Skessuhorn - 03.08.2000, Síða 7
gSESSUH©BRi
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000
7
:
1 dag em tveirfastir starfsmenn vió svínabúiö á Melum sem sjá um daglega hirðu svínanna. F.v. Stefáti Jóhannesson og Gísli Jónsson.
Uppbygging í fullum gangi
Nú þegar tæplega 3000 svín á Melum
Unnið er af fullum krafri við að
Ijúka byggingu svínahúss á Mel-
um í Leirár- og Melasveit. Það er
fyrirtækið Stjömugrís hf. sem er
eigandi jarðarinnar Mela og
stendur að uppbyggingunni þar.
Komnir em gripir í níu af tíu ein-
ingum í nýja húsinu en að sögn
Geirs Gunnars Geirssonar bónda
á Vallá, sem er í forsvari íyrir fyr-
irtækið, er stefint að því að fylla
húsnæðið nú á næstu vikum.
Húsið sem nú er verið að ljúka
við rúmar um 3000 grísi. Ætlunin
er að á Melum verði uppeldisstöð
og em grísirnir því fluttir ungir á
staðinn annars staðar ffá. Ekki er
þó aðeins verið að byggja svínahús
því einnig er að rísa fóðurstöð fyrir
búið. Auk þess er stefnan að næsta
sumar verði risið annað svínahús af
sömu gerð. Næsta sumar ættu því
að vera um 6000-7000 svín á búinu.
Rækta sitt eigið fóður
Að sögn Geirs Gunnars hefur
fyrirtækið vemlegt landrými til
umráða. „Við höfúm um 500 hekt-
ara og af því er stór hluti ræktanleg-
ur. Við hugsum okkur að í framtíð-
inni munum við rækta hér talsvert
af korni og nýta í fóður fyrir svín-
in.” Aðspurður telur Geir Gunnar
að það sé svipað hagkvæmt fyrir þá
að rækta sitt korn sjálfir eins og að
kaupa það af utanaðkomandi aðil-
um. „Við getum náttúmlega aldrei
ræktað nóg kom fyrir búið en við
ætlum okkur samt að stunda korn-
rækt, fyrst og fremst ánægjunnar
vegna. Það er einnig ljóst að hér
mun falla til gífurlegt magn af á-
burði. Við höfum einnig áhuga á
ræktun almennt og emm þátttak-
endur í Landgræðslufélaginu við
Skarðsheiði”, bætti Geir Gvmnar
við að lokum.
Alveg vidaus í pylsur
-Ovenjuleg gæludýr í Olafsvík
Refayrðlingarnir Snúður og
Snælda vom svo heppin að vera
tekin í fósmr af heimilisfólkinu að
Ennishlíð 2 í Olafsvík þegar refa-
skyttur gerðu usla á þeirra fyrra
heimili. Yrðlingarnir eiga uppmna
sinn í Beruvík á Snæfellsnesi en
hafa nú um tæplega tveggja mánaða
skeið verið í fóstti í bakgarði í Enn-
ishlíðinni.
„Við fengum yrðlinganna í byrj-
un júní. Það vom refaskytturnar
Ásbjörn Óttarsson, Páll Stefánsson
og Pétur Vigfússon sem færðu okk-
ur þá eftir að hafa legið á grenjum í
Beruvík. Eg hafði verið að gantast
við refaskytturnar um að þeir
myndu einhver tímann láta mig
hafa yrðlinga og úr því varð í vor,”
sagði Sævar Þórjónsson húsbóndi í
Ennishlíð 2 í Ólafsvík.
Sævar Sigurðsson og Sævar Þórjónsson halda hér á yrðlingunum við búrið þeirra í bak-
garðinum í Ennishlíð 2 í Olafsvtk.
Tökur á mynd-
bandi um frum-
tamningar
Benedikt ásamt aðstoðarmanni sínum, Eyjólfi Gíslasyni, tamningamanni frá Hofsstöð-
um í Hálsasveit.
Þann 26. júní hófust tökur á
myndbandi um frumtamningar á
hestum að Stað í Borgarbyggð,
en þar starfirækja hjónin Bene-
dikt G. Líndal og Sigríður Æv-
arsdóttir tamningastöð. Mynd-
bandið er sérstakt að því leyti að
ekki hefur áður verið búið til
kennslumyndband um frum-
tamningaferilinn í heild sirmi,
þar sem hægt er að sjá stig af
stigi hvemig tamning fer fram.
