Skessuhorn - 21.12.2000, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
ait£S3UnUb.
Nemendur æda
í útskriftarferð
I gær átti að fara firam útskrift úr
Fjölbrautaskóla Vesturlands en
eins og öllum ætti að vera kunn-
ugt um verður því frestað um óá-
kveðinn tíma vegna verkfalls
framhaldsskólakennara sem hófst
hinn 7. nóvember síðastliðinn.
Það kemur þó ekki í veg fyrir að
tæpir 30 nemendur skólans ætla
að fara til Mexíkó í “útskriftar-
ferð” á nýársmorgun. Nokkrir
hafa þó þegar heltst úr lestinni en
eftir sem áður er ljóst að það er
nokkur stór hópur sem ætlar sér
að leggja Iand undir fót.
Þórir Olafsson, skólameistari
FVA, segist ráðleggja nemendum að
fara ekki. “í ljósi þessarar miklu ó-
vissu sem yfir okkur vofir hefur mín
almenna ráðlegging verið sú að
nemendur hætti við að fara. Eg hef
svo sem ekki yfir þeim að segja sem
einstakllingum og þau taka sínar á-
kvarðanir sjálf. En eins og ég nefhdi
á opnum fundi sem ég hélt fyrir
nemendur skólans og foreldra
þeirra um daginn, þá er það mín til-
finning að lausnin væri að láta þessa
óvissu verða til þess að menn færu
ekki. Mér er kunnugt um að flest
séu þau staðráðin í að fara en ég veit
að einhverjir hafa hætt við.” Þórir
segist þó gera sér grein fyrir að að-
stæður nemendanna séu mismun-
andi og að sumir þeirra geti sagt við
sjálfa sig að þeir komi og klári í vor
að ferðinni lokinni. “Staðan í þessu
er auðvitað sú að við vimm ekki enn
hver staðan verður eftir áramótin.
Þess vegna er svo erfitt fyrir mig að
segja þeim að fara alls ekki því ef
verkfallið dregst enn á langinn er ó-
víst hvort við gerum eitthvað í janú-
ar.”
I augnablikinu sér ekki fyrir end-
ann á deilunni en Þórir segir að sér
finnist líklegt að fljótlega verði
fundin lausn. “Ef ég ætti að gerast
spámaður í dag myndi ég spá því að
samið verði fyrir jól og ákveðið í
tengslum við þá samninga hvernig
starfinu verður hagað efdr áramót.
Þá finnst mér líklegast að hálfur jan-
úar fari í kennslu og hinn helming-
urinn í einhvers konar mat og próf.
Það er svona mín tilfinning en þá
geng ég út frá því að menn gangi frá
einhverju samkomulagi fyrir jólin.”
Þeir nemendur sem hafa ákveðið að
fara í útskriftarferð koma heim 17.
janúar næstkomandi og því líklegt
að þeir missi af kennslu og jafnvel
prófum ef deilan leysist á næstu
dögum. Þórir segist ekki geta lofað
því að þeir nemendur fái að taka
próf. “Eg hef haldið þeim mögu-
leika opnum að þessir einstaklingar
geti fengið að vera utanskóla á
næstu önn ef það hentar þeim. Hins
vegar hef ég ekki getað gefið neitt
loforð um að þau gætu hugsanlega
fengið að taka prófin á öðrum tíma.
Eg veit ekkert í hvaða aðstöðu ég
yrði til að efna það. Það gæti orðið
erfitt sérstaklega ef mikil pressa
verður á mönnum að ljúka önninni
til þess að hægt sé að hefja nýja.”
SrVestlendingur pikunnar
Vestlendingur vikunnar er að
þessu sinni brottfluttur Sandari
sem svo sannarlega hefur ekki
slitið tengsl sín við heimahag-
ana. Hann heitir Olafur Elí-
mundarson og er fæddur á
Hellissandi árið 1921. Ólafur
vann í sveit og við sjó eftir
fermingu til tvítugs. Þá settist
hann á skólabekk á Laugarvatni
einn vetur og vann næstu fjög-
ur árin sem verkamaður í Stál-
smiðjunni í Reykjavík. Veturnar
1945-6 og 1946-7 stundaði Ó-
lafur nám við Samvinnuskólann
í Reykjavík. Að námi loknu
gerðist hann starfsmaður Ut-
vegsbanka Islands og starfaði
þar til 1982. Ólafur stundaði nám við öldungadeild Menntaskólans í
Hamrahlíð 1978 - 82 og innritaðist í sagnfræði við Háskóla íslands
haustið 1982. Hann tók BA próf í sagnfræði 1986 og cand. mag próf
haustið 1988.
