Skessuhorn - 21.12.2000, Side 52
52
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
^KÚsunu.^
Mikil vinna en skemmtilegt
Segir Theodóra Þorsteinsdóttir söngkona sem gefur út geisladisk fyrir jólin
Þótt tónlistarútgáfa í landinu sé
með miklum blóma um þessar
mundir þá er það þó svo sannar-
lega ekki á hverju heimili sem ráð-
ist er í að gefa út geisladiska með
klassískum söng. Raunar mun
geisladiskurinn I fjarlægð með
þeim Theodóru Þorsteinsdóttur
sópransöngkonu og Ingibjörgu
Þorsteinsdóttur píanóleikara lík-
lega vera fyrsti sólódiskurinn með
þessari tegund tónlistar sem gefinn
er út í Borgarfirði.
“Það var nú aðallega af tveimur
ástæðum sem ég ákvað að ráðast í
þetta núna,” segir Theodóra Þor-
steinsdóttir söngkona. “Bæði var að
margir hafa hvatt mig til þess í
gegnum árin að gefa út disk með
mínum söng og eins langaði mig
sjálffi til að eiga heimild um hann á
einhverju formi. Astæðan fyrir því
að við létum slag standa núna var
aðallega sú að við Ingibjörg unnum
mikið saman síðasta vetur og þá
notuðum við tækifærið og æfðum
þessi lög sem eru á diskinum.”
I fjarlægð inniheldur tuttugu og
eitt klassískt einsöngslag en þar er
að finna eitt lag eftir systur Theo-
dóru, Birnu Þorsteinsdóttur tón-
listarkennara og móður þeirra Sig-
ríði Jónsdóttur. Auk þess sá eigin-
maður Theodóru, Olgeir Helgi
Ragnarsson um hönnun á diskin-
um en útgefandi er fyrirtæki þeirra
hjóna, Fjölritunar og útgáfuþjón-
ustan. Því má segja að hann sé
nokkurs konar fjölskylduafurð.
“Þetta er hefðbundið lagaval sem
fólk hefur alltaf gaman af. Allavega
hafa viðbrögðin verið mjög góð og
við fengum mjög góða aðsókn á
útgáfutónleikana í Borgarneskirkju
þannig að við getum ekki verið
annað en ánægðar með útkom-
una,” segir Theodóra.
Mikil vinna
Theodóra sem er skólastjóri
Tónlistarskóla Borgarfjarðar segir
Simghópuritm Sólarmegin
Sönghópurínn Sólarmegin
heldur tónleika
Jólin eru tími góðra siða og
hefða. Sönghópurinn Sólar-
megin hefur ffá upphafi ferils
síns haff þann sið að heimsækja
Sjúkrahús Akraness og Dvalar-
heimilið Höfða á jólaföstunni
og syngja nokkur jólalög fyrir
vistmenn.
Um þessi jól vonast hópurinn til
að geta glatt eyru enn fleiri Akur-
nesinga og nærsveitamanna með
jólasöngvum og býður til jólatón-
leika í Akraneskirkju föstudags-
kv'öldið 22. desember kl. 22.30.
Þar sem verslanir loka kl. 22.00 er
tilvalið að enda bæjarferðina þenn-
an næstsíðasta dag fyrir jól í kirkj-
unni og þess má geta að aðgangur
er ókeypis.
Sönghópurinn hefur sett saman
líflega dagskrá með jólasöngvum
og -sálmum úr ýmsum áttum og
að vanda syngur hópurinn að
mestu án undirleiks. Tónleikar
þessir bætast þó bara við það sem
sönghópurinn hefur áður gert á
jólaföstunni því hann heimsækir
sem fyrr sjúkrahúsið og dvalar-
heimilið fyrir jól.
SÓK
Ingibjörg Þorsteinsdóttir undirleikari og Theodóra Þorsteinsdóttir sövgkona.
Gunnar til Keflavíkur?
