Skessuhorn - 03.08.2000, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 3. AGUST 2000
Jón Runólfsson, forstöðumaður Jónshúss í Kaupmannahöfii, um landann:
Friðlausir af fréttaleysi
þeirra er ótrúlega skemmtilegt.
Bara til dæmis sú staðreynd að
þótt menn lendi í Kaupmanna-
höfn á fimmtudegi eru þeir
orðnir friðlausir af fréttaleysi á
sunnudegi og þurfa að komast í
Moggann hvað sem tautar og
raular. Og að komast í íslenskt
sælgæti um leið - að ekki sé
minnst á eitthvað þjóðlegt eins
og kaffi og vöfflur - er hápunkt-
urinn. Islendingar virðast lítt
þjóðræknir á meðan þeir eru
heima en um leið og þeir eru
komnir út fyrir landssteinana
blossar ættjarðarástin upp. Og ef
eitthvað er um að vera sem
snertir strengi í þjóðarsálinni
bregst ekki að landinn fjölmenn-
ir, eins og t.d. um daginn þegar
SigurRós hélt hér tónleika.”
Jón Runólfsson
Danmörk hefur að vissu leyti ver-
ið eins og þeirra annað heimili,
a.m.k. í huganum, og það var því ef-
laust með nokkurri tilhlökkun sem
Jón Runólfsson söðlaði um á síðasta
ári og tók við stöðu forstöðumanns
Jónshúss og flutti í kjölfarið til
Kaupmannahafhar ásamt eiginkonu
sinni, Ingu Harðardóttur.
Umsækjendur um starfið voru á
áttunda tug talsins og tæpast hefur
það spillt fyrir möguleikum Jóns, að
þau hjón höfðu tvívegis búið í Dan-
mörku og að hann hafði víðtæka
reynslu af félagsmálum sem formað-
ur íþróttabandalags Akraness um
árabil. Jónshús er nefhilega einskon-
ar félagsmiðstöð Islendinga í Dan-
mörku - og þeir eru margir! En hve
margir? Jón svarar því.
* *
Atta þúsund Islendingar
“Nýjusm tölur sem ég hef í hönd-
unum segja okkur að nú búi um átta
þúsund íslendingar í Danaveldi, þar
af um sex þúsund á Sjálandi. Megin-
þorri þess fjölda býr í Kaupmanna-
höfh og því er oft gestkvæmt í Jóns-
húsi enda starfsemin miklu fjöl-
breyttari og viðameiri en ég gerði
mér í hugarlund áður en ég tók við
starfinu þann 1. september sl.”, seg-
ir Jón í samtali við Skessuhom.
Hann er nú staddur hér á landi í
stuttu sumarleyfi en “vertíðin” í
Jónshúsi hefst af þunga um og upp
úr miðjum ágúst.
Þau Jón og Inga bjuggu í Dan-
mörku um tæplega fimm ára skeið
frá 1970-1975 og svo aftur árið 1986
þannig að þau höfðu kynnst starf-
semi hússins fyrir margt löngu.
Jónshús fagnar því einmitt í haust að
liðin eru 30 ár frá því þessi félagsað-
staða var fyrst tekin í gagnið. Lengi
vel var það svo að sendiráðsprestur
Islands í Kaupmannahöfh hafði að-
setur í Jónshúsi. Látið var af því fyr-
irkomulagi fyrir tveimur ámm en
Jón segist verða þess oftlega var að
nágrannamir haldi hann prest enda
búa þau hjón í íbúðinni sem prest-
amir höfðu áður til afhota.
Eins og prestssetur
“I rauninni má líkja Jónshúsi við
prestssetur úti á landi fremur en fé-
lagsmiðstöð af einhverju tagi. Skírn-
ar- og brúðkaupsveislur em hér
mjög algengar enda stutt yfir í kirkj-
una sem við höfum afhot af. Þar er
að auki messa einu sinni í mánuði á
vegum íslenska prestsins.”
Hvert er hlutverk for-
stöðumans Jónshúss?
“I rauninni er ég það sem dansk-
urinn myndi kalla “altmuhgmand.”
