Skessuhorn - 29.04.1999, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
jatssunu^
Ahorfendurfylgjastflestir augljóslega af athygli með myndinni „You got m@il, “ sem sýnd var íFélagsheimilinu Klifi.
Lionsklúbbur Ólafsvíkur gefur kvikmyndavél
„Bíó“ í Snæfellsbæ
komið til að vera
Félagsheimilinu á Klifi, Ólafsvík,
var með formlegum hætti afhent
síðastliðið sunnudagskvöld kvik-
myndasýningarvél til eignar.
Það var formaður Lionsklúbbs
Ólafsvíkur, Jón Guðmundsson,
sem afhenti bæjarstjóra Snæ-
fellsbæjar, Kristni Jónassyni
gjafabréf því til staðfestingar.
Öllum þingmönnum Vestur-
lands var boðið að vera við firum-
sýninguna.
Það ríkti sannkölluð bíóstemm-
ing í Snæfellsbæ þennan dag en
unga kynslóðin fjölmennti á for-
sýningu á Walt Disney-myndinni
„Mulan“. Sýningarstjóri verður
fýrst um sinn Lionsmaðurinn
Emanúel Ragnarsson.
Um kvöldið fór síðan fram form-
leg afhending tækjabúnaðarins með
stuttri athöfn. Við það tækifæri bað
formaður Framfarafélagsins í Snæ-
fellsbæ, Stefán Jóhann Sigurðsson,
um orðið og færði Lionsmönnum
viðurkenningarskjal og þakkaði
Jón Guðmundsson formaður Lionsklúbbs Olafsvíkur afhendir Kristni Jónassyni
bœjarstjóra Snœfellsbœjar gjafabréf jyrir kvikmyndasýningarvél.
þeim fyrir framtak þeirra.
A árum áður voru kvikmynda-
sýningar í gamla félagsheimilinu en
eldri kynslóð íbúa býr enn yfir ljúf-
um minningum þegar Ottó heitinn
Árnason stjórnaði kvikmyndasýn-
ingum um langt árabil.
Félagsheimilið kostar sjálft upp-
semingu tækjabúnaðarins.
Ekki þarf að efast um að þing-
menn Vesturlands hafi notið þess
að taka sér hlé frá kosningaamstr-
inu að undanförnu og skemmt sér
konunglega með íbúum Snæfells-
bæjar á frumsýningu myndarinnar
„You’ve got m@il“ með stórleikur-
unum Meg Ryan og Tom Hanks.
-EMK-
Hótel á Sandi
Fyrirhuguð er bygging hótels á
Hellssandi en hlutafjársöfnun til að
fjármagna verkið stendur nú yfir.
Að sögn Skúla Alexanderssonar
fyrrverandi alþingismanns gengur
sú söfnun vonum framar og hafa
borist hlutafjárloforð sem gefa til
kynna að af framkvæmdum verði.
Aætlanir eru uppi um að hótelið
taki til starfa eftir eitt ár. Stofh-
fundur verður haldinn fimmtudag-
inn 29. apríl á Hellisandi.
EMK
Skúli Alexandersson.
20. apríl, kl. 14.10 - Sveinbarn -
Þyngd: 3875 - Lengd 49 cm - For-
eldrar: Rannveig Sigurjónsdóttir
og Bergsteinn Metúsalemsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Soffía Þórð-
ardóttir.
Nýfæddir Vesdendingar eru
boðnir velkomnir í heiminn um
leið og nýbökuðum foreldrum
eru færðar hamingjuóskir.
17. apríl 1999 í Arendal í Noregi -
Sveinbarn. Stóra systir, Guðný
Dís, heldur á bróður sínum á
myndinni. Foreldrar: Herdís Hall-
dórsdóttir og Jón Þór Friðgeirsson
frá Borgarnesi.
Leiðrétting
Allir Skagamenn þekkja þá
sómamenn Jóhannes Eyleifs-
son og Skarphéðin Árnason
og hafa þar af leiðandi ekki
tekið mark á ruglinu í blaða-
manni Skessuhorns í síðasta
tölublaði. Fyrir aðra sem ekki
þekkja mennina skal það tekið
fram að rætt var við Skarp-
héðinn Árnason og er myndin
sem fylgdi spjallinu að sjálf-
sögðu af honum.
K.K.
Ohentugt bílastæði
Þessi bifreið hafnaði í heldur
óhentugu stæði skammt frá
Iþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
síðastliðinn sunnudag. Að sögn
lögreglunnar í Borgarnesi vildi
óhappið þannig til að tveir bílar
voru að koma út af stæði sinnhvoru
megin götunnar, samtímis og öku-
maður annarar bifreiðarinnar
sveigði snöggt til hliðar með þeim
afleiðingum sem sjást á myndinni.
Ökumaður hinnar bifreiðarinnar
forðaði sér burt af vettvangi að
sögn lögreglu. Þrír menn voru í
bílnum sem hafhaði ofan á stein-
veggnum. Þeir voru allir í beltum
og sluppu ómeiddir.
Mytid: G.E.
Stóra atvinnuvegasýningin í Stykkishólmi
Sýningarsvæðið
að fyllast
Að sögn Valgerðar Laufeyjar
Guðmundsdóttur framkvæmda-
stjóra Atvinnuvegasýningarinnar
sem haldin verður í Stykkishólmi
18. - 20. júní nk. gengur undirbún-
ingur sýningarhaldsins vel. „Kynn-
ingin hefur farið mjög vel af stað.
Sveitarfélög, stofhanir, fyrirtæki og
fólk í hverskonar atvinnurekstri á
Vesturlandi hafa sýnt mikinn
áhuga.Við erum langt komin með
að fylla sýningarsvæðið en þegar
hafa um 60 aðilar skráð sig til þátt-
töku,“ sagði Valgerður.
Nú er í gangi samkeppni um
nafn og tákn (merki) fyrir sýning-
una og eru í boði vegleg verðlaun
sem gefin eru af fyrirtækjum í
Stykkishólmi. Nafnið og merkið
skulu tengjast Vesturlandi og er
skilafrestur 30. apríl. Laugardaginn
8. maí, verður síðan námskeið um
markaðsmál fyrir þátttakendur sýn-
ingarinnar og aðra sem áhuga hafa.
Hafharsvæðið á Akranesi.
Akraneshöfti
Sjóvöm og endurbætur
á aðalhahiargarðinum
Tilboð bárust firá átta aðilum í
sjóvöm og endurbætur á aðal-
hafhargarðinum á Akanesi
Suðurverk er með lægsta tilboð-
ið en það hljóðar upp á kr.
14.646.250 eða 67.9% af áætluðum
kosmaði. Suðurverk er einnig með
frávikstilboð upp á kr. 12.784.000
Önnur tilboð: Ræktunarsam-
band Flóa og Skeiða kr. 15.658.000
(72.6%) Klæðning hf. kr.
18.886.000 (87.6%) Þróttur ehf. kr.
20.000.000 (92.7%) Norðurtak ehf
kr. 21.378.000 (99.2%) Friðgeir V.
Hjaltalín kr. 22.107.574 (102.5%)
Bjarni Vigfússon kr. 27.534.000
(127.7%) Skóflan hfkr. 30.138.000
(138.8%). Skóflan hf. er einnig
með tvö ffávikstilboð, annað hljóð-
ar upp á kr. 26.447.000 og hitt kr.
28.187.000.
K.K