Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2000, Síða 16

Skessuhorn - 21.12.2000, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 32Ej$SiiHöEK] itaHSMsaesm Leikmenn ÍA í verkfall Leikmenn í meistaraflokki IA í knattspyrnu hafa ákveðið að hætta að mæta á æfingar þar til þeir hafa fengið greidd laun fyrir síðasta keppnistímabil. “Leikmennirnar hafa ekki fengið allar þær greiðslur sem þeim ber samkvæmt samning- um og þetta er þeirra leið til að sýna stjórnarmönnum að þeir séu ekki alveg sáttir við það. Eg veit nú ekki hversu alvarlegt þetta er og ég vona að þetta leysist sem fyrst á farsælan hátt”, segir stuðnings- maður IA, en sá vill ekki láta nafns síns getið þar sem málið er á viðkvæmu stigi. Leikmenn eru nú að fara í jólafrí og eiga þeir von á að menn ræði málin áður en æfingar hefjast á nýju ári. Það er ljóst að félagið er í kröggum. Rekstur þess hefur gengið erfið- lega og það er með stórt tap á bak- inu. Leikmenn hafa liðið fyrir það eins og aðrir og finnst þeim ekki alveg nógu mikið litið til þess að þeir eiga útistandandi laun. Komið hefur til tals að leikmenn slái af kröfum sínum til að koma til móts við félagið. Eins og fram kemur á öðrum stað í blaðinu hefur verið skipuð nefnd til að vinna úr fjárhagsvanda IA og er þess vænst að nefndin skili áliti fyrir framhaldsaðalfund í lok janúar. MM Frekari úthlutun frestað Bæjarstjórn Akraness hefur falið skipulags- nefnd bæjarins að láta vinna tiilögu að deiliskipulagi fyrir Ægis- braut og nærliggjandi svæði. Nefndinni var falið að kynna rnálið á vinnslustigi fyrir íbúum á því svæði sem tillagan mun taka til og leita eftir frekari tillögum þeirra. Meðan á meðferð þessa máls stendur samþykkti bæjarstjórn enn fremur að fresta frekari úthlutun lóða við Ægisbraut. SÓK Sandtaka bönnuð Á fundi bæjarráðs Akraness þann 14. desember síðastliðinn var tekið fýrir bréf umhverfisnefndar þar sem lagt var til að bæjarstjórn samþykkti erindisbréf fyrir nefndina og verðandi sandtöku á Langasandi. Bæjarráð staðfesta tillögu nefndarinnar um bann við sandtöku og fól sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að auglýsa bannið og fýlgja málinu eftir að öðru leyti. SÓK Samkomulag viðRARIK Bæjarráð Akraness heimilaði nýver- ið Gísla Gíslasyni, bæjarstjóra, að und- irrita samkomulag sem gert hefur ver- ið við RARIK um ábyrgð á raforku- virkjum til næstu fjögurra mánaða. Afgreitt með leynilegri kosningu Pétur Ottesen lagði fram þá beiðni á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku að afgreiðsla bæjarráðs varðandi ráðningu sviðsstjóra yrði afgreidd með leynilegri kosningu. Það var samþykkt einróma og niðurstaða talningar var sú að sex bæjarfulltrúar samþykktu niðurstöðu bæjarráðs en þrír höfnuðu henni. SÓK Jólagetraun Skessuhoms snýst einfaldlega um að lesendur svari spumingunni; “Hvor er rakari?” Nákvæmlega rétt svar sendist Skessuhomi, merkt, “Rakari” Borgarbraut 49, 310 Borgamesi fyrir 8. janúar 2001. Heppinn þátttakandi fær að laumun fría klippingu og höfuðbað hjá réttu svari. Gangi ykkur vel!

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.