Skessuhorn - 29.04.1999, Qupperneq 27
SSEiísUKOEKI
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
27
VerMaunahafar í skeifukeppninni ásamt lœrimeistara sínum; Svanheiíi Hall Myndir: G.E.
Blakað í páskafm
Það er komin hefð á blakmót í
Grandarfirði laugardag íyrir páska
þegar framhaldsskólafólkið af
staðnum kemur heim í páskaffí.
Mikill blakáhugi er í Grandarfirði
einkum meðal kvenna og þar er
starfandi áhugasamur blakklúbbur
er nefnir sig Sörarnar. Þær efndu
til óformlegs blakmóts laugardag
fyrir páska þar sem sex lið háðu
keppni. Fimm kvennalið og eitt
karlalið og keppm allir við alla.
Keppikeflið var að sigra karlaliðið
en þrátt fyrir hetjulega baráttu
kvennaliðanna og ótvíræðan stuðn-
ing áhorfenda tókst karlaliðinu að
merja sigur.
GK
Skallaginmur fær Leiftur
Skallagrímur hafnaði í öðra sæti
E-riðils í deildarbikarkeppninni í
knattspyrnu með 12 stig úr fimm
leikjum. IBV varð í fyrsta sæti rið-
ilsins. í sextán liða úrslitum mæta
Borgnesingar Leiftri og er leikur-
inn á Leiknisvelli laugardaginn 1.
maí kl. 15.00.
G.E.
Skeifukeppni Bændaskólans á Hvanneyri
Sigríður Kristín sigurvegari
Valdimar blaðatnaHur frá Morgunblaóinu veitir SigríSi bikarinn eftirsótta.
Hinn árlegi skeifudagur Bænda-
skólans á Hvanneyri var að vanda
haldinn á sumardaginn fyrsta.
Skeifudagurinn er nokkurs kon-
ar uppskeruhátíð hestamanna í
Bændaskólanum. Þá sýna nem-
endur í hrossarækt árangurinn af
námi sínu en hluti þess er að
temja eitt trippi yfir veturinn. Sá
sem nær bestum árangri hlýtur
hina eftirsóttu Morgunblaðs-
skeifu en einnig er Eiðfaxabikar-
inn veittur þeim sem skarar ffam
úr í hirðingu á hesti sínum. Þá
veitir félag tamningamanna
ásetuverðlaun þeim knapa sem
þykir bera sig best.
Aður en sjálf skeifukeppnin hófst
hélt hestamannafélagið Grani gæð-
ingakeppni sem var öllum opin.
Tólf keppendur
Tólf nemendur tóku þátt í skeifu-
keppninni að þessu sirmi en það er
með færra móti. Astæðan er ein-
faldlega sú að nemendur í Bænda-
deild skólans eru nokkra færri en
verið hefur undanfarin ár. Sigur-
vegarinn í skeifukepnninni varð
Sigríður Kristín Sverrisdóttir með
79,5 stig. I öðra sæti varð Þór Jó-
steinsson með 77 stig. Gústaf As-
björnsson varð í þriðja sæti með 69
stig, Arnheiður D. Einarsdóttir í
þvi fjórða með 63 stig og í fimmta
sæti varð Inga Hrönn Flosadóttir
með 61 stig. Sigríður Kristín fékk
einnig Eiðfaxabikarinn að launum
fyrir góða hirðingu og Asetuverð-
laun Félags tamningamanna hlut
Þór Jósteinsson. Það skyggði að
vísu nokkuð á verðlaunaafhending-
una að enginn var mættur til að
veita Asetuverðlaunin og þau ekki
komin á staðinn. G.E.
Skólamót sveitaskólanna
Það var mikið um að vera í
Kleppjárnsreykjaskóla þriðjudag-
inn 20. apríl sl. en þar voru saman-
komnir um 230 nemendur úr átta
sveitaskólum á Vesturlandi og
leiddu saman hesta sína í hinum
ýmsu íþróttagreinum. Krakkarnir
era úr 4 .- 7. bekk Andakílsskóla,
Kleppjárnsreykjaskóla, Varma-
landsskóla, Heiðarskóla, Lauga-
skóla, Laugagerðisskóla, Lýsuhóls-
skóla og Grannskólanum í Búðar-
dal. Þessi aldurshópur skólanna
hittist tvisvar sinnum á vetri og í
fyrra sinnið er keppt í ffjálsum
íþróttum, fótbolta og fleiri greinum
en í síðara skiptið er keppt í sundi,
körfubolta, teikningu og fleiru.
