og
náði sér á strik.
Bubbi Morthens
Mínus