Skessuhorn - 13.07.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 13. JULI 2000
SementsgjaU yfir
allan neðrí Skagann
framkvæma mjög skilyrta leit að
veiðileyfum við sitt hæfi.
Með veflausnum Tölverts munu
starfsmenn Landssambands veiði-
félaga geta viðhaldið vefnum sjálfir
á mjög einfaldan hátt í gegnum
hvaða nettengdu tölvu sem er, bætt
við vefsíðum, breytt og bætt við
texta þeirra og myndum. Einnig
munu þau veiðifélög sem þess óska
geta smíðað sína eigin vefsíðu um
sín veiðisvæði þar sem hægt verður
að fylgjast með veiðitölum, fræðast
um veiðistaði og margt fleira.
Ætlunin er að vefurinn opni
næsta haust en hann mun eftir opn-
un hans verða vistaður hjá Islenskri
upplýsingatækni í Borgarnesi.
MM
Þór Þorsteinsson eigandi Tölvert og Óðinn Sigþórsson formaður Landssambands veiði-
félaga undirrita samninginn um gerð vefjarins angling.is Mynd MM
angling.is:
Vcfur Landssambands
veiðifélaga gerður hjá
Tölvert í Borgamesi
Landssamband veiðifélaga og
hugbúnaðarfyrirtækið Tölvert í
Borgamesi rituðu nýlega undir
samning um smíði nýs auglýs-
inga- og upplýsingavefjar um
lax- og silungsveiði á Islandi.
Vefnum, sem verður til að byrja
með á íslensku og ensku, er ætlað
að birta almennar upplýsingar og
fréttir af lax- og silungsveiði á Is-
landi auk upplýsinga um öll veiði-
svæði á landinu sem telja hátt á
annað hundrað. Þau veiðifélög sem
þess óska munu geta viðhaldið lista
yfir laus veiðileyfi og verður gest-
um vefsins þannig mögulegt að
Styrkur úr
Þróunarsjóði
Þrír skólar á Vesturlandi
hljóta styrki úr þróunarsjóði
Grunnskóla skólaárið 2000-
2001. Skólarnir eru Grunda-
skóli á Akranesi, Grunnskólinn í
Grundarfirði og Andakílsskóli í
Borgarfirði. Grundaskóli fær
styrk að upphæð 300.000 í verk-
efnið „Móðurmálsnám barna
með málaerfiðleika. Andakíls-
skóli fær 250 þúsund króna
styrk fyrir „Sjálfbæra lífsleikni”
og Grunnskólinn í Grundarfirði
og foreldrahópurinn tilvera fá
350 þúsund króna styrki til að
þróa kennslu í lífsleikni í sam-
vinnu við foreldra.
GE
Á slóðir
forfeðranna
Nú í vikunni kom til Stykkis-
hólms ungur Vestur-íslending-
ur Adam Sommerfeld að nafni.
Adam er einn þeirra ungmenna
sem þátt taka í Snorraverkefn-
inu sem er samstarfsverkefni
Norræna félagsins og Þjóð-
ræknisfélags Islendinga. Ung-
mennin dvelja á landinu í þrjár
vikur og er þeim útveguð vinna
á meðan á dvölinni stendur.
Adam Sommerfeld á ættir
sínar að rekja til Stykkishólms
og næstu þrjár vikurnar gefst
honum tækifæri til að kynnast
heímkynnum forfeðranna. GE
íbúar á neðri Skaganum voru
margir hverjir ósáttir þegar
Sementsverksmiðjan hf skipaði
upp 6000 tonnum af sements-
gjalli í suð-austanátt og rigningu
26. - 28. júní. Astæðan er sú að
þetta sama gjall fauk yfir stórt
svæði á neðri Skaganum og sat
eftir það sem fastast, m.a. á bíl-
um fólks.