Að sögn Benedikts er áætlað að
tökur standi út september. Mynd-
bandið verður svo að öllum líkind-
um gefið út í nóvember og það er
Benedikt sjálfur sem sér um útgáf-
una. Kvik hf. sér um vinnslu mynd-
bandsins en tímaritið Eiðfaxi er
markaðs- og dreifingaraðili. “Við
ætlum okkur að gefa þetta út á ís-
lensku, ensku, þýsku, sænsku og
hugsanlega á dönsku” segir Bene-
dikt. Hann segir mjög misjafnt
hvenær tökuliðið er á staðnum en
skiptunum fari fækkandi. “Þeir
komu oftar fyrst af því að það eru
ýmis byrjunaratriði sem þarf að
taka upp, en þegar við erum farnir
að ríða trippunum líður lengra á
milli.” Hann segir myndbandið
vera komið á það stig að farið er að
ríða hestunum inni í reiðskemmu
og þeir eru farnir að teymast með
hesti. I upphafi voru fimm hross
með í tökunum og Benedikt segist
búast við að þau verði öll með. Þrjú
þeirra eru fædd á Stað, eitt er frá
Sauðárkróki og eitt ffá Hafsteins-
stöðum í Skagafirði. “Þetta er alltaf
svona óskrifað blað þegar maður
byrjar með alveg ótaminn hest og
erfitt að vita hvernig hann þróast.”
Benedikt er hestamönnum vel
kunnugur því auk þess að reka
tamningastöðina á Stað er hann
fyrrverandi heimsmeistari í fimm-
gangi og fyrir um fjórum árum síð-
an hannaði hann hnakkinn Harm-
ony sem er sérhannaður með þarf-
ir íslenska hestsins í huga. “Munur-
inn á þessum hnakki og öðrum er
sá að hann er mjög hestvænn og
eftirgefanlegur, það er að segja
virkið í honum. Hann er einnig
mjög vandaður að allri gerð.” Það
er einungis ár síðan hnakkurinn
kom á markað á Islandi. “Salan hef-
ur bara gengið ágætlega, ég held
það sé ekki hægt að segja annað.”
Benedikt leggur áherslu á að
myndbandið sé alíslenskt. “Eg tel
það vera mjög mikilvægt að svona
sé unnið af íslensku fagfólki og á Is-
landi vegna þess að við eigum í
mjög harðnandi samkeppni í sam-
bandi við markaðsmál á íslenska
hestinum. Við kappkostum að sýna
að þetta sé gert á Islandi og sýnum
einnig mikið af íslenskri náttúru.
Myndbandið kemur þá vonandi til
með að vera góð auglýsing fyrir ís-
lenska hrossaræktendur og fagleg
íslensk vinnubrögð auk þess að
koma ferðaþjónustu á Islandi al-
mennt til góða.” SÓK
Fjöruferð á Skaganum
Hálfgerðar alætur
Þau Snúður og Snælda voru ekki
mjög burðug þegar þau voru tekin í
fóstur. „Við gáfum þeim kúamjólk
úr pela og svo seinna afgangana úr
eldhúsinu og annað það sem til féll.
Þetta eru núorðið hálfgerðar alæt-
ur, t.d. eru þau alveg vitlaus í af-
ganginn úr pylsupottunum úr
sjoppunum hér í Ólafsvík.” Að sögn
Sævars hafa krakkarnir á staðnum
haft mjög gaman af því að koma og
skoða yrðlingana og koma gjarnan
með eitthvað handa þeim í svang-
inn.
Kunna ekki að vara sig
Fram kom í samtali við heimilis-
fólk í Ennishlíðinni að meiningin
er að sleppa yrðlingunum innan
tíðar til sinna fyrri heimkynna.
„Þau haga sér náttúrulega ekki eins
og viltir refir. Þau eru mjög gæf og
kunna ekki að vara sig né að veiða.
Þess vegna ætlum við að merkja þau
með lambamerkjum í eyrun og
setja skilti við gamla grenið þeirra
til að þau lendi ekki í refaskyttum.
Einnig verðum við að fóðra þau
fyrst eftir að við sleppum þeim
meðan þau eru að læra að veiða.”
EA
Þann 29. júlí síðastliðinn stóð
íþróttanefnd Akraness fyrir
fjöruferð í Kalmansvík, Höfðavík
og Miðvog. Fararstjóri og
leiðsögumaður var Hannes
Þorsteinsson, líffræðingur. Mætin-
gin var ágæt enda eru fjörurnar á
þessari leið mjög fjölbreyttar, þar
er t.d. að finna klappir, leirur,
hnullunga-, malar- og sandfjörur.
Það er óvenjulegt þar sem fjörur
eru oft mjög einsleitar. Ferðin
endaði við Miðvog um hádegisbil
og voru göngugarparnir margs
vísari þegar þeir héldu heim á leið.
SÓK
Góðir dagar
fyrir grœna fingur!
Sölustaöir á Vesturlandi
• Kaupfélag Borgfirbinga
• Mánablóm, Akranesi
• Penninn, Akranesi
• Garbyrkjustööin Lágafell
• Hrannarbúb, Grundarfirði
• Sjávarborg, Stykkishólmi
510 RIT & RÆKT ehf • Háholti 14 • 270 Mosfellsbæ • Sími; 586 8003 • Fax: 586 8004 • Netfang: rit@rit.is • Vefur: www.rit.is