Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2005, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 29.06.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 2005 ^aCssunuiKii Veðurathuganir í Norska húsinu STYKKISHÓLMUR: Laug- ardaginn 2. júlí klukkan 14 opnar sýning í Norska húsinu í Stykkishólmi tileinkuð sam- felldum veðurathugunum á Is- landi í 160 ár. Magnús Jónsson, veðurstofustjóri opnar sýning- una og þá verða einníg vígðir 19. aldar útihitamælir og úr- komumælir sem Veðurstofa Is- lands hefur sett upp við Norska húsið. Sýningin er opin daglega frá kl. 11.00 til 17.00 og stend- ur til 1. ágúst. -mm Klafamenn samþykktu AKRANES: Síðastliðinn fimmtudag fór fram kynning og atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamnings starfsfólks sem vinnur hjá Klafa á Grundar- tanga. Fundurinn var haldinn í matsal Islenska járnblendifé- lagsins. I atkvæðagreiðslu um samninginn voru 26 starfsmenn á kjörskrá og kusul9 þeirra eða 73%. Já sögðu 16, eða 84.2% en nei sögðu 3 starfsmenn, eða 15,8%. -mm Algjör Sirkus REYKJAVÍK: í síðustu viku var gefið út fyrsta eintakið af nýju vikublaði sem ber nafnið Sirkus Reykjavík. Samkvæmt aðstandendum blaðsins, 365 prentmiðlum, er markhópurinn yngri kynslóðin, en þó ekki að- eins höfuðborgarbúar eins og nafnið gefur til kynna heldur landsmenn allir. Dreifa átti blaðinu um allt land þar sem það átti að vera selt í lausasölu. A föstudag þegar fyrsta blaðið kom út var þó erfitt að nálgast blaðið á Vesturlandi og var það ekki til sölu í Ólafsvík, Borgar- nesi né Akranesí. Talsmenn blaðsins höfðu ekki svör á reið- um höndum við spurningum varðandi dreifingu blaðsins önnur en þau að blaðinu er dreift með Islandspósti og ætti að fást hvar sem er á landinu. -gg Sjöfh Þór verð- ur prestur REYKIIÓLAR: Átta manns sóttu um stöðu prests við Reyk- hólaprestakall, en umsóknar- ffestur rann út 16. júní síðast- liðinn. Þeir sem sóttu um voru eftírtaldir: Aðalsteinn Þor- valdsson, Birgir Thomsen, Bryndís Valbjarnardóttir, Hannes Björnsson, Hólmgrím- ur Elís Bragason, Ingólfur Hartvigsson, Sjöfh Þór og Sól- veig Jónsdóttir. Á fundi val- nefndar, sem ffam fór sl. mánu- dag var ákveðið að veita brauð- ið Sr. Sjöfh Þór, guðffæðingi. Hún mun taka við 1. ágúst nk. af núverandi presti, séra Braga Benediktssyni. Sr. Sjöfn Þór er af prestskyni, barnabarn Sr. Þóraríns Þór sem þjónaði sama prestakalli lengi á síðustu öld. -mm Búið er aí girða bœði gaðinga- og kynbótavöll afmeð hvítu plastefhi. Fjórðungsmótíð að hefjast Allt er nú klárt fyrir Fjórðungs- mót Vesturlands sem fram fer á Kaldármelum, en mótið hefst á morgun fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Mótssvæðið er komið í sparibúning og starfsmenn hafa undanfarna daga unnið hörð- um höndum að lokaffágangi. Eins og greint var ffá í síðasta blaði var metþátttaka í skráningum fyrir mótið, vel á 4. hundrað hrossa skráð til leiks og von á miklum fjölda gesta um helgina. Á vefnum 847.is er listi yfir ráslista mótsins. Knapafundur er í kvöld klukkan 21 í veitingatjaldinu á staðnum. I næstu viku birtum við myndir ffá mótinu og helstu úrslit. Skessu- horn óskar vestlenskum hesta- mönnum og gestum þeirra góðra daga og skemmtunar á Kaldármel- um. MM Verið var að slá áhorfendabrekkuna sl. fimmtudag þegar Ijósmyndari leit við á Kaldármelum. Fækkun ferðamanna? Aðilar í ferðaþjónustu á Snæfells- nesi verða sumir varir við færri ferðamenn það sem af er sumri miðað við sama tíma í fyrra. Ragn- ar Mar Sigrúnarson, umsjónarmað- ur Pakkhússins í Olafsvík, segir fjölda heimsókna erlendra ferða- manna á dag vera næstum þriðjungi færri þar en í fyrra. Bent hefur ver- ið á hátt gengi krónunnar í þessu samhengi og segir Ragnar það vera líklega skýringu á slakari aðsókn það sem af er árinu. Ferðir til landsins verða dýrari og getur það fælt margan ferðamanninn frá. Þó er lítdl ástæða til svartsýni þar sem fjöldi ferðamanna er þó meiri en fyrir tveimur árum og er þeim því að fjölga þrátt fyrir þetta bakslag. I Ragnar Mar Sigrúnarson umsjónarmaður Pakkhússins við eitt borðanna ájarðhitð hússins þar sem tylla sér ogfá sér kaffisopa og meðlœti. Pakkhúsinu, sem er gamalt verslun- arhús, er Byggðasafh Snæfellsbæjar og er þar hægt að virða fyrir sér „Krambúðarloftíð“ sem er föst sýning á effi hæð hússins auk tímabund- inna listsýninga sem eru á jarðhæð. Þar er einnig upplýsingamiðstöð fýrir ferðamenn þar sem hægt er að kaupa minja- gripi og spyrja ráða varðandi ferðir um Snæ- fellsnesið. Á Færeyskum dögum helgina 1. til 3. júlí verður opnuð