Skessuhorn


Skessuhorn - 03.08.2000, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 03.08.2000, Blaðsíða 5
§KESSUH©BKi FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000 5 Hestakallar Stundum er varla hægt annað en dást að ósvífni manna. Þvert gegn vilja sínum. Sú trega aðdáun greip mig þegar ég renndi um daginn yfir viðtal í DV við kunnasta hestamann landsins til margra ára, Sigurbjörn Báðarson. Sigurbjörn var að tala um erfiðleika hrossaút- flytjenda. Og virtist ekki standa steinn yfir steini. Einkum var það útflutningurinn til Þýskalands sem olli Sigurbirni djúpri sorg en sá útflutningur ku vera meira og minna hruninn, en hafði áður verið drýgstur tekjustofn hestakalla, enda íslenski hesturinn líklega vel við hæfi Þjóðveija - án þess ég fari að ráði lengra út í þá sálma. Þótt Sigurbjörn fullyrti að markaðir í öðrum löndum væru skikkanlega á vegi staddir og mögu- leikar á að flytja út fleiri hross til ýmissa landa virt- ist hagur hrossaútflytjenda standa og falla með Þýskalandsmarkaðnum og skal ég ekki efast um það. Og nú fyrst sá markaður var nánast orðinn að engu var útlit fyrir að hrossabændur þyrftu sumir hveijir að draga saman seglin. Jafnvel - sem guð forði! - fækka hrossum. Jafnvel - sem guð forði ennþá frekar! - snúa sér að einhveiju öðru. Það var skelfileg tilhugsun, enda geta hestakallar sem kunnugt er ekki hugsað sér neitt annað en vera hestakallar. Þó svo sem þeim þyki sumum hveij- um ekkert vænt um hesta. Þó svo þeir hirði sumir hveijir illa eða ekki um hestana sína. Svelti þá og láti standa úti í hvaða veðrum sem er. Þá eru þeir samt hestakallar og hestakallar skulu þeir vera. Og öllum öðrum hestaköllum rennur blóðið til skyld- unnar að hjálpa þeim að halda áfram að vera hesta- kallar. Svei mér þá ef hestaköllum þykir ekki ennþá vænna um aðra hestakalla en sjálfa hestana. Að minnsta kosti um fyrirbragðið hestakall, sem þeir telja vera göfugast hlutskipti á landinu. Enda virkilega göfug iðja - að ala upp lítil hross til að flytja út handa þýskum rössum að sitja. Og því var sannkölluð vá fyrir dyrum, sagði Sigurbjörn, þegar hyllti undir að sumir hestakallar yrðu jafnvel að hætta að vera hestakallar. Eitthvað varð að gera! En þegar neyðin er stærst er hjálpin stundum næst. Sigurbjörn hafði sem sé komið auga á ráð til úrbóta. Hann hafði séð björgunarhring sem varpa mætti til hestakallanna svo þeir gætu haldið áfram að vera hestakallar. Mikið lof og prís ... Eini gallinn var sá að björg- unarhringurinn var ekki í höndum Sigurbjörns sjálfs, né annarra hestakalla. Nei, björgunarhring- urinn var í höndum íslenska ríkisins. Ríkissjóður! Sigurbjöm hafði sem sé komist að þeirri niðurstöðu að það eina sem gæti bjargað hestaköllunum sem höfðu treyst á Þýskalands- markað fyrir litlu hrossin sín væri opinber aðstoð. Opinber aðstoð! Ég ætla að endurtaka þetta: Opin- ber aðstoð! Sigurbjörn vildi að hestakallar fengju opinbera aðstoð við að flytja út hrossin sín til Þýskalands. Nú er það alkunna af hveiju Þýskalandsmarkaður er hruninn. Það vita allir. Ástæðan er einfaldlega sú að íslenskir hestakallar hafa stundað í áraraðir mjög umfangsmikil fjársvik þar sem þeir hafa fals- að skýrslur um verð hestanna sem þeir hafa selt til Þýskalands til þess að sleppa við að borga af gróða sínum eðlilega tolla til þýska ríkisins, og kannski þess íslenska líka, þó ég viti það raunar ekki fyrir víst. Þetta virðist hafa verið plagsiður sem nánast allir hestakallar stunduðu sem fluttu út hross og þeir hafa ekki bitið úr nálinni með það ennþá. En öll þessi svik komust upp þá fór svo - einsog eðlilegt mátti heita - að Þjóðveijar reyndust ekki hafa lyst