En fyrst og ffernst er þetta skipu-
lagsvinna sem byggist á því að sjá til
þess að starfsemin gangi hnökralaust
fyrir sig í samvinnu við þá aðila og
félög sem nýta sér húsið.” Tvö öflug
félög Islendinga em starfrækt í Dan-
mörku, annars vegar Islendingafé-
lagið og svo Félag íslenskra stúd-
enta. Bæði nota þau Jónshús mikið
undir sína starfsemi. Þannig er t.d.
alltaf opið hús á laugardögum, þar
sem menn koma saman og horfa
m.a. á ensku knattspyrnuna frá
ffanskri stöð um gervihnött með
norsku áskriftarkorti!” Og ekki er þó
allt hér með talið því heilmikið tón-
listarlíf er í húsinu.
Kórar, kennsla
og fræðsla
“Kvennakór Kaupmannahafnar er
hér starfandi; fjölmennur kór sem
æfir alla þriðjudaga í Jónshúsi, auk
kórs íslenska safnaðarins. Svo er í
húsinu móðurmálskennsla fyrir ís-
lensk böm á gmnnskólaaldri, sem
tveir kennarar annast, auk þess sem
fermingarff æðsla er fyrir fermingar-
börn. Þau vom alls 25 sl. vetur. Þá
em AA-deildir starffæktar í húsinu,
konukvöld er haldið einu sinni í
mánuði og myndlistarsýningar em
allan veturinn. Gott bókasafn er rek-
ið í húsinu, auk þess sem þar er að
sjálfsögðu minningarstofa um Jón
Sigurðsson. Hér er ekki allt talið en
þetta gefur e.t.v. einhverja hugmynd
um umfang þeirrar starfsemi sem
rekin er í Jónshúsi.”
Þrátt fyrir allar tækniffamfarir og
byltingu í samskiptaháttum er það
svo að ungt fólk sældr Jónshús ekki
síður en þeir sem eldri em. “Það er
gaman að því að þrátt fyrir GSM-
símana og tölvupóstinn, sem unga
kynslóðin hefur tekið opnum örm-
um, er drjúgt hlutfall gesta ungt að
aldri. Sennilega er það vegna þess að
þrátt fyrir allt em það hefðbundin
mannleg samskipti, augliti til auglit-
is, sem vega þyngst á metunum”,
segir Jón.
Landinn samur við sig
-Hefur ímynd landans breyst
eitthvað í augum þeirra sem búa í
Danmörku?
“Ekld svo mjög, held ég. Islend-
ingar em alltaf eins og margt í fari
Danir að breyast
-Nú býrðu í Danmörku í þriðja
skipti. Em Danir alltaf samir við sig;
ligeglad og léttir í lund?
“Að stofhi til em þeir enn eins og
þeir vom en ég merki samt umtals-
verðar breytingar á ákveðnum hópi
Dana ffá því við vomm hér síðast
fyrir 14 ámm. Og Danir em að líkj-
ast okkur, hvort sem menn vilja líta á
það með jákvæðum eða neikvæðum
formerkjum. Með tölvu- og upplýs-
ingatæknibyltingunni hefur hér
sprottið upp ný kynslóð Dana. Hún
er stressaðri, vinnur meira og talar
mun betri ensku en forverar þeirra.
Sú var tíðin að enskan okkar íslend-
inga var miklu betri en Dananna.
Þetta er að breytast. Og sú þróun á
sér stað hér eins og víðar að enskan
er að herða tökin, enda sumt af því
námi sem boðið er upp á í tölvu- og
tæknigeiranum kennt á ensku að
stómm hluta.”
-Þú varst ráðinn til þriggja ára á
sínum tíma. Gætirðu hugsað þér að
ffamlengja um önnur þrjú ár ef það
byðist?
“A þessum tímapunkti myndi ég
telja það meira en líklegt. En ég á
efdr rúm tvö ár af ráðningarsamn-
ingi mínum og við vorum eiginlega
búin að heita okkur því að velta
framhaldinu ekkert fyrir okkur fyrr
en í fyrsta lagi að tveimur ámm liðn-
um. Mér hefur líkað þetta starf mjög
vel, okkur hjónunum líður vel í
Danmörku sem fyrr þannig að það
er aldrei að vita nema teygist á dvöl-
inni,” segir Jón Runólfsson að lok-
um.
-SSv.
