Skessuhorn - 03.08.2000, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 3. AGUST 2000
JktuuhuK:
Sýnum tillitssemi - ökum af háttvísi
Eins og landsmenn vita hafa fjöl-
mörg alvarleg umferðarslys átt sér
stað tmdanfarnar vikur. Yfir sumar-
mánuðina flykkist fólk út á þjóð-
vegina og eykst umferðin ár ffá ári.
Hvert metið á fætur öðru er slegið
og hér á Vesturlandi hefur umferð-
arþunginn s.l. helgar numið svo
sem einni til tveim krismihátíðum.
A sama tíma hefur löggæslan
minnkað vegna manneklu og yfir-
menn lögreglu koma ffam í fjöl-
miðlum og kvarta opinberlega und-
an mannfæð og gífurlegu vinnuá-
lagi.
Tilgangur umferðarlaga er m.a
að stuðla að greiðri, öruggri og
slysalausri umferð. Þar eru settar
þær leikreglur sem okkur er ædað
að virða og fara eftir. Við gemm séð
fyrir okkur knattspyrnuleik þar sem
engar reglur væru. Þar er dómarinn
tíl að gæta þess að allt fari að setmm
reglum og hverjum dettur í hug að
byrja leikinn ef dómarann vantar? I
umferðinni er lögreglan í þessu
dómarahlutverki og hefur þar af
leiðandi gífurlega þýðingu fyrir
umferðaröryggi.
Að aka hægar
Það veitir ökumönnum aðhald og
öryggi að geta gengið að því sem
vísu að lögreglan sé úti á vegum við
effirlit og aðstoð. Það er nauðsyn-
legt að geta gripið inn í ef vart
verður óeðlilegrar eða ólöglegrar
hegðunar í umferðinni. Lögreglan
hefur verið öml að kæra þá sem aka
of hratt og er það vel. Hins vegar
vantar meira aðhald að þeim sem
aka langt undir eðlilegum umferð-
arhraða og skapa með því óþarfa
slysahættu með framúrakstri og
pirringi annarra ökumanna. I 5.
grein umferðarlaga, greininni sem
oft er kölluð varúðarreglan, segir
skýrt og klárt að ekki skuli tefja eða
trafla umferð að óþörfu og sýna
skuli öðram vegfarendum tillits-
semi. Þessa grein skil ég svo að ef
einhverjir ökumenn þurfa að aka
hægar en telja má eðlilegan um-
ferðarhraða skuli þeir liðka til fyrir
þeim sem á eftir koma og þurfa að
fara framúr. Þetta má sem best gera
með því að víkja vel til hægri og
jafnvel nota útskot og afleggjara til
þess að stöðva á.
Okumönnum stórra bifreiða og
biffeiða með efrirvagn er skylt að
aka hægar, eða ekki hraðar en á 80
km/klst. Þetta er að sjálfsögðu gert
með umferðaröryggi að leiðarljósi
en jafnframt verða ökumenn þess-
ara bifreiða að sýna þeim sem á eft-
ir koma fyllstu tillitssemi, víkja þar
sem þess er kostur, nota stefnu-
merki og hægja hæfilega mikið á og
hleypa framúr.
Þrjár mikilvægar
sekúndur
Eitt er það sem veldur fjölda slysa
en það er of stutt bil milli bifreiða.
Til era margar aðferðir við að meta
rétta fjarlægð í næsta bíl fyrir ffam-
an en ein sú besta er svokölluð
“þriggja sekúndna regla”. Hún
felst í því að við horfum á þegar
bíllinn fyrir ffaman fer framhjá ein-
hverju kennileiti, s.s. vegstiku, um-
ferðarmerki eða þ.h. byrjum við að
telja sem svarar til þrem sekúndum,
1001, 1002, 1003. Efvið eram ekki
komin að nefhdu kennileiti áður en
þessari talningu lýkur ætti bilið
milli bílanna að vera nægilegt,
reyndar miðað við bestu aðstæður.
Onnur regla segir: Hafðu bilið að
næsta bíl í metram talið sömu tölu
og hraðamælirinn sýnir, þ.e. 60
metra á 60 km hraða, 90 metra á 90
km hraða o.s.frv.
