Skessuhorn - 03.08.2000, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 3. AGUST 2000
akÚSVIIUki:
Eina graskögglaverksmiðjan á landinu
-„Treystum á íslenska bændur,” segir Sæmundur Kristjánsson
Graskögglaftamleiðsla er iðnaður
sem hefur átt nokkuð undir högg að
sækja undanfarin ár. Hér á Vestur-
landi er nú starffækt eina fyrirtækið
sem enn stundar slíka ffamleiðslu.
Fyrirtækið sem um ræðir er Fóður-
iðjan Olafsdal ehf. í Saurbæjarhreppi
en þar starfa nú í sumar 12 manns.
Fóðuriðjan var stofnuð árið 1972
að frumkvæði heimamanna. Árið
1974 ket'pti ríkið fyrirtækið og sá
það um reksturinn til ársins 1987.
Árið 1988 hugðist ríkið hætta starf-
seminni og var þá Fóðuriðjan affur
gerð að hlutafélagi í eigu heima-
manna. I dag er því fyrirtækið ein-
göngu í eigu starfsmanna, Saurbæj-
arhrepps, Búnaðarfélagsins í Saur-
bæjarhreppi og einstaklinga.
Sex aðilar þegar mest var
Framleiðsla á graskögglum hefur
mjög dregist saman á síðustu árum
hér á landi. Graskögglaverksmiðjur í
landinu voru sex þegar mest var. Auk
Fóðuriðjunnar í Ólafsdal voru starf-
ræktar verksmiðjur á Vallhólma í
Skagafirði, í Brautarholti á Kjalar-
nesi, á Stórólfshvoli við Hvolsvöll, í
Gunnarsholti á Rangárvöllum og á
Flatey í Hornafirði. Landsfram-
leiðslan, þegar mest var, var um
15.000 tonn. Aðspurður segir Sæ-
mundur Kristjánsson, ffamkvæmda-
stjóri Fóðuriðjunnar, ástæður sam-
dráttar í greininni vera margþættar.
„I fyrsta lagi eru það breyttar hey-
verkunaraðferðir og bætt tækni í
landbúnaði sem skilar bændum
meiri gæðum heimafengins fóðurs. I
öðru lagi hefur orðið samdráttur í
landbúnaði sem skilar sér í minnk-
andi effirspum eftir fóðurvöru og í
þriðja lagi hefur lækkandi kornverð í
heiminum auk afnárns kjamfóður-
tolla styrkt stöðu kjamfóðurs og
þeirra sem framleiða fóðurblöndur
úr innfluttu korni.”
Hreint gras
„Graskögglar em ekkert annað en
gras sem meðhöndlað er á ákveðinn
hátt. Grasið, aðallega vallarfoxgras
og túnvingull en einnig lítilsháttar
háliðagras, er ræktað á túnum
Fóðuriðjunnar. Það er síðan slegið,
saxað, flutt í hús og þurrkað, fínmal-
að og að endingu kögglað. Úr þessu
verður úrvalsfóður sem er auðmelt-
anlegt fyrir skepnuna”, sagði Sæ-
mundur þegar hann var inntur efdr
eðli ffamleiðsluvöru fyrirtækisins.
Staðan í dag
I sumar vinna 12 manns í Fóður-
iðjunni. „Alls em þetta sjö ársverk.
Við eram þrír til fjórir all árið en á
sumrin bætast við sumarstarfskraff-
ar”, sagði Sæmundur sem verið hef-
ur framkvæmdastjóri Fóðuriðjunnar
í 19 ár. „Undanfarin ár höfum við
ffamleitt um 1000 tonn af kögglum
á ári en ffamleiðslan verður líklega
um 1300 tonn í ár. Einnig höfum við
gert samning við Ishesta ehf. um
ffamleiðslu á heyi, allt að 500 rúll-
um. Við ffamleiðum kögglana fyrst
og fremst fyrir innanlandsmarkað en
flytjum einnig nokkuð magn út.” Að
sögn Sæmtmdar hefur Fóðuriðjan
flutt út grasköggla ffá því 1990 en þá
fór pmfusending til Grænlands. I ár
er stefht að því að um 200 tonn fari
á Grænlandsmarkað. Einnig hafa
verið sendar prafusendingar til ann-
arra Evrópulanda en enn sem komið
er hefur ekki orðið framhald á þeim
Nýr lóðs- og dráttarbátur
Hafharstjóm Akraness tiefur nú
gengið ffá kaupum á lóðs- og
dráttarbátnum Leyni en ákveðið
var seint á síðasta ári að huga að
kaupum á öflugri dráttarbát, m.a.
vegna aukinna umsvífa í Grandar-
tangahöfh, en samk/æmt samningi
annast höfhin hafnsóguþjónustu
þar. Effir undirbúning málsins var
ákveðið að ganga til samninga við
Damen shippyards í Hollandi um
kaup á bát frá þeim, en góð reynsla
er af bátum frástöðinni á Islandi.
M.a. era bátar Akraness-, Reykja-
víkur- og Akureyrarhafna og Hafh-
arsamlags Suðurnesja ýmist smíð-
aðir hjá fyrirtækinu eða sendir það-
an til samsetningar á Islandi.
Þann 18. febrúar síðastliðinn
voru samningar við Damen
shippyards undirritaðir og samn-
ingsverð bátsíns var 1.425.000 hol-
lensk gyllini. Heildarverð bátsins
með flutningi til Islands er 46,8
milljónir króna. Helmingur þess
var greiddur við undirritun samn-
ingsins og hinn helmíngurinn við
afhendingu bátsíns þann 7. júlí síð-
astliðinn.