Sá sem lenti hvað verst í því er
eigandi Bílvers á Akranesi, Reynir
Sigurbjörnsson. Reynir er með
bæði bílasölu og verkstæði á Akurs-
brautinni, en hann er með umboð
fýrir Honda og Peugeot. Hann seg-
ir það hafa verið sérlega bagalegt að
fá gjallrykið yfir nýju bílana sem
stóðu fyrir utan verkstæðið. „Þetta
er alveg skelfilegt. Þeir keyra beint
framhjá hérna hjá okkur og gjall-
rykið fer yfir allt. Auðvitað var
maður ekkert ánægður, af og frá, en
starfsmenn Sementsverksmiðjunn-
ar komu hérna á mánudeginum og
þrifu nýju bílana svo ég ákvað að
láta þetta bara kyrrt liggja,”
Að sögn Þórs Tómassonar, efna-
verkfræðings hjá Hollustuvernd
ríkissins, er ekki algengt að gjall
sem þetta sé flutt til Sementsverk-
smiðjunnar. „Svona viðbótargjall er
einungis keypt ef verksmiðjan ann-
ar ekki eftirspurninni eftir sementi
með eigin gjalli eins og nú er að
gerast, þenslan í þjóðfélaginu er svo
gríðarleg um þessar mundir.” Þór
segir að þetta geti jafnvel orðið í
síðasta sinn sem nauðsynlegt sé að
kaupa viðbótargjall. „Nú er verið
að byggja sementssíló í Helguvík
sem verður þá væntanlega í sam-
keppni við Sementsverksmiðjuna á
Akranesi. Miðað við að þeir aðilar
komi til starfa finnst mér ólíklegt
að aftur þurfi að kaupa sementsgjall
og flytja það upp á Akranes með
þessum hætti.”
Gunnar H. Sigurðsson, fram-
leiðslu- og viðhaldsstjóri hjá Sem-
entsverksmiðjunni hf, tekur undir
það sem Þór segir, en bætir við að
ef til þess kæmi að kaupa þyrfti við-
bótargjall yrði tekinn minni farmur
og reynt yrði að losa hann á sem-
entsbryggjunni en ekki á aðal-
bryggjunni eins og nú var gert.
„Við reiknum ekki með að þurfa
að flytja inn fleiri farma af sements-
gjalli á þessu ári. Við tókum inn
þennan stóra farm núna í von um
að sleppa við það.” Hann segist þó
ekki geta spáð fýrir um hvenær
kaupa þurfi meira gjall og bendir á
að það velti allt á því hversu lengi
þenslan heldur áfram. “Þetta er
mjög sjaldgæft og gerist einungis
þegar við náum ekki að framleiða
nóg gjall til sementsframleiðslu íyr-
ir markaðinn. Við ætlum okkur
jafnvel að reyna að stytta hjá okkur
ofnstoppin sem leiðir þá af sér
aukna gjallframleiðslu. Við byrjuð-
um að skipa upp á mánudeginum í
rjómablíðu, en á þriðjudeginum
kom suð-austanátt, rok og rigning,
sem er hið versta veður upp á þetta
að gera. Þá var hins vegar ekkert
um annað að ræða en að halda á-
fram og ljúka uppskipun sem fyrst.
Okkur þykir það auðvitað mjög
leiðinlegt að þetta skuli hafa valdið
fólki óþægindum og reynum að að-
stoða þá sem til okkar leita eftír
föngum.” SÓK
Tankar Semetitsverksmiðjunnar á Akranesi.
Höfrungur III og Helga María:
Túrar upp á tugi milljóna króna
Helga María landaði aflafyrir 60 milljónir í síðustu viku.
Frystitogarinn Höfrungur III
landaði á mánudagsmorgun um
500 tonnum af fullunnum afurðum
eftir 34 daga veiðiferð. Heildarafla-
verðmæti nam um 90 milljónum
króna. Uppistaða í aflanum var
karfi, grálúða og þorskur.
Þá landaði frystitogarinn Helga
María AK 16 snemma í síðustu
viku afla að verðmæti 60 milljónir
króna eftir tæplega mánaðar útivist.
Aflinn var blandaður; úthafskarfi,
þorskur og ufsi auk svokallaðs
„heimakarfa”.
-SSv.
Þær létu
dmuminn
rætast!
Þessar fjórar stelpur hafa
nú um nokkurt skeið sótt
söngtíma til Reykjavíkur hjá
Siggu Beinteins og Maríu
Björk. Þetta væri ekki svo
athyglisvert nema af því að
þær búa allar í Snæfellsbæ og
hver á sínum staðnum innan
bæjarfélagsins, þ.e. Breiðu-
vík, Hellissandi, Olafsvík og
Rifi. Þetta er ekki beint lið-
ur í sameiningu á svæðinu en
gefúr góðan tón um að sam-
vinna á víða við.
A inyndinni hér til vinstri
eru: f.v. Sigríður Beinteins-
dóttir, Renata Sigurbergs-
dóttir, Árný Sif Reynisdóttir,
Guðríður Þorkelsdóttir og
Elfa Björk Kristjánsdóttir.