Kæra ökumenn munum að við
eram ekki ein á ferð á vegunum.
Fylgjum reglum, sýnum tillitssemi
og munum að sýna hvort öðra þá
háttvísi og tillitssemi sem við vænt-
um ffá öðram.
Stuðlum að slysalausri umferð
því mitt mál.......er þitt mál
Sveinn Ingi Lýðssrn
Umferðar 'árygffsfulltrúi Vesturlands
Mjólkurgleði á Staðarfelli
Fjölskylduhátíð verður haldin á
Staðarfelli í Dölum um Verslvmar-
mannahelgina undir heitinu
„Mjólkurgleði SÁÁ og Dala-
manna.“ Dagskrá hátíðarinnar er
að stórum hluta sniðin að þörfum
barna og unglinga. Hljómsveitin
Karma mun leika fyrir dansi öll
kvöldin.
Meðal skemmtikrafta verða
Magnús Scheving, Mighty Gar-
eth, Ingveldur Yr og Tamóra.
Fjörkálfurinn og orkuboltinn Jón
Bjarnason mun stýra Mjólkurgleð-
inni ffá morgni til kvölds. Fyrir
börn og unglinga verður m.a. boð-
ið upp á hestaferðir, loftkastala,
bátsferðir, íþróttamót, leikjamót,
töffasýningu, danskennslu og jafn-
framt kemur Iþróttaálfurinn í
heimsókn. Á dagskrá Mjólkurgleði
SÁA og Dalamanna verður jafn-
framt brekkusöngur, flugeldasýn-
ing, varðeldur og sitthvað fleira
skemmtilegt.
Aðgangseyrir er 4.000 kr. og ó-
keypis fyrir 13 ára og yngri. Fríar
sætaferðir verða ffá SÁA Síðumúla
3-5, föstudaginn 4. ágúst kl. 19.
MM
'jóðfegt (jom
Reykurmn af réttunum
Heilir og sælir lesendur góðir, til sjávar og sveita.
I forntim ritum greinir ffá því er föramaður kom til húsa svangur og
bað um mat, ekki sem ölmusu, heldur gegn gjaldi. Var honum gert að
bíða meðan veisluhöld stóðu yfir í húsinu uns í ljós kæmi hvort eitthvað
væri afgangs. Leið svo og beið þar til förumaður fékk að vita að enginn
væri afgangurinn en honum þó gert að greiða fyrir veitingarnar þar eð
hann hefði notið reykjarins af réttunum.
Viðskiptasiðferði af þessi tagi þótti svo fáheyrt er saga þessi var rit-
uð að ástæða þótti til að færa þau í annála. Nú er öldin önnur. Svo er
framþróuninni að þakka að menn era löngu hættir að vera með leiðindi
vegna jafnsjálfsagðs hlutar og að vera krafðir um greiðslu fyrir ekkert.
Framkvöðull þessa nýja hugsanaháttar var athafnamaðurinn, skáldið og
athafhaskálið Einar Benediktsson.
Einar stofnaði fjölmörg fyrirtæki í félagi við erlenda peningamenn.
Hlutafélagið Gigant stofnaði Einar með norskum fjármálamönnum til
þess að reisa vatnsaflsstöð sem virkja átti sjálfan Dettifoss. The Brithish
North-Westem Syndicate stofnaði hann í félagi við breska auðjöffa í
sama tilgangi og einnig til að reisa stórverksmiðju sem ynni köfnunar-
efnisáburð með rafgreiningu. The Harbours and Piers Association Ltd.
gerði áætlun um að útbúa risavaxna hafskipahöfn í Reykjavík. The
Industrial and Engineering Trast Ltd. var samlag um fjármálaviðskipti
á Islandi. Aktieselskabet Pluto Limited og tvö önnur félög undir for-
ystu Einars tryggðu sér rétt til námavinnslu víðsvegar um land með
stórtæka gullvinnslu að meginmarkmiði. Stærst félaganna var þó Fossa-
félagið Títan sem reisa skyldi þrjár gríðarstórar vatnsaflsvirkjanir á
Suðurlandi, nokkur stóriðjuver til að nýta orkuna, leggja járnbrautir og
dýpka hafnir.
