Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Qupperneq 27
Golfblaðið 26. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Ný og glæsileg aðstaða
í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi
Garðavöllur er án efa talinn vera á meðal bestu 18 holu keppnisvalla
landsins og ár hvert eru haldin
þar stórmót af ýmsum toga.
Framkvæmdir við nýja félags-
aðstöðu Leynis hófust í janúar
2018 en þá hafði undirbúningur
staðið yfir allt frá 2015/2016.
Ný félagsaðstaða hefur feng-
ið heitið Frístundamiðstöð við
Garðavöll og leysir af hólmi eldri
aðstöðu Leynis sem samanstóð
af 35 fermetra skrifstofu-
byggingu frá árinu 2000 og
um 180 fermetra golfskála sem
kominn var mjög til ára sinna
og var upphaflega íbúðarhús.
Eignarhald á nýja húsnæðinu
er í höndum Fasteignafélags
Akranes kaupstaðar og rekstur
hússins er alfarið í höndum
Golf klúbbsins Leynis.
Ný og glæsileg frístundamið-
stöð við Garðavöll
Frístundamiðstöðin er glæsilegt
þúsund fermetra fjölnota hús
sem í senn verður klúbb- og
félagsaðstaða Golfklúbbsins
Leynis með æfingaaðstöðu í
kjallara og fundaraðstöðu og
veitingastaður. Einnig verður allt
að tvö hundruð manna veislu-
salur til útleigu með tilheyrandi
aðstöðu og rýmum. Salinn
verður ýmist hægt að stúka
niður fyrir smærri samkomur
eða opna í eina heild fyrir stærri
veislur.
Flott hús í fallegu umhverfi
Ný og bætt aðstaða gjörbreytir
allri félagsaðstöðu og rekstri
klúbbsins og styrkir stoðir
klúbbsins. Kylfingar og gestir
golfvallarins eiga án efa eftir
að njóta þessa nýja húss þegar
þeir heimsækja Garðavöll en
húsið er stórt og tignarlegt og
sómir sér vel í fallegu umhverfi
vallarins.
Félagsmenn unnu í sjálfboða-
vinnu við að reisa húsið
„Við höfðum að leiðarljósi
að vinna alla áætlanagerð
af kostgæfni þannig að ekki
yrði farið fram úr áætluð-
um byggingarkostnaði eða
verktíma. Það hefur tekist.
Leitað var til verktaka hér
á Akranesi um að koma að
framkvæmdinni og einnig hafa
félagsmenn í Golf klúbbnum
Leyni verið duglegir að leggja
hönd á plóg við byggingu
hússins í sjálfboðavinnu. Þar
hefur gamli félagsandinn verið
allsráðandi líkt og í ungmenna-
félögunum forðum,“ segir
Guðmundur Sigvaldason, fram-
kvæmdastjóri Leynis aðspurður.
Glænýr veitingastaður
Leynir hefur síðan samið við
Veitingastaðinn Galitó um
veitingasölu í húsinu og rekstur
og hér verður opnaður nýr
veitingastaður, Galitó Bistró
Cafe, um leið og húsið verður
vígt formlega nú í lok apríl.
Hyggja á opnun um mánaða-
mótin
„Garðavöllur kemur vel undan
vetri og styttist í opnun
vallarins, jafnvel fyrir mánaða-
mótin apríl/maí. Við bjuggum
við það lúxusvandamál í vetur
að það var ekkert eða lítið
frost í jörðu sem gerði það að
verkum að völlurinn er í góðu
ásigkomulagi. Nú erum við hins
vegar farin að undirbúa slátt
og fyrstu sumarstarfsmenn eru
mættir til vinnu.“
Mót á árinu
Íslandsmótið í holukeppni verður
haldið á Garðavelli um miðjan
júní. Nokkur önnur stærri mót á
vegum Golfsambands Íslands
verða auk þess á árinu. Bók-
anir kylfinga, hópa og fyrir-
tækja hafa verið afar góðar og
mikil tilhlökkun og bjartsýni með
sumarið hjá stjórnendum Golf-
klúbbsins Leynis.
Golfklúbburinn Leynir er
staðsettur á Garðavelli, 300
Akranesi.
Nánari upplýsingar má nálgast
á leynir.is
Fylgstu með okkur á Facebook:
Golfklúbburinn Leynir
Sími: 896-2711