Eldri bekkir skólanna hafa einnig
samskipti sín á milli með svipuðu
sniði en þeirra dagur endar venju-
lega á miklum dansleik.
Rúsínan í pylsuendanum á skóla-
mótinu á Kleppjárnsreykjum á
þriðjudaginn var heimsókn Helga
Ólafssonar stórmeistara í skák sem
tefldi fjöltefli við upprennandi
skáksnillinga skólanna.
Að sögn Guðlaugs Óskarssonar
skólastj óra Kleppjárnsreykjaskóla
era skólamótin vinsæl hjá nemend-
um og kærkomin tilbreyting frá
hefðbundinni stundaskrá.
G.E.
ÍA mætir FH
Skagamenn gerðu markalaust leikjum og gerði eitt jafntefli. I
jafntefli gegn Víkingi í síðasta sextán liða úrslitum keppninnar
leiknum í D-riðli deildarbikar- mæta Skagamenn FH-ingum.
keppninnar í knattspyrnu síðastlið- Leikurinn fer fram á Akranesi laug-
inn fimmtudag. IA er í efsta sæti ardaginn 1. maí kl. 14.00.
riðilsins með 13 stig eftir fiinm G.E.
leiki en liðið sigraði í fjóram
Nýr þjálfari körfuknattleiksliðs ÍA
Brynjar Karl ráðinn
Brynjar Karl Sigurðsson hefur
verið ráðinn þjálfari meistaraflokks
IA í körfuknattleiks í stað Alexand-
ers Ermolinski sem hefur þjálfað
liðið síðustu ár. Brynjar lék í nokk-
ur ár með Skagamönnum og sá þá
um þjálfun yngri flokka en þetta er
framraun hans sem þjálfari í úrvals-
deild. Síðustu tvö ár hefur Brynjar
leikið með Val og verið við nám í
Bandaríkjunum. Að sögn Sigurðar
Sverrissonar formanns körfuknatt-
leiksdeildar LA verður leikmanna-
hópurinn svipaður og í fyrra nema
að ekki er reiknað með að Bjarni
Magnússon leiki með liðinu.
Einnig er ljóst að enginn útlend-
ingur verður með Skagamönnum
næsta vetur, að minnsta kosti ekki
fyrir áramót. „Það er ekkert leynd-
armál að fjárhagsstaða deildarinnar
hefur lengi verið erfið og við ædum
að mæta því með aðhaldi á öllum
sviðum. Við ætlum að reka þetta
með þeim formerkjum að hér er
öllum velkomið að spila körfubolta
en þeir fá ekki greitt fyrir það.
Annað hvort er að gera þetta svona
eða að körfuknatdeiksdeildin mun
smám saman lognast útaf,“ sagði
Sigurður. Harrn sagði enn fremur
að sögusagnir um að David Bevis
væri á leiðinni aftur á Skagann
væra ekki á rökum reistar.
Æfingar era þegar hafnar hjá IA
liðinu og binda menn vonir við að
tefla ffarn sterku liði þrátt fyrir
auraleysi.
G.E.
Parí
hestamennskunni
Það vill þannig tíl að þau Sigríð-
ur og Þór sem höfnuðu í tveim-
ur efstu sætunum í Skeifukeppn-
inni á Hvanneyri síðastliðinn
fimmtudag búa saman og má því
segja að öll helstu verðlaun
dagsins hafi farið inn á eitt
heimili.
Þegar skóla lýkur fara þau beint í
búskapinn að Skriðu í Hörgárdal
þar sem þau taka við kúa og hrossa-
búskap að sögn Sigríðar. Þau hafa
bæði umtalsverða reynslu af hesta-
mennsku en Þór hefur stundað
tamningar í áraraðir. Sjálf segist
Sigríður ekki hafa mikla reynslu af
tamningum en hafa stundað útreið-
ar frá barnæsku.
G.E.
Hið sigursæla par. Þór Jósteinsson og Sig-
ríður Kristín Sverrisdóttir á reiðskjótum
sínum. Mynd: G.E.