Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 27
Golfblaðið 26. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ Ný og glæsileg aðstaða í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi Garðavöllur er án efa talinn vera á meðal bestu 18 holu keppnisvalla landsins og ár hvert eru haldin þar stórmót af ýmsum toga. Framkvæmdir við nýja félags- aðstöðu Leynis hófust í janúar 2018 en þá hafði undirbúningur staðið yfir allt frá 2015/2016. Ný félagsaðstaða hefur feng- ið heitið Frístundamiðstöð við Garðavöll og leysir af hólmi eldri aðstöðu Leynis sem samanstóð af 35 fermetra skrifstofu- byggingu frá árinu 2000 og um 180 fermetra golfskála sem kominn var mjög til ára sinna og var upphaflega íbúðarhús. Eignarhald á nýja húsnæðinu er í höndum Fasteignafélags Akranes kaupstaðar og rekstur hússins er alfarið í höndum Golf klúbbsins Leynis. Ný og glæsileg frístundamið- stöð við Garðavöll Frístundamiðstöðin er glæsilegt þúsund fermetra fjölnota hús sem í senn verður klúbb- og félagsaðstaða Golfklúbbsins Leynis með æfingaaðstöðu í kjallara og fundaraðstöðu og veitingastaður. Einnig verður allt að tvö hundruð manna veislu- salur til útleigu með tilheyrandi aðstöðu og rýmum. Salinn verður ýmist hægt að stúka niður fyrir smærri samkomur eða opna í eina heild fyrir stærri veislur. Flott hús í fallegu umhverfi Ný og bætt aðstaða gjörbreytir allri félagsaðstöðu og rekstri klúbbsins og styrkir stoðir klúbbsins. Kylfingar og gestir golfvallarins eiga án efa eftir að njóta þessa nýja húss þegar þeir heimsækja Garðavöll en húsið er stórt og tignarlegt og sómir sér vel í fallegu umhverfi vallarins. Félagsmenn unnu í sjálfboða- vinnu við að reisa húsið „Við höfðum að leiðarljósi að vinna alla áætlanagerð af kostgæfni þannig að ekki yrði farið fram úr áætluð- um byggingarkostnaði eða verktíma. Það hefur tekist. Leitað var til verktaka hér á Akranesi um að koma að framkvæmdinni og einnig hafa félagsmenn í Golf klúbbnum Leyni verið duglegir að leggja hönd á plóg við byggingu hússins í sjálfboðavinnu. Þar hefur gamli félagsandinn verið allsráðandi líkt og í ungmenna- félögunum forðum,“ segir Guðmundur Sigvaldason, fram- kvæmdastjóri Leynis aðspurður. Glænýr veitingastaður Leynir hefur síðan samið við Veitingastaðinn Galitó um veitingasölu í húsinu og rekstur og hér verður opnaður nýr veitingastaður, Galitó Bistró Cafe, um leið og húsið verður vígt formlega nú í lok apríl. Hyggja á opnun um mánaða- mótin „Garðavöllur kemur vel undan vetri og styttist í opnun vallarins, jafnvel fyrir mánaða- mótin apríl/maí. Við bjuggum við það lúxusvandamál í vetur að það var ekkert eða lítið frost í jörðu sem gerði það að verkum að völlurinn er í góðu ásigkomulagi. Nú erum við hins vegar farin að undirbúa slátt og fyrstu sumarstarfsmenn eru mættir til vinnu.“ Mót á árinu Íslandsmótið í holukeppni verður haldið á Garðavelli um miðjan júní. Nokkur önnur stærri mót á vegum Golfsambands Íslands verða auk þess á árinu. Bók- anir kylfinga, hópa og fyrir- tækja hafa verið afar góðar og mikil tilhlökkun og bjartsýni með sumarið hjá stjórnendum Golf- klúbbsins Leynis. Golfklúbburinn Leynir er staðsettur á Garðavelli, 300 Akranesi. Nánari upplýsingar má nálgast á leynir.is Fylgstu með okkur á Facebook: Golfklúbburinn Leynir Sími: 896-2711
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.