sýn- ing í Pakkhúsinu um Þórð Halldórsson, refa- skyttu og sjómann á- samt fleiru, ffá Dagverðará en hún verður í gangi í allt sumar. GG er að 1000 dagar án vimmslyss með fjarveru Starfsmenn íslenska jámblendifé- lagsins á Grundartanga fögnuðu því sl. fimmtudag að 1000 dagar eru liðnir ffá því að síðast varð vinnuslys sem leiddi til fjarveru starfsmanns félagsins. Margþætt starf hefur stuðlað að þessum árangri. Aukin áhersla hefur verið lögð á bætta umgengi, þrif og ýmsar merkingar á vinnustaðnum. Merkingarnar snúast um notkun rétts öryggisbúnaðar, vamaðarorð af ýmsu tagi, hvar geyma eigi hin ýmsu tæki og tól, merking gangbrauta o.fl. I þessu sambandi má einnig nefna að í síðusm kjarasamningum vom sam- þykkt bónusákvæði sem tengjast snyrtímennsku á vinnusvæðum, notkun öryggisbúnaðar og skrán- ingu á hættulegum aðstæðum. Þá er mikil áhersla lögð á að skrá öll óhappatilvik og hættulegar aðstæð- ur. Þau tilvik em graimskoðuð og leitað úrbóta. Árangur þessa er að minni háttar óhöppum hefur einnig fækkað umtalsvert. Að lokum má nefiia að hjá Jámblendifélaginu er unnið að því að innleiða aðferða- fræði sem móðurfyrirtæki þess nefh- ir „Elkem Business System“. Að- ferðafræðin á rætur sínar að rekja tíl Toyota. Áhersla er m.a. lögð á að staðla vinnubrögð og umgengni. Staðlar em unnir með viðkomandi starfsmönnum og gjarnan settír ff am á myndrænan hátt á starfsstöð- inni. Framkvæmdastjórn Járn- blendifélagsins óskar starfsmönnum sínum til hamingju með árangurinn og hvetur þá til að halda áfram á sömu braut. MM Sjómenn í skóla SNÆFELLSNES: Skólaskipið Sæbjörg, fyrram Akraborgin, hefur að undanförnu verið í Olafsvík og hafa sjómenn af Snæfellsnesi verið þar á nám- skeiðum varðandi öryggismál. Sæbjörgu eignaðist Slysavarna- félagið Landsbjörg árið 1998 og hefur skipið síðan verið notað til kennslu. -mm Brúðarbandið í víking DANMÖRK: Hin vestlensk - ættaða, að hluta til, rokkhljóm- sveit Brúðarbandið heldur svo sannarlega uppi merkjum lands- hlutans á hinni ffægu tónlistar- hátíð í Hróarskeldu í Danmörku sem fram fer næstu daga. Band- ið leikur á miðvikudagskvöld á hátíðinni og mun auk þess veita fjölda viðtala og m.a. koma ffam í danska ríkisútvarpinu. f band- inu era alls 7 stúlkur, 2 eru ffá Akranesi og 2 úr Borgamesi. Auk þeirra spilar á hljómborð Guðbjörg Guðmundsdóttir, sem starfar í sumar sem blaða- maður á Skessuhorni. Orri Harðar hljóðblandaði hljómdisk Brúðarbandsins „Meira!“og Birgir Baldursson, einnig Skagamaður, tók diskinn upp. -mm Leifshátíð á sama tíma DALIR: Hin árlega héraðshátíð Dalamanna, Leifshátíð fer ffam að venju helgina 8.-10. júlí nk. Dagskrá hátíðarinnar hefur ver- ið send inn á öll heimili í ná- grannahéraðum og era Vest- lendingar hvattir til að kynna sér skemmtilega og memaðarfulla dagskrá þar sem kennir margra grasa á borð við víkingabúðir, söngleik, færeyska dansa, ghmu, steintök, atriði úr Ávaxtakörf- unni, grill, Halla Reynis, trölla- sögur, dansleiki og m.m.fleira. Á svæðinu verður Eiríkur rauði alla helgina ásamt fjölskyldu sinni og ffænda; Þorgeiri Ást- váldssyni, sem verður kynnir há- tíðarinnar. Allir í Dalina! -mm Húsnæðis- og borgarmál BIFRÖST/RVK: Fjölþjóðleg ráðstefna um húsnæðis- og borgarmál verður haldin Öskju, náttúraffæðihúsi Háskóla fs- lands dagana 29. júní - 2. júh. Að ráðstefhunní standa Borgar- ffæðasemr Háskóla íslands og Rannsóknarsemr í húsnæðis- málum við Viðskiptaháskólann Bifföst í samvinnu við íbúða- lánasjóð og félagsmálaráðuneyt- ið. Yfirskriff ráðstefiiunnar er „Housing in Europe: New Challenges and Innovations in Tomorrow’s Cities" og er með henni leitast við að draga ffam hvemig stefhumótun í húsnæð- ismálum er að verða æ þýðingar- meiri fyiir heildarþrótm borga hvarvema heiminum á 21. öld- WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla mi&vikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 1-4:00 á þriöjudogum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriöjudögum. Blaðiö er gefið út f 3.000 éintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverö er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greítt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DACA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhom@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhom.is Guðbjörg Cuðmundsdóttir 895 0811 gugga@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. 696 7139 iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is Prentun: ísafoldarprentsmiðja ...

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.