Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 34
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Golfparadísin Hellishólar Mikil uppbygging hefur átt sér stað á golfvellinum Hellishólum undan farin ár. Víðir Jóhannsson er þar eigandi og rekstraraðili. „Þegar ég tók við 2004 var hér 9 holu golfvöllur ásamt nokkrum sumarhúsum. Síðan þá hefur verið mikil uppbygging og í dag er á Hellishólum 36 herbergja hótel, 15 herbergja gistiheimili, 24 sumarhús, veitingasalur fyrir 150 manns, leiksvæði fyrir börn, veiðivatn, tjaldsvæði þar sem yfir 60 hjólhýsi hafa fasta setu ásamt stóru tjaldsvæði fyrir þá sem vilja gista stutt. Einnig eru 2 baðhús fyrir gesti okkar ásamt glæsilegum 9 holu golf­ velli,“ segir Víðir. Hvernig er að reka golfvöll úti á landsbyggðinni? „Frá 2004 til 2008 endurbætti ég golfvöllinn og gerði hann að glæsilegum 9 holu golfvelli. Mikið var um golfmót á vegum GSÍ og voru afrekskylfingar okkar hér með æfingabúðir ár eftir ár. Golf­ völlurinn þótti erfiður og sennilega einn af erfiðustu golf­ völlum landsins. Árin 2008 til 2010 stækkaði ég golfvöllinn og gerði hann að 18 holu golfvelli ásamt æfingasvæði og einnig lítinn par 3 völl. Því var hér 18 holu völlur frá árinu 2010 til 2018. Í fyrra ákvað ég svo að breyta vellin­ um aftur í 9 holu völl. Það fylgir gríðarlegur kostnaður því að reka 18 holu golfvöll. Auðvitað er sárt að þurfa að draga svona saman og horfa á eftir gríðalegri vinnu og peningum við uppbyggingu 18 holu golf­ vallar og fara niður í 9 holur, en þar liggja ýmsar ástæður á bak við.“ Sér ekki eftir neinu „Klúbburinn okkar á Þverár­ golfvelli er frekar lítill, einungis 60 meðlimir. Því þurftum við að treysta á golfmót og auglýsingar ásamt styrktar­ aðilum til að reka hér 18 holu golfvöll. Sú stjórn sem var hjá GSÍ var mikill stuðningsaðili við golfklúbba á landsbyggðinni, en eftir að skipt var um stjórn fyrir örfáum árum hefur áhersla nýrrar stjórnar ekki verið eins. Því misstum við af stórum golfmótum og æfingabúðum frá Golfsambandi Íslands. Þessi stuðningur, sem var forsendan fyrir rekstri golfklúbbsins, hvarf og því var ekkert annað í stöðunni en að fara til baka og gera golfvöllinn að 9 holu velli aftur. Ég sé ekki eftir neinu og bý að mikilli reynslu í rekstri golfvalla.“ Er golfíþróttin á villigötum? „Engu að síður er golfvöllurinn núna mjög skemmtilegur. Við erum búin að gera hann léttari og þægilegri fyrir hinn almenna golfara. Allavega sjáum við núna brosandi andlit og fáum mikið hrós frá golfurum. Einnig er það mikið umhugsunarefni hvort golfíþróttin sé á villigötum með 18 holu golfvöllum þar sem það tekur heillangan tíma að spila 18 holur og margir kjósa að eyða frítíma sínum meira með fjölskyldunni. 9 holu golf­ hringur tekur ekki nema um 2 klukkustundir á meðan 18 holur taka 4–5 klukkustundir.“ Golfvöllurinn á Hellishólum er alger fjölskylduparadís „Árið 2018 var mikið rigningarár og var alls staðar mikill sam­ dráttur í golfi á Íslandi. Ég vona svo sannarlega að 2019 verði okkur Íslendingum gott ár í veðri og vindum og verði golfíþróttinni styrkur í betri aðsókn í golf. Golfíþróttin er mikil fjölskylduíþrótt og góð útivist fyrir alla og mikil heilsu­ bót. Vegna þess að Hellishólar eru mikil fjölskylduparadís er hér margir ferðamenn og fjöldi Íslendinga sem gistir hér á hótelinu, í sumarhúsum eða í eigin hjólhýsum og tjöldum og spila golf,“ segir Víðir. Hellishólar ehf. – Fljótshlíð – Suðurlandi Sími: 487-8360 Netpóstur: hellisholar@hellisholar.is Víðir lætur gosið í Eyjafjallajökli, 2010, ekki stoppa sig í að spila golf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.