Lengd bátsins er 16,85 metrar,
breídd 5,69 og djúprísta 2,51 metr-
ar. Ibgkraftur bátsins samkvæmt
prófunum er 12,8 tonn og gang-
hraði 10,5 sjómflur. I bátnum eru
tvær 475 hestafia Caterpillar vélar.
SÓK
Besta gjöfín fyrir nýburamæður.
Kemur í veg fyrir ótímabæra vöðvabólgu.
Brjóstagjafapúðinn er einstakur púði sem passar
þægilega um mittið og lyftir höfði barnsins og
líkama í eðlilega stöðu fyrir brjósta- og pelagjöf.
Hann kemur í veg fyrir álag á bak, herðar og handleggi og
gjafastundin verður ánægjuleg og áreynslulaus.
Púðinn er ákaflega hlýr og virkar því róandi á móður og bam.
Bijóstagjafapúðann er hægt að nota á marga vegu:
Stuðningur við sitjandi barn
Þægilegur stuðningur við kornabarn að leik
Hannes ann-
ast eftirlit við
grunnskólana
Á síðasta bæjarráðsfundi fóra
fram viðræður við forstöðumann
tækni- og framkvæmdasviðs
Akranesveitu, Þorvald Vest-
mann, um ffamkvæmdirnar við
Brekkubæjarskóla og starf effir-
litsmanns þar. Bæjarráð sam-
þykkti að óska efrir því við Akra-
nesveitu að Hannes Sigurðsson
myndi annast nauð'-vnlegt efrirlit
með framkvæmdum við grann-
skólana. Gísla Gíslasyni, bæjar-
stjóra Akraness, var falið að
ganga ffá samningum þar um.
Sœmundur Kristjámson jramkvæmdastjóri og Kjartan Jómson staifsmaður Fóðuriójunnar.
útflutningi. Fram kom í samtali
blaðamanns við Sæmund að rekstur-
inn hafi verið erfiður síðan 1990.
„Efrirspurn efrir graskögglum hefur
farið minnkandi og við höfum átt í
erfiðleikum vegna birgðasöfhunar.
Við höfum farið út í ýmsa aðra starf-
semi sem hefur bætt okkur upp erf-
iðleika í graskögglaframleiðslunni.
Tildæmis höfum við tekið að okkur
snjómokstur og aðra tækjavinnu fyr-
ir Vegagerðina og fleiri og þannig
getað nýtt betur vélakostinn. Einnig
höfum við tekið að okkur viðgerðir
og lánað aðstöðu til viðgerða til
bænda og annarra hér í nágrenn-
inu.”
Framtíðarsýn
Þrjár þeirra graskögglaverksmiðja
sem áður störfuðu hér á landi era
nýlega hættar. Aðspurður telur Sæ-
mundur að þetta muni að öllum lík-
indum auka efrirspumina effir vör-
um Fóðuriðjunnar. „Eg geri mér
vonir um að efrirspumin hjá okkur
muni aukast eitthvað vegna brott-
hvarfs hinna aðilanna. Við stefhum
að því að losna við allar birgðir í ár
og líklega getum við aukið ffam-
leiðsluna talsvert næsta sumar og
vonandi náð með því meiri rekstrar-
hagkvæmni. Við höfum mikla
möguleika á framleiðsluaukningu. I
sumar sláum við um 360 hektara en
við höfum ræktanlegt land upp í allt
að 600 hektara. Við stöndum reynd-
ar einnig ffammi fyrir því að það er
orðið óhjákvæmilegt að endurnýja
hluta vélakosts fyrirtækisins en það
er verkefni sem sinna verður í áföng-
um. Einnig hefur endurræktun túna
setið á hakanum. Það era því næg
verkefni ffamundan. Eg er tiltölu-
lega bjartsýnn á framtíðina, annars
veltur þetta allt saman á því að ís-
lenskir bændur styðji við bakið á ís-
lenskri ffamleiðslu með því að snúa
viðskiptum sínum til okkar.”
EA
Nýfæddir Vesdendingar eru
boðnir velkomnir í heiminn um
Ieið og nýbökuðum foreldrum eru
færðar hamingjuóskir.
27,'júlí kl 09:00-Meybam~Þyngd:306S
Lengd:49 cm. Foreldrar: Marzana
Kilanowska og Garðar Svanson,
Grundarfvrði. Ljósmóðir: Anna E.
Jónsdóttir. Sandra og Patrek halda á
systur sinni
2S.jiílt kl 04:42-Sveinbam-
Þyngd:4920-Lengd:S6 cm.Foreldrar:
Flrafnhildur Geirsdóttir og Viðar Héð-
imson, Borgamesi. Ljósmóðir: Ingibjörg
Th. Hreiðarsdóttir.
28. júlí kl 15:17-Meybam- 31 .júlí kl 11:21 -Meybam-
Þyngd:3140-Lengd:49 cni. Foreldrar: Þyngd:4005-Lengd:55 cm. Foreldrar:
Guðnýjóna Þórsdóttir ogAlexander Jónína Guðrún Oskarsdóttir og Halldór
Friðþjófur Kristimson, Snœfellsbœ. Ljós- Snjólaugsson, Fáskrúðsfirði. Ljósmóðir:
móðir: Anna E. Jámdóttir. Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir.