Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 34
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Golfparadísin
Hellishólar
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á golfvellinum Hellishólum undan farin
ár. Víðir Jóhannsson er þar
eigandi og rekstraraðili. „Þegar
ég tók við 2004 var hér 9 holu
golfvöllur ásamt nokkrum
sumarhúsum. Síðan þá hefur
verið mikil uppbygging og í dag
er á Hellishólum 36 herbergja
hótel, 15 herbergja gistiheimili,
24 sumarhús, veitingasalur fyrir
150 manns, leiksvæði fyrir börn,
veiðivatn, tjaldsvæði þar sem
yfir 60 hjólhýsi hafa fasta setu
ásamt stóru tjaldsvæði fyrir
þá sem vilja gista stutt. Einnig
eru 2 baðhús fyrir gesti okkar
ásamt glæsilegum 9 holu golf
velli,“ segir Víðir.
Hvernig er að reka golfvöll úti
á landsbyggðinni?
„Frá 2004 til 2008
endurbætti ég golfvöllinn og
gerði hann að glæsilegum
9 holu golfvelli. Mikið var um
golfmót á vegum GSÍ og voru
afrekskylfingar okkar hér með
æfingabúðir ár eftir ár. Golf
völlurinn þótti erfiður og
sennilega einn af erfiðustu golf
völlum landsins. Árin 2008 til
2010 stækkaði ég golfvöllinn og
gerði hann að 18 holu golfvelli
ásamt æfingasvæði og einnig
lítinn par 3 völl.
Því var hér 18 holu völlur
frá árinu 2010 til 2018. Í fyrra
ákvað ég svo að breyta vellin
um aftur í 9 holu völl. Það fylgir
gríðarlegur kostnaður því að
reka 18 holu golfvöll. Auðvitað
er sárt að þurfa að draga
svona saman og horfa á eftir
gríðalegri vinnu og peningum
við uppbyggingu 18 holu golf
vallar og fara niður í 9 holur, en
þar liggja ýmsar ástæður á bak
við.“
Sér ekki eftir neinu
„Klúbburinn okkar á Þverár
golfvelli er frekar lítill, einungis
60 meðlimir. Því þurftum
við að treysta á golfmót og
auglýsingar ásamt styrktar
aðilum til að reka hér 18 holu
golfvöll. Sú stjórn sem var hjá
GSÍ var mikill stuðningsaðili við
golfklúbba á landsbyggðinni,
en eftir að skipt var um stjórn
fyrir örfáum árum hefur áhersla
nýrrar stjórnar ekki verið eins.
Því misstum við af stórum
golfmótum og æfingabúðum
frá Golfsambandi Íslands. Þessi
stuðningur, sem var forsendan
fyrir rekstri golfklúbbsins,
hvarf og því var ekkert annað
í stöðunni en að fara til baka
og gera golfvöllinn að 9 holu
velli aftur. Ég sé ekki eftir neinu
og bý að mikilli reynslu í rekstri
golfvalla.“
Er golfíþróttin á villigötum?
„Engu að síður er golfvöllurinn
núna mjög skemmtilegur. Við
erum búin að gera hann léttari
og þægilegri fyrir hinn almenna
golfara. Allavega sjáum við
núna brosandi andlit og fáum
mikið hrós frá golfurum. Einnig
er það mikið umhugsunarefni
hvort golfíþróttin sé á villigötum
með 18 holu golfvöllum þar sem
það tekur heillangan tíma að
spila 18 holur og margir kjósa
að eyða frítíma sínum meira
með fjölskyldunni. 9 holu golf
hringur tekur ekki nema um 2
klukkustundir á meðan 18 holur
taka 4–5 klukkustundir.“
Golfvöllurinn á Hellishólum er
alger fjölskylduparadís
„Árið 2018 var mikið rigningarár
og var alls staðar mikill sam
dráttur í golfi á Íslandi. Ég
vona svo sannarlega að 2019
verði okkur Íslendingum gott
ár í veðri og vindum og verði
golfíþróttinni styrkur í betri
aðsókn í golf. Golfíþróttin er
mikil fjölskylduíþrótt og góð
útivist fyrir alla og mikil heilsu
bót. Vegna þess að Hellishólar
eru mikil fjölskylduparadís er
hér margir ferðamenn og fjöldi
Íslendinga sem gistir hér á
hótelinu, í sumarhúsum eða í
eigin hjólhýsum og tjöldum og
spila golf,“ segir Víðir.
Hellishólar ehf. – Fljótshlíð –
Suðurlandi
Sími: 487-8360
Netpóstur:
hellisholar@hellisholar.is
Víðir lætur gosið í Eyjafjallajökli, 2010,
ekki stoppa sig í að spila golf.