Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2000, Qupperneq 2

Skessuhorn - 21.12.2000, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 jkCsaunui^ WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgarnes og Akrones! 430 2200 Akranesi: Kirkjubraut 3 Fax: (Borgornes) 430 2201 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Úlgefandi: íslensk upplýsingatækni 430 2200 Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 894 8998 Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 892 4098 Internetþjónusta: Bjorki Mór Korlsson 899 2298 Bloðomenn: Sigrún Kristjónsd., Akronesi 862 1310 Ingi Hons iónss., Snæfellsn. 895 6811 Auglýsingor: Hjörtur J. Hjortorson 864 3228 Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólofsdóttir 430 2200 Prófarkolestur: Ástbildur Mognúsdóttir og fleiri Umbrot: Tölvert Prentun: Isofoldorprentsmiðja bf islensk@islensk.is ritstjori@skessuhorn.is internet@islensk.is sigrun@skessuhorn.is ingihons@skessuhorn.is hjortur@skessuhorn.is bokbald@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alia fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð i lausasölu er 250 kr. 430 2200 A aðventu Gísli Einarsson, ritstjóri. Að öllum líkindum er það jólahrollvekjan með öllu því um- stangi, ofsa og ofbeldi sem henni fylgir sem hefur ýtt við and- legu jafnvægi mínu og raskað minni sálarró sem almennt hef- ur verið talin nánast óraskanleg til þessa. Allur þessi fyrir- gangur hefur kallað fram allt það versta í mér, vakið upp áður óþekktan uppreisnaranda og hafið nýtt mótþróaskeið. Alla aðventuna hefur sumsé kraumað í mér niðurbælt ergelsi og pirringur sem bíður þess að brjótast út með hroðalegum af- leiðingum. Það sem af er desembermánuði hef ég setið við og skipulagt aðgerðir til að fá útrás fyrir innbyrgða og uppsafn- aða gremju. Mér hefur meðal annars komið það til hugar að gagnrýna á óvæginn hátt í ræðu og riti þá túlkun sveitamannsins á jóla- guðspjallinu að enn þann dag í dag beri mönnum að fara til Reykjavíkur um jólaleytið og láta skrásetja sig hjá Ingibjörgu keistaraynju. I hvert sinn sem ég hef verið kominn með penn- ann í hönd hefur konan mín bent mér á það mildilega að það væri nú ekki viðeigandi að láta svona þegar jólin væru að koma. Mér hefur líka dottið það í hug að hlaupa nakinn eftir Gils- fjarðarbrúnni til að mótmæla innflutningi á norskum kúm. Konan mín hefur hingað til kæft þær fyrirætlanir í fæðingu og bent mér á það ákveðið að svona lagað geri maður ekki á jól- unum. Fyrir utan það að ég hafi kannski ekki rétta vöxtinn í mótmælaaðgerðir af þessu tagi. Eins hefúr líka farið fyrir hug- myndum mínum um að láta hlekkja mig langsum í Hvalfjarð- argöngunum til að mótmæla vöntun á hvalveiðum. Þá hefur komið til álita að ég framkvæmi aftöku á Litlu gulu hænunni í pappírstætaranum til að mótmæla kennaraverkfall- inu. Ennffemur hef ég velt því fyrir mér að nýta þrálátt kvef og flensu í mótmælaskyni og snýta mér í ameríska fánann í til- efni af forsetakosningunum í Bandaríkjahreppi. Mér hefur einnig flogið í hug að fara í ófrjósemisaðgerð fyrir jólin til að mótmæla vinnubrögðum Náttúruverndarráðs svona almennt. Hvar sem ég hef borið niður hefur allt farið á sama veg. All- ar þessar tímamótahugmyndir hefur konan mín valtað yfir á þeim forsendum að þetta sé bara alls ekki viðeigandi þegar það eru að koma jól. Eftir mikla yfirlegu og vandlega íhugun get ég fallist á að kannski hafi hún eitthvað til síns máls í þetta sinnið. Samt sem áður liggur fyrir sú staðreynd að það er ekki oft sem konan mín hefur rétt fyrir mér og ekki nema í neyð- artilfellum sem ég get fengið mig til að viðurkenna það. Niðurstaðan er sem sagt sú að menn eins og ég eru alls ekki viðeigandi á jólunum. Því hef ég ákveðið að hafa hamskipti. Skreyta mig greni, könglum og rauðri slaufu og bresta í taum- lausa jólagleði. I því ástandi óska ég lesendum Skessuhorns og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakka ánægjuleg sam- skipti á öldinni sem er að líða. Gísli Einarsson í taumlausri jólagleði Frá Akranesi Fasteignaskattar á Akranesi Hærri skattur en minni tekjur Álagningarprósenta fasteigna- skatta á Akranesi verður hækkuð úr annars vegar 0.35% í 0.46% og hins vegar úr 1.00% í 1,25% á næsta ári. Á sama tíma verður lækk- un á álagningarstofni fasteigna- gjalda sem aftur hefur í för með sér nokkra lækkun á fasteignaskatti til bæjarsjóðs. Sá fyrirvari er gerður við ákvarðanir um þessar breyting- ar á álagningarprósenm að þær hafi ekki áhrif á greiðslur Jöfnunarsjóðs sem ætlað er að bæta tekjutap sveit- arfélagsins miðað við lægri álagn- ingarprósentur. K.K. A veiðum í Flekkudalsá. Fluguveiði í Flekkudalsá Veiðifélag