Deilisldpulag ekki
til endurskoðunar
Á síðasta bæjarráðsfundi var tekið fyrir bréf G.G. Verktaka ehf. þar
sem óskað var eftir afstöðu bæjarráðs til möguleika á staðsetningu
tveggja einbýlishúsa á milli Víðigrandar og Leynisbrautar næst Innnes-
vegi. Bæjarráð taldi að svo komnu máli ekki tímabært að taka
deiliskipulag svæðisins til endurskoðunar, en benti jafnframt á að verið
er að ljúka skipulagningu Flatahverfis. Þar mun verða nægt lóðaffam-
boð á næsmnni til byggingar einbýlis-, rað- og fjölbýlishúsa.
SÓK
BORGARBYGGÐ
Kennarar
athugiðt
Við Grunnskólann í Borgarnesi er allt í einu laus
til umsóknar ein kennarastaða
Meginstarfssvið: Bekkjarkennsla í 7. bekk.
Borgarnes er vaxandi bæjarfélag á besta stað á
Vesturlandi. I skólanum eru núna rúmlega 330
nemendur og em tvær bekkjardeildir í hveijmn árgangi.
Ahugasamir vinsamlega hafið samband við Kristján
Gíslason, skólastjóra, (netfang: kristgis@ismennt.is),
í síma 437 2269 eða gsm 898 4569 og aflið frekari
upplýsinga. Einnig er bent á heimasíðu skólans
http://borgarnes.ismennt.is, en þar er að fhma
nýútkomna skólanámskrá sem farið er að vinna eftir.
Ekki draga það of lengi að hafa samband.
L
Skólastjóri
Sigríður Finsen oddviti
í Gmndarfirði var ákaf-
lega ánægð með hvernig
til tókst með hátíðina um
helgina. “Þessi hátíð
gengur fyrst og fremst út
á að Gmndfirðingar em
að skemmta gesmm sín-
um. Brottfluttir Gmnd-
firðingar koina mikið
heim um þessa helgi bæði
til að hitta skyldulið sitt
og hverja aðra. Þá er sér-
staklega ánægjulegt hve
margir úr nágranna-
byggðarlögunum komu
og skemmm sér með
okkur. Svona hátíð gerir
mikið fyrir byggðarlagið
hún eflir samkennd íbú-
anna og er þeim mikil Marteinn Njálsson fomiaiur FAG þeytir gjallarhomiðyfir gesti^M
hvatning”.
Gmndfirðingar og gestir þeirra
vor heppnir með veður um helg-
ina þegar þeir héldu sína árlegu
fjölskylduhátíð. Strax á fimmtu-
dag voro gestir farnir að streyma
til Grundarfjarða enda veðurspá
ákaflega góð og spennandi dag-
skrá ffamundan.
Tjaldstæði staðarins reyndust
of lítir og fyllmst fljótlega. List-
viðburðir og skemmmn í bland
við fróðleik um eitt og annað var
á dagskrá. Fjölmargar myndlistar-
sýningar vom haldnar og vakm
sérstaka athygli framlag ungra
Grundfirðinga. Iþróttir komu
nokkuð við sögu um helgina,
keppt var í leirdúfuskotfimi,
kappareiðum, dorgi, hlaupum,
knattspyrnu og hjólreiðuin auk
hins árlega Soffamóts sem Golf-
klúbburinn Vestarr heldur um
þessa helgi. Á föstudagskvöld var
dansleikur með Fílapenslunum
frá Siglufirði. Á laugardag bauð
Kristján IX upp á útitónleika með
Skítamóral, um kvöldið troðfyllti
hljómsveitin svo samkomuhúsið á
dansleik. Krákan bauð upp á
Krákufjör með Viðari Jónssyni og
á Hótel Framnes spiluðu Sex í
sveit.
Á sunnudag var svo hátíðar-
stund á Grundarkampi þai sein
hinn forni Gmndarfjarðarkaup-
staður stóð. Þar afhjúpaði Björg
Ágústsdóttir söguskilti sem er
samstarfsverkefni sveitarfélagsins
og Reykjavíkurborgar menning-
arborgar 2000. Því næst var sögu-
stund í rúsmm kaupstaðarins þar
sem Ingi Hans Jónsson söguá-
hugamaður lýsti sögu og byggð
kaupstaðarinns. Hátíðinni lauk
með varðeldi á Grundarkampi þar
sem leikið var á harmonikkur og
bornar fram franskar veitingar í
boði Islenskt F'ranskt eldhúss og
Hótel Framnes.
MM/IHJ