Gunnar M Jónsson leikmaður
meistaraflokks Skallagríms og
þjálfari yngri fiokka á í viðræðum
við Keflvíkinga um að hann taki
að sér ungmennaþjálfun hjá félag-
inu. Eins og sagt hefur verið frá í
Skessuhorni hafa Skallagríms-
menn veríð í samningaviðræðum
við Gunnar um þjálfun meistara-
flokks. Gunnar hefur byggt upp
öflugt barna og unglingastarf hjá
félaginu og hafa menn þar á bæ
mikinn hug á að hann fylgi því
starfi eftir. Enn hefur hinsvegar
ekki náðst samningar milli Skalla-
gríms og Gunnars en að sögn
Stefáns Loga Haraldssonar for-
manns knattspyrnudeildar Skalla-
gríms er þó ekki búið að gefa upp
von utn að Gunnar verði ráðinn.
Félagið auglýsti hinsvegar starfið
laust og rann umsóknarfresturinn
út í vikunni. Stefán segir að menn
hafi viljað nota tírnann á meðan
Gnmutr M Jónssou.
enn væri óráðið hvort Gunnar
tæki við starfinu. Flann sagði að
farið yrði vfir umsóknirnar í vik-
unni og vonaðist til að þessi mál
kæmust á hreint á allra næsm
dögum.
GE
að söngáhugi í héraðinu sé mikill
og fari vaxandi. “Það eru margir að
læra söng og mjög margir í kórum.
Ég vildi að vísu sjá fleiri áheyrend-
ur á tónleikum því menn læra mik-
ið af því að hlusta ekki síður en að
syngja sjálfir.”
Aðspurð segir Theodóra að frek-
ari útgáfa sé ekki á döfinni í bili að
minnsta kosti. “Þetta er nóg í bili.
Það kostar rnikla vinnu að gefa út
svona disk. Þegar við vorum búnar
að æfa fyrir þetta lokuðum við okk-
ur inni í Stykkishólmskirkju í tvo
daga og sungum yfir tuttugu lög.
Það gekk mjög vel enda höfðum við
mjög góðan rnann til að stjórna
upptökum sem er Sigurður Rúnar
Jónsson (Diddi fiðla) en það var
einstaklega skemmtilegt að vinna
með honum. Þetta var hinsvegar
mjög gaman þótt það væri erfitt og
ég vil nota tækifærið og þakka öll-
um sem aðstoðuðu okkur við þetta,
bæði fjölskyldumeðlimum og
styrktaraðilum,” segir Theodóra
Þorsteinsdóttir söngkona að lokum.
GE
Berrassaðir á jólamarkað
Nokkrir ungir menn í Grunnskólanum í
Grundarfirði stofnuðu hljómsveitina
“Berrassaðir” s.l. vor. Þeir hafa nú gefið
út geisladisk með eigin lögum og héldu út-
gáfu tónleika í Iþróttahúsinu í Grundar-
firði síðast liðinn þriðjudag. En hvernig
segja þeir frá tilurð hlómsveitarinnar og
disksins? “Einu sinni voru þrír strákar sem
byrjuðu með hljómsveit sem hét Plutoni-
um, þeir voru Alli á bassa, Máni á hljóm-
borð og Gústi á trommur. Við spiluðum
nokkur dægurlög og Sylvfa söng með okk-
ur. I lok sumarsins 2000 byrjaði Axel með
okkur á gítar. Og við spiluðum á nokkrum
stöðum. Síðan þegar sumarfríið var búið
fór Sylvía í skóla á Akranesi og við vorum
fjórir eftir og við vorum í vandræðum með
að finna söngvara. Þá fyrst fórum við að
prófa okkur áfram í þyngri og harðari tón-
list og við breyttum nafninu í Berrassaðir.
Fyrsta lagið okkar heitir No 1 var samið af
Alla og Mána og við spiluðum það og Alli
söng eða öskraði með. Elmar mágur hans
Mána lofaði þeim ef þeir gætu samið nokk-
ur lög myndi hann fara með þá í stúdíó í
Reykjavík sem hljómsveitin Kuai á og hef-
ur verið við upptökur í. Orn kom síðan
inní hljómsveitina á gítar. Við sömdum
þrjú lög í viðbót No2, Fuck Prodigy og
Viking og við fórum í Stúdíó og eyddum
þar einni helgi. Og útkoma var diskurinn
Spanky”. Þetta framtak strákanna lofar
sannarlega góðu. Vonandi verður framhald
á lagasmíðum og útgáfu. Lagið Viking á
örugglega eftir að slá í gegn. Glæsilegt
framtak drengir!
IH
Máni, Orn og Alli með nýja diskinn.