Nú nýlega gaf Ólafur út fyrsta bindi í bókaröð sem hann kallar “Jökla
hin nýja I, Ur sögu Breiðavíkurhrepps og Neshrepps utan Ennis”. Þessi
fyrsta bók heitir “Kirkjur undir Jökli” og fjallar eins og nafnið bendir til
um sögu kirkna í þessum sveitarfélögum. Meðal elstu heimilda sem
snerta sögu þessara tveggja hreppa yst á Snæfellsnesi eru máldagar og
vísitasíur biskupa og prófasta. Þær elstu eru frá 13. öld, í afritum frá því
um 1600 og fyrri hluta 17. aldar. Kirkjustaðirnir hafa verið sex og kirkj-
urnar lengst fjórar þó nú séu þær aðeins tvær. Vísitasíurnar, sem eru
fjölmargar í þessar sjö til átta aldir, lýsa umhirðu kirknanna og ástandi
á hverjum tíma, munum þeirra og búnaði og ekki síst kjörum almenn-
ings og presta í fátækum sóknum. Margir einstaklingar koma við, bisk-
upar og fylgdarmenn þeirra, prófastar og prestar og heimamenn í
hverri sókn. I bókinni er getið helstu æviatriða fjöldamanna og birtar
myndir af um fimmtíu einstaklingum. Einnig er birt fjöldi litmynda af
kirkjum og munum þeirra. Elsti munurinn sem mynd er birt af er tal-
inn vera frá 14. eða 15. öld, en það er Maríumynd úr Laugabrekku-
kirkjugarði.
Þessi bók Ólafs er sú fyrsta sinnar tegundar. Umrædar sóknir eru þar
með þær fyrstu sem fá vísitasíur sínar gefinar út. Ólafur Elímundarson
hefur þarna unnið mikið þrekvirki sem margir eiga eftir að vera þakk-
látir fyrir. Að safna saman öllum þessum fróðleik og gefa út í svo vand-
aðri bók er djarft verk og ákaflega þakkarvert. Þarna munu áhugamenn
um sögu, byggingarlist og trúarbrögð eignast fjársjóð sem þeir geta
gengið í til að auka þekkingu sína. IH
Ólafiir Elímundarson
Á næstu dögum mun vinnuhóp-
ur sem skipaður var til að skoða
framtíðarvegstæði fyrir þjóðveg
1 um Borgarnes skila áliti.
Vinnuhópnum var felið að velta
upp ýmsum flötum á þeim kost-
um sem koma til greina.
Skiptar skoðanir eru um hvar
fraintíðarvegstæði skuli liggja.
Umtalsverður þrýstingur er ffá í-
búum í Borgarnesi um að losna við
veginn og þá miklu umferð sem
honum fylgir út úr íbúðarbyggð-
inni. Þá er horft á þá lausn að gera
vegfyllingu út í sjó þar sem komið
er yfir brúna að sunnan og fara
meðströndinni utan við íbúða-
byggðir í Borgarvík. Á hinn bóg-
inn óttast margir að verslun og
þjónusta í Borgarnesi hljóti mik-
inn skaða ef vegurinn verður færð-
ur og leið fólks liggur ekki lengur í
Skiptar skoðmtir eru um hvort þjóðvégur i eigi aSfærast títtír ibúðabyggðiimi í
Borgamesi t framttðinni.
gegnum helsta þjónustukjarna
bæjarins.
Ljóst er að ákvörðun um end-
andlegt vegstæði verður ekki tekin
Myrnl: HS
aiveg á næstunni og ugglaust á
mikil umræða eftir að fara ffam
áður en niðurstaða fæst.
GE
Bílvelta á Snæfellsnesi
Ókumaður jeppabifreiðar sem var á leiðinni vestur eftir Ólafsvíkurvegi síðastliðinn laugardag missti stjórn á henni með þeim af-
leiðingum að hún stakkst lít afveginum og lenti á hliðinni út í hrauni. Óhappið varð skammt vestan við Heydalsvegamót. Engin
slys urðu áfólki en bifreiðin er nánast ónjt. Mynd: GE
Nýfæddir
Vesdendingar eru
boðnir velkomnir í
heiminn um leið og
nýbökuðum
foreldrum eru færðar
hamingjuósldr.
II. desember kl 14:04-Sveinbam-
Þyngd:4025-Lengd:53 an. Foreldrar:
Kristín Kristmannsdóttir og Einar
Gíslason, Akranesi. Ljósmóðir: Anna
Bjönisdóttir.
17. nóvember-Sveinham-
Þyngd:4920-Lengd:52 cm. Foreldrar:
Þóra Sif Kópsdóttir og Andrés Ólvers-
son, Ystu-Görðum Ljósmóðir: Hafdís
Rúnarsdótt'tr
14. desember kl 12:38-Meybam-
Þyngd:3795-Lengd:51,5 cm. Foreldr-
ar: Helga Jóna Björgvinsdóttir og
Sigurður Þór Runólfsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir.
{ '
10. desember kl 15:30-Sveinbani-
Þyngd:3905-Lengd:53 an. Foreldrar:
Ama Pálsdóttir og Halldór Haralds-
son, Borgarnesi. Ljósmóðir: Erla
Björk Ólafsdóttir.
15. desember kl 14:46 og kl 14:51-
Sveinböm-Þyngd: A: 3980, B: 3375-
Lengd: A: 53 cm, B: 50 cm. Foreldr-
ar: Sjöfii G. Vilhjálmsdóttir og
Magnús Þ. Eggertsson, Borgaifirði.
Ljósmóðir: Anna Bjömsdóttir.