Skessuhorn - 21.12.2000, Side 37
^Kiðautíuk.
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
37
Nýbýlið Nes byggðu þau Guðráður og Vigdís úr landi Skáneyjar á fjórða áratugnum. Þar óhiþau upp i böm sín; Braga, Bjama og Helgu. Myndin er tekin jýrir miðja ölditia.
stöðugu sambandi við gamla vini
sína á æskuslóðum, meðal annarra
Asgeir Bjarnason, og fleiri innan
sem utan Vesturlands og fylgist því
vel með. Hann hlustar á flesta
fréttatíma í útvarpinu enda er
hvergi hægt að koma að tómum
kofanum þegar þjóðmálin ber á
góma.
Hann segir íslenskan landbúnað
vera á fallandi fæti; “O, maður lif-
andi, elskan mín. Ég byrjaði sem
krakki í hjásetunni og sló með orfi
og Ijá en það hefur ýmislegt breyst
síðan. Að vísu ekki allt til batnaðar.
Mér líst til dæmis ekkert á að fá
nesi. Það var nú meiri endemis vit-
leysan.”
Fílar ekki Megas
Guðráður segir að þjóðfélaginu
hafi farið fram að mörgu leyti á
þeim tæpu 100 árum sem hann hef-
ur lifað. “Að mörgu leyti hefur því
þó farið aftur. Þar er verst með ó-
regluna á fólki. Unga fólkið passar
sig ekki á eiturlyfjunum og alls kyns
óþverra sem er í gangi. Það sem fer
þó mest í taugarnar á mér er tón-
listin. Þetta er nú ljóta helvítis garg-
ið. Það eru allir farnir að syngja eins
það betra á minnið,” segir Guðráð-
ur og býður meira kaffi. Þrátt fyrir
nær enga sjón hellir Guðráður sjálf-
ur kaffinu í bollann sinn. “Eg helli
alltaf upp að mynsturröndinni inn-
an í bollanum, sé svona móta fyrir
því þegar hvítt verður svart. Svo hef
ég vanið mig á að setja aldrei meira
en bollan hálfan af sykri”.
Aðspurður um hvað sé eftir-
minnilegast á langri æfi svarar Guð-
ráður: “Ætli það sé ekki að vera
uppi á Arnarvatnsheiði í göngum
þegar maður var ungur og hress. Eg
var meðal annars skilamaður í Mið-
firðinum í mörg ár og líkaði það
Hjónin Vigdís og Guðráður giftu sig á afmælisdeginum ham fyrir 70 árum síðan og áttu þvíjámbrwðkaupsafmœli 6. nóvember í vetur.
Mynd: Nærmynd
þessar norsku beljur hingað. Þó
hann Guðni minn Agústsson sé
skírleikspiltur á ýmsurn sviðum þá
líst mér illa á þennan innflutning
hans á norku beljunum. Ef fram
fer sem horfir er landbúnaðurinn á
fallanda fæti en ég vona að menn
nái áttum bæði í sauðfjárræktinni
og mjólkurframleiðslunni. Það
ætlaði mig t.d. lifandi að drepa
þegar þeir byrjuðu að keyra mjólk-
ina suður til Reykjavíkur í vinnslu
og lögðu niður samlagið í Borgar-
og Megas og svo er búið að veita
honum íslenskuverðlaun fýrir þessi
ósköp! Það er ljóta kerfið. Eg gerði
Bjartmari á Norðurreykjum orð
þegar hann var farinn að syngja eins
og Megas og bað hann í Guðs bæn-
um að hætta því og snúa af villum
síns vegar.
Eg skil nú ekkert í þessari tölvu-
biltingu sem ríður röftum, enda
kom hún til eftir að ég varð blindur.
Annars hef ég tamið mér að gleyma
heldur því verra og leggja frekar
afar vel að fara þarna norðureftir,
hitta húnvetninga og ragast í fé. A-
nægjustundir á Heiðinni eru því
sennilega það eftirminnilegasta á
minni löngu ævi. Eg er líka þakklát-
ur fýrir það góða mannlíf sem hef-
ur verið hér í Reykholtsdalnum á
öldinni. Hér hafa lifað og dáið
margir mætir menn, hver fram af
öðrum og nú er kornin ný kynslóð
af góðu fólki, sem getur ýmislegt,”
segir Guðráður í Nesi að lokum.
GE/MM
Það varfríður bópurfólks sem veitti Grettistaki viðtöku á Dvalarheimilmu Höfða
áfóstudag.
40 manns fengu
Grettístak
Stjórn Dvalarheimilisins Höfða
á Akranesi bauð 40 einstaklingum
til kaffidtykkju síðastliðinn föstu-
dag þar sem þeim voru afhent
Grettistök vegna starfa sinna fyrir
heimilið og aldraða á Akranesi og
nágrenni. Um var að ræða 40
smækkaðar eftirmyndir af lista-
verkinu Grettistaki sem stendur á
lóð heimilisins og eru eftirmynd-
imar framleiddar af sama manni
og gerði frumgerðina, Magnúsi
Tómassyni. Tilefnið var það að nú
er ákveðnum áfanga lokið í upp-
byggingu Höfða og öldrunarþjón-
ustunnar á Akranesi og sveitarfé-
lögunum sunnan Skarðsheiðar.
I ár eru liðin 30 ár síðan Bæjar-
stjórn Akraness samþykkti að “-
hefja tæknilegan undirbúning að
byggingu dvalarheimilis fyrir
aldrað fólk að Sólmundarhöfða”.
Heimilið tók til starfa um sjö
árum síðar og hefur það því verið
rekið í 23 ár. Heiðraðir voru 19
einstaklingar úr fyrrverandi
stjórnum og byggingarnefndum
og 10 starfsmenn með langan
starfsaldur við dvalarheimilið.
Eignaraðilar, þ.e. Akraneskaup-
staður og sveitarfélögin fjögur,
sem standa að heimilinu og fjár-
mögnuðu það, tóku einnig á móti
Grettistakinu ásamt Fram-
kvæmdasjóði aldraðra sem einnig
lagði fram fjármagn til byggingar-
innar. Sjúkrahús Akraness og
heilsugæslulæknar sem lengi hafa
starfað fyrir heimilið voru
heiðraðir, sem og Akraneskirkja
og FEBAN. Ætlunin var að af-
henda einnig Ingibjörgu Pálma-
dóttur sitt Grettistak. Hún sá sér
ekki fært að mæta en sendi sínar
bestu kveðjur.
Á Höfða búa í dag 78 aldraðir.
en starfsmenn eru 83 í 59 stöðu-
gildum. Milli 15 og 20 manns
sækja dagvistun sem boðið er upp
á. Auk þess að vera heimili aldr-
aðra er Höfði félags- og þjónustu-
miðstöð með ýmiss konar þjón-
ustu sem slíkri miðstöð fylgir.
Meðal annars er þar opið hús
tvisvar í viku. Á lóð heimilisins
hafa verið byggðar 27 sjálfs-
eignaríbúðir og 15 bifreiða-
geymslur. Einnig er sendur út
matur til aldraðra í bænum frá
mötuneytinu á Höfða. Þessir síð-
astnefndu þættir eru hluti af ör-
yggiskeðju fyrir aldraða og til þess
ætlaðir að gera þeim kleift að
dvelja sem lengst á heimilum sín-
um og forðast stofnanavist.