Eðli og afdrifum þessara fyrirtækja hefur Einar Kárason gert
frámunalega góð skil í fáum en hnitmiðuðum orðum í bók sinni,
Heimskra manna ráð:
„Oll áttu þessi fyrirtæki næga peninga og vora mikilsvirt í fjármála-
heimi Evrópu. En það áttu þau þó merkast sameiginlegt að aldrei varð
neitt úr neinu af því sem þeim var ætlað. Hafnargerðarfyrirtækin
byggðu ekki svo mikið sem bryggjustúf. Námufélögin unnu ekkert gull.
Engar járnbrautir vora lagðar, engar verksmiðjur vora reistar, ekki einn
dropi vatns var nokkumtíma virkjaður."
Það er þjóð vorri til mikils sóma að viðskiptajöfrar okkar tíma hafa
tekið „the great poet of Iceland" sér til fyrirmyndar.
Oz.com heitir fyrirtæki nokkurt í Reykjavík. Sumir telja að það sé
tölvufyrirtæki. Skiptir ekki máli. Oz er í eigu ungra athafnamanna sem
eiga stór hús og fallega jeppa. Þeir era kallaðir galdrakarlarnir í Oz því
allt verður þeim að fé (þ.e.a.s. hlutafé). Fyrirtækið er metið á fleiri
hundrað milljónir króna, ef ekki dollara. Erlend risafyrirtæki hafa
fundið sig knúin til að fjárfesta. Oz.com hefur aldrei búið til neina
framleiðsluvöra sem hefur farið á markað og selst. Fyrirtækið hefur
aldrei selt nokkram manni vöra eða þjónustu. Það selur bara hlutabréf,
og það er ekkert sem bendir til að þess að á því verði breyting.
Islensk erfðagreining er stórfyrirtæki með yfir 300 manns á launa-
skrá. Flestir era hámenntaðir sérfræðingar og launaðir samkvæmt því.
Fyrirtækið hefur barist af miklum krafti og enn meiri kosmaði fyrir því
að eignast sjúkraskýrslur allra Islendinga. Fjárfestar standa í biðröð
með veskin galopin. Þeir borga glaðir 28-falt uppsett verð fyrir reykinn
af réttunum. Rannsóknir Islenskrar erfðagreiningar hafa aldrei leitt
neitt af sér. Ekkert bendir til þess að fyrirtækið sé að gera nokkurn þann
hlut sem eigi nokkurn tímann eftir að geta framfleytt 300 hálauna-
mönnum og staðið undir rándýra áróðursstríði. Fyrirtækið er bara nýr
keppinautur á markaði íslenskra ættfræðinga. Sú stétt hefur löngum
lapið dauðann úr skel.
Hljómsveitin Gus Gus hefur náð að markaðssetja sig sem fyrirtæki.
Innlendir fjölmiðlar birta reglulega fréttir sem hópurinn sendir sjálfur
og fjalla allar um velgengni hans á erlendri grand. Islenskir og breskir
peningamenn borga glaðir allan brúsann af rándýram skemmtiferðum
ungmennanna um kringlu heimsins í von um að jafnvel brotabrot vænt-
anlegs hagnaðar muni skila þeim margfaldri ávöxtun. Hljómsveitin Gus
Gus er ekki tdl. Hún hefur aldrei nokkurn tímann haldið hljómleika,
hvað þá sent frá sér plötu. Hún er einfaldlega blekking, stærsta gabb
fjölmiðlaaldar. Hver hefur nokkurn tíma heyrt lag með þessari hljóm-
sveit? Eg veit ekki um neinn, og hef þó spurst fyrir víða. Það næsta sem
Gus Gus hefur komist heimsffægð var þegar söngvari hinnar meintu
sveitar tók þátt í Eurovision fyrir Islands hönd - og fékk ekkert stig.
Þannig er íslenskt efhahagslíf. Blómlegustu fyrirtæki landsins nær-
ast á því að selja hvert öðra vonir og væntingar um hlutdeild í óskil-
greindum ffamtíðardraumum sem ekkert era annað en reykurinn af í
réttunum.