á að kaupa hross af íslenskum hesta- köllum um skeið. Og skal engan undra. Því harðn- ar í búi hjá hestaköllum og skal heldur engan undra. En þá rís upp Sigurbjörn Báðarson og heimtar opinbera aðstoð handa hestaköllum. Þeir hafa klúðrað sínum eigin stærsta markaði með §ár- plógsstarfsemi og tollsvikamyllu og heimta svo op- inbera aðstoð! Ríkið - og það er að segja við - eigum að fara að styrkja hestakalla sem spiluðu rassinn úr buxunum með græðgi og lögbrotum. Það er þetta sem ég á við með ósvífni. Og er þá vægt til orða tek- ið. Ég held þeir geti bara étið það sem úti frýs. Vissulega getur vel verið að einhveijir heiðarlegir hestakallar sitji nú í súpunni og verði fyrir tjóni vegna fjársvika kollega sinna, sem þeir hafa sjálfir ekki tekið þátt í. Þar á meðal kannski Sigurbjörn Báðarson; ég veit satt að segja ekkert um hans mál eða hvort hann flytur út hross til Þýskalands. En samt sem áður - hestakallar geta ekki krafist opin- berrar aðstoðar vegna glæpastarfsemi félaga sinna. Því miður - það er bara svoleiðis. Og enginn skal reyndar segja mér að allir hestakallar hafi ekki vit- að - ef þeir vildu vita - um hvernig kaupin gerðust á Þýskalandseyrinni. Að þau voru byggð meira og minna á svikum og prettum og tollsvikum. En ekk- ert gerðu þeir til að upplýsa málið. Það þurftu Þjóð- veijar að gera, en íslendingar drógu lappirnar eins og þeir mögulega gátu. Og hlupu vælandi til Guðna Ágústssonar. „Guðni, þeir eru að hrekkja okkur!“ Og íslendingar reyndu eins og þeir gátu að koma í veg fyrir rannsókn. En þegar það tókst ekki og markaðurinn er hruninn, þá er hlaupið í blöðin og heimtuð opinber aðstoð. Alveg stórmerkilegt hvað helstu karlmenni ís- lands, eins og hestakallar telja sig iðulega vera, eru gjarnan dæmalaust vælugjamir. Og ósvífnir. Þeir hafa viljað vera fullkomlega í friði fram að þessu, ekki viljað hafa nein opinber afskipti af þeirra bissniss (og nú er komið í ljós hvers vegna), en strax og bjátar á þá er farið að væla á opinbera að- stoð! Illugi Jökulsson r ATVINNA Óskum eftir að ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa í verslun og veitingastofu Hymunnar Vinnutími er umsemjanlegur Reyklaus vinnustaður Símar 430 5550 - 430 5555 - 430 5566 i 'L.I.T. 1 INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 Nýtt á söluskrá Kveldúlfsgata 26, Borgarnesi íbúð á 2. hæð, 74,8 ferm. Stofa og hol teppalagt en tvö svefnherbergi dúklögð, skápar í báðum. Eldhús dúklagt, viðarinnrétting. Baðherb. dúklagt, ljós i innrétting. Sérgeymsla og sameiginleg geymsla og i þvottahús í kjallara. Til afhendingar strax. * Verö: kr. 6.200.000 x 5 I Sólbaðsstofan Klettasól, Borgarnesi Um er að ræða rekstur (viðskiptavild), og tvo ljósalampa. Sólbaðsstofan er í fullum rekstri og til afhendingar með skömmum fyrirvara. Verð: Tilboð Halldórs< j Hvammi, Skorradal ; Svava upp á n ásamt starfslokum Þau taka á móti gestum í { skátaskálanum Skátafelli í landi Stóru-Drageyrar í Skorrdalshrepp laugardaginn 5.ágústfrá kl. 18.00 Hún Sigga mín verður 30 ára miðvikudaginn 9. ágúst og verður heima þann dag ■n\ (Hún ferhvort sem er aldrei neitt) Jónsi á Kópa -ATVINNA- RÆSTINGASTARF Laust er til umsóknar starf við ræstingar á sýsluskrifstofu og lögreglustöð í Borgarnesi. Frestur til að skila umsóknum er til 14. ágúst nk. og viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Laun eru samkvæmt uppmælingu. Upplýsingar veitir undirritaður Borgarnesi 31. júlí 2000 Stefán Skarphéðinsson ÞORGEIR & ELLERT HF. Þorgeir & Ellert hf. óskar eftir því að ráða járniðnaðarmenn til almennrar málmsmíði Nánari upplýsingar gefur V

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.