Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2000, Síða 34

Skessuhorn - 21.12.2000, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 jtttaauno... Mynd af uppvaski eftir Guðmund Rúnar en Ijóðfylgja mynd- um hans og greinilega er hægt að hugsa margt við uppvaskið. Ljóðið er einnig efiir Guðmund Riínar. Skrif í laumi Þegar penninn er opinn er öryggið farið. Ekki er lengur hægt að leynast í dimmum og djúpum stvalningnum, enginn er lengur óhultur því hugsanir skrifast niður á blað. Læðast upp úr sínu eigin undirdjúpi og bera með sér ást - hatur þunglyndi - gleði og allt annað sem hugurinn girnist, þar á meðal einsemd. ..í örvæntingu minni leit ég upp til himinsins sem, fagurblár, leitaði aðfjöllum er ekki söfnuðu skýjum Margt brallað Unga fólkið í Grundarfirði situr ekki auðum höndum þessa dagana. A kaffihúsi unga fólksins sem opnað var 1. desember s.l. stendur nú yfir ljósmynda- og teiknimyndasýning. Það eru þau Dögg Mósesdóttir og Guðmundur Rúnar Guðmundsson sem sýna auk þess sem sýndar eru teikningar eftir Sigurð Tómas Helgason. Það er alveg greinilegt af þessu framtaki sýnenda að það er alveg rými fyrir miðstöð sem þessa. Miðstöð þar sem ungt fólk getur miðlað áhugamálum sínum og hin- um fjölbreyttustu viðfangsefnum. Með ljósmyndum Guðmundar eru ljóð eftir hann og læt ég eitt þeirra fljóta hér með. En hvað segir Dögg Mósesdótt- ir? Hvernig hefur gengið? “Við á- kváðum að leyfa hlutunum að þró- ast svolítið íyrstu viku kaffihússins. Höfðum enga sérstaka dagskrá og kaffihúsið var opið alla daga frá 20 til 24. Við sáum hins vegar strax að nauðsynlegt var að breyta opnunar- tímanum því að allt í einu var of mikið að gera fyrir unga fólkið í Grundarfirði svo að vart var friður til að fá að vera heima hjá sér. Fyr'r utan kaffihúsið eru nefnilega þrjú kvöld í viku þar sem grunnskólin eða önnur félög eru með skemmt- anir fýrir krakkana í 9. og 10. bekk. Aðal aðsóknarhópur kaffihússins er nefnilega grunnskólafólk í 9. og 10. bekk þrátt fýrir að eldri krakkarnir séu farnir að nýta sér aðstöðuna mun meira. Við breytum opnunar- tímunum þannig að núna er kaffi- húsið opið 4 daga vikunnar þ.e.a.s. þriðjudaga, fimmtudaga, laugar- daga og sunnudaga. Virka daga frá 19.30-23.00 en um helgar frá 16.00-23.00. Skipulagi komið á Núna er alltaf eitthvað við að vera á kaffihúsinu og við höfum gert það að stefnu kaffihússins að líta aðeins í kringum okkur og not- færa okkur það hæfileikaríka fólk sem hér býr til og leyfa því að láta ljós sitt skína. I síðustu viku var t.d. Aðalsteinn Jósepsson (22) með afar áhugaverðan fyrirlestur um rokktónlistarstefnuna þar sem hann fór í gegnum sögu rokksins og fjall- aði um helstu hljómsveitir. Við höf- Blængur hnhbóndi á Gunnlaugsgótu. 