Og úr því að reykurinn selst svona ljómandi vel og enginn sér neitt
athugavert við að punga út fé fyrir ekki neitt, er þá nokkuð sjálfsagðara
en að braskarar kaupi íslenskar krónur til að græða fé, að óveiddur fisk-
ur sé dýrari en veiddur, nú eða að vegalausir bændur gegni ímynduðum
bankastjórastöðum í útlöndum?
Verið kært kvödd á þriðja Þórsdegi í Heyönnum.
50113) sona
Þú kemur heím til þin og áttar
þig skyndilega á því að hundur-
inn þinn er gjörsamlega lesblind-
ur. Hvað gerir þú?
a) Gefar honum ekkert að éta
nema stafakex og stafasúpu í 14
daga
b) Bannar honum að glápa á
sjónvarp
c) Klappar honum vingjanrlega
og segja „Sona kallin, þetta geri
eggert til“
Nýi presturinn
Það var eitt sinn prestur við
sína fyrstu messu sem var svo
stessaður að hann gat varla kom-
ið upp örðí. Eftír messuna spurði
hann meðhjálparann hvernig sér
hafði gengið? Hjálparmaðurinn
sagði, ágætlega, en sagði að það
gæti hjálpað honum með næstu
messu að setja smá vodka eða gin
út í vatnsglasið sitt, gamli prest-
urinn hafði gert það til þess að
slappa af. Næsta sunnudag setti
presturinn vodka í glásið sitt og
það kjaffaði á honum hver ein-
asta tuska, Eför messuna spurði
hann meðhjálparann hvernig sér
hafði gengið í þetta sinn. Með-
hjálparinn sagði affur, ágætíega,
en það væru nokkrar staðreyndir
sem þeir ættu að fa á hreint:
1. Það eru tíu boðorð, ekki tólf
2. Það eru tólf postulár, ekki tíu
3. Davíð vó Golíat, en buffaði
hann ekki
4. Við minnumst ekki á Jesús
Kríst sem Jonna heitin Ká
5. Faðirinn, sonurinn og hinn
heilagi andi eru ekki nefndir
Kallinn, Lilli og Draugurixm
Maður nokkur var að fá sér f
glas á bar eittkvöldið. Hann haU-
ar sér upp að nökkuð stórgerðri
konu sem situr við hlið hans á
barnura og segir: „Viltu heyra al-
veg frábxran Ijóskubrandara?”
Stóra konan svarar: „Áður en þú
segir mér brandarann langar mér
að faenda þér á nokkuð. Eg er Ijó-
hærð, 1,90 m á hæð, 120 kg og
nýkomin heim frá Búlgaríu þar
sem ég keppti í kúluvarpi við
góðan orðstír. Þessi ljóshærða
sem situr við hliðina á mér er
l, 93 m, 125 kg og er fyxrverandi
Islandsmeistari í glímu. Sú Ijós-
hærða við hliðna á henni er 1,98
m. 135 kg og er atvinnuboxari.
Ertu alveg viss um að þú viljir
segja þennan ljóskubrandara?”
Maðurinn lítur á þær stöllur og
segir síðan: „Nei ekki ef ég þarf
að útskýra hann þrisvar.”
Gosi nýjungagjami
Gosi vildi breyta til og tók
saman við konu. Ekki var langt
um liðið er Gosi fór til fúndar við
trésmiðinn og bað hann ráða sér
heilt í vandræðum sínum. „Kon-
an kvartar sáran undan flísum úr
mér, hvað er til ráða?“ sagði Gosi
við trésmiðinn. Trésmiðurinn
taldi máfið einfalt viðureignar og
rétti Gosa örk af frnurn sand-
pappír. Nokkra síðar hittast þeir
félagár á fömum vegi og tré-
smiður spyr hvemig gangi. „Bara
vel“, svarar Gosi. „Konan er þá
hætt að kvarta“, segir smiður.
„Konan!“ svarar Gosi, „mér lík-
aði svo vel við sandpappírinn að
ég lét bara konuna róa“.