Flekkudalsár í Dölum hefur ákveðið að á næsta ári verði eingöngu leyfð fluguveiði í ánni. Að sögn Sveins Gestssonar formanns félagsins er ástæðan sú að veiði hef- ur dottið verulega niður á síðustu árum. “Þetta er tilraun til að fá ánna til að gera eitthvað fyrir sjálfa sig. Það má búast við að minna verði veitt þegar eingöngu verður leyfð fluga og það verði til þess að meira verður af fiski til að hrigna:” Sveinn segir að menn hafi enga skýringu á minnkandi veiði. “Það hefur gengið illa með seiðauppeldi í ánni og í samráði við fiskifræðing var ákveðið að fara þessa leið. Veið- in á síðasta ári var ekki nerna 108 laxar en meðalveiðin var í 250 löx- um á ári.” Sveinn kveðst ekki óttast að það fæli veiðimenn frá þótt eingöngu verði leyfð fluguveiði í Flekkudalsá. “Þetta er með fallegri ám og við treystum því að menn sæki í hana af þeim sökum. Jafnvel þó aðsóknin minnki eitthvað við þetta þá hefði hún gert það hvort eð er útaf minnkandi veiði,” segir Sveinn. GE Miláð mælt hjá LMÍ Mikil útivinna við mælingar hef- ur farið frant hjá Landmælingum Islands þetta árið og eru áraraðir síðan jafnmikið hefur verið mælt. Einn starfsmaður hefur nær ein- göngu sinnt landmælingaverkefn- um hjá stofnunni en þegar þess þurfti voru fengnir starfsmenn úr öðrum verkefnum til hjálpar. Tveir sumarmenn voru ráðnir til aðstoð- ar við land- og hallamælingar. Vinnan við hallamælingar í ár byrjaði reyndar ekki vel og kömu náttúruöflin þar töluvert við sögu! Verkefnið v'ar unnið í samvinnu við Vegagerðina og Landsvirkjun og áttu tveir flokkar m.a. að hallamæla frá Selfossi að Skálm á Mýr- dalssandi, ásamt því að mæla legg- inn frá þjóðvegi 1 til Þorlákshafnar. Búið var að fallmæla legginn niður að Þorlákshöfn þegar jarðskjálft- arnir á Suðurlandi hófust og því var sú ákvörðun tekinn að fresta mæl- ingum á Suðurlandi þar til á næsta ári. Flokkarnir voru færðir austur á land og mælt var frá Breiðdalsvík um Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfiörð og uppúr Reyðarfirði til Egilsstaða. Frá Egilsstöðum var fallmælt áfram norður eftir Jökuldal að Hofteigi. K.K. Læknis- héraðinu slitið Borgarbyggð hefur borist fbrmlegt erindi frá Borgarfiarðar- sveit um að Kleppjárnsreykja- læknishéraði verði slitið. Enginn lækrúr hefur verið á Kleppjárns- reykjum um nokkurra ára skeið en fyrir tveimur árum var þjónusta heilsugæslunnar flutt úr læknisbú- staðnum þar og í Reykholt. Þeirri þjónustu hefur nú verið hæn og því engin starfsemi á vegurn Kleppjárnsreykjalæknishéraðs. I erindi Borgarfiarðarsveitar er gert ráð fyrir að eignum verði ráðstafáð en þar er fyrst og fremst um að ræða læknisbústaðinn á Kleppjárnsreykjum sem undan- farin ár hefur verið leigður út. GE Sameining í Dölum: Viðræður að hefjast Búist er við að innan tíðar hefi- ist viðræður um sameiningu Dala- byggðar, Saurbæjarhrepps og Reykhólahrepps. Akveðið var að taka þær viðræður upp að nýju að ósk Reykhólahrepps en á sínum tíma strandaði á því að Ret'khóla- hreppur taldi sig ekki undir sam- einingu búinn. Hreppamir hafa þegar skipað í tiðræðunefnd og búast rná við að sameiningarvið- ræður taki ekki langan tíma þar sem hluti undirbúningsvinnunar hefur þegar farið firam. GE Höfrungur III á meðal efstu Jólin nálgast og hið árlega kapphlaup um aflahæsta skip landsins er nú í algleymingi Það eru 3 togarar sem virðast skera sig úr að þessu sinni hvað varðar mesta aflaverðmætið. Það eru Amar frá Skagaströnd, Baldvin Þorsteinsson frá Akureyri og Höfrangur III frá Akranesi. Fyrir síðustu veiðiferð ársins vora þeir Amar og Baldvin nokkuð jafhir í efsta sæti með aflaverðmæti upp á ca. 850-860 milljónir króna, næst- ur kom Höfrangur III með um 840 milljónir og þar á eftir Júlíus Geirmundsson með 800 milljónir. Reiknað er með að efsm skipin muni skila um 920-930 milljóna aflaverðmæti þegar upp verður staðið. Til að setja þessi verðmæti í samhengi þá má geta þess að þetta fer nærri veltu Akraneskaupstaðar á þessu ári. Það þarf því röska á- höfin og gott skip til að ná slíkum árangri. Vestlendingur ársins Skessuhorn stendur fyrir vali á manni ársins á Vesturlandi þriðja árið í röð. Valið fer þannig fratn að 100 kjörmenn alls staðar að úr kjördæminu fá tækifæri til að velja þá fimm einstaklinga sem þeir telja að hafi skarað fram úr á árinu og raða þeiin niður. Síðan verða stigin talin saman og sá sem efstur stendur hlýtur nafn- bótina maður ársins á \restur- landi. Á síðasta ári varð knatt- spyrnuþjálfarinn Guðjón Þórð- arsori fyrir valinu en Gísli Gxsla- son á Akranesi árið áður. Urslit í kjörinu verða kvnnt í næsta tölublaði Skessuhorns sem kemur út þann 5. janúar næst- komandi. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.