6 í Borgarnesi ásamt syni sínum og iðnaðar- manni sem vann við múrhúðun á garðvegg 19. desember. Mynd:MM Múrað á aðventu Veðrátta það sem af er vetri hefur verið mild og að flestu leyti góð hér á Vesturlandi. Síðastliðið þriðjudagskvöld fréttist af mönn- un í Borgarnesi sem unnu við múrstörf utandyra. Slíkt hlýtur að heyra til algjörra undantekninga í vikunni fyrir jól. En hví ekki? Það var 5 stiga hiti og spáð hlýju næstu daga. MM L Fjöíritunar- og útgáfuþjónustan Óskum þér og þínum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum frábærar viðtökur á fyrsta heila starfsárinu! Borgarbraut SS - Borgamesi Sími: 437 2360 Fax: 437 2361 NETFANG: olgeirhelgi @ islandia.is um einnig haft þá stefnu að leyfa krökkunum að ráða dagskránni svo- lítið sjálf en dagskrá þessarar viku er einmitt tekin af óskalista þeirra. Það verður sýning á árshátíð grunnskólan á stóra skjánum í kvöld, þriðjudag, en á fimmtudag- inn verður karaókí kvöld. Það verð- ur lokað hjá okkur á Þorláksmessu og jóladag. Dagskrá kaffihúsins er kynnt í hverri viku á Vestur- landsvefnum. Verðmæt tilraun Kaffihúsið lokar að öllum lík- indum í lok desembermánaðar þar sem að rekstur þess hefur ekki staðið undir sér fyrir eigendur Hótel Framness. Það er þó ekki þar með sagt að kaffihúsið verði aldrei aftur starfrækt. Þetta þýðir aðeins að enduskoða þarf rekstur og starfsemi þess með tilliti til þeirrar reynslu sem við höfum nú þegar fengið af kaffihúsinu. Kaffi- húsið er jú frábær hugmynd og hefur haft góð áhrif á bæjarlífið hér í Grundarfirði”. Það virðist sem fólk sé almennt sammála um að þessi tilraun sé þess virði að haldið verði áfram. IH Engin gangbrautavarsla hefiir verið við Grundaskóla það sem af erþessum vetri. Engin gangbrautavarsla Undanfarin ár hafa nemendur í tíunda bekk í Grundaskóla tekið að sér að fylgja sér yngri nemendum yfir gangbrautirnar sem liggja að skólanum í svartasta skammdeginu. Það sem af er þessu skólaári hef- ur hins vegar engin gangbrauta- varsla verið. Sigríður Olafsdóttir er foreldrafulltrúi fyrir tíunda bekk skólans auk þess sem hún er for- eldri barns í öðrum bekk. Hún seg- ir að foreldrar barna í skólanum séu mjög ósáttir við að hún skuli ekki vera til staðar. “Undanfarin ár hefur verið gangbrautarvarsla við þrjár gangbrautir sem liggja að skólanum. Eftir að hún lagðist af sér maður að krakkarnir nota gangbrautirnar ekki jafn mikið. Varslan hægði líka á allri umferð því það var eins og ökumenn yrðu meðvitaðri um að þarna séu börn á ferð þegar þeir sjá að þarna er gæsla.” Gangbrautarvarslan hefur verið styrkt af Sjóvá-Almennum í fjölda ára. I ár vildu þeir rninnka þá upphæð sem nemendur fengu fyrir gangbrautarvörsluna. Hún þótti það lág að það borgaði sig ekki fyr- ir nemendur í 10. bekk að taka verkið að sér. “Við fórum og rædd- um við öll tryggingafélögin og spurðum hvort þau vildu styrkja þetta sameiginlega en það var eng- inn áhugi fyrir því. Mér finnst líka að bærinn mætti taka það til athug- unar hvað myndi kosta að fá mann- eskju til að standa þarna í vörslu á launum því það er mitt álit að það sé mjög mikilvægt að þarna sé gangbrautavarsla. Þarna er niða- myrkur og börn allt niður í sex ára aldur eru að ganga ein yfir tvær mestu umferðargötur á Akranesi. Það er vitað að bæði á Garðagrund og Innnesvegi er rnikið um hraðakstur og manni finnst eigin- lega bara spurning um tíina hvenær eitthvað kemur fyrir. Hugsanlega var ekki nógu mikið rætt um gang- brautarvörsluna meðan hún stóð yfir og ekki vakin athygli á því hversu gott starf var unnið þarna. En maður finnur greinilega fyrir því hversu mikið öryggi var í þessu þegar þetta er ekki.” SÓK

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.