Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2005, Qupperneq 10

Skessuhorn - 29.06.2005, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 2005 ..rSMlih..- Björt og glæsileg húsakynni SPM telán í notkun UHéI' 1 ifBfy 4 j|'‘ 4 * •*“ - ■ hBH u -, „j, í > Úr afgreihlu SparisjóSsins áfyrstu hæð skirmmu áiur enfyrsti viðskiptavinurinn var afgreiddur. Ljósm : HSS. ÞaSfer vel um þau Halldóru Agústu Pálsdóttur, Katrínu Magnúsdóttur og Þórberg GuSjónsson, starfsmenn SPM á annarri hæS nýju byggingarinnar. Ljósm: MM Síminn býður Borgnesingum sjónvarpsþjónustu Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. íbúar í Borgamesi hafa nú bæst í hóp þeirra Vesdendinga sem geta tengst sjónvarpsþjónustu Símans og horft á fjölda sjónvarpsstöðva gegnum ADSL þjónustu Símans. Fyrirtækið hóf í fyrra sjónvarpsút- sendingar í gegnum ADSL á 10 stöðum á landsbyggðinni en nú era staðimir orðnir 50. Akranes bættist í hópinn í vor og þegar eru yfir 50% þeirra íbúa sem eru með ADSL-tengingu á Akranesi, búnir að tengjast sjónvarpsþjónustunni. Ibúar á Vesturlandi eru þar með mjög vel settir hvað varðar sjón- varpsþjónustu Símans því auk áður- greindra þéttbýlisstaða er þjónust- an í boði á Olafsvík, Hellisandi, Rifi, Grundarfirði, Stykkishólmi og í Búðardal. Uppsetning innifalin „Hægt er að panta þjónustuna á vefnum okkar, www.siminn.is/sjon- varp. Það er mjög einfalt að tengj- ast þjónustunni, því starfsmenn Símans koma heim til viðskiptavina og setja upp nýjan ADSL endabún- að ásamt stafrænum myndlykli. Annað þarf ekki til þess að unnt sé að horfa á sjónvarp í bestu mögu- legu mynd- og hljóðgæðum. Þess má geta að uppsetningin er án við- bótarkostnaðar. Það er líka hægur vandi ef fólk er með intemetþjónustu annars- staðar, að skipta yfir í ADSL þjónustu Símans,“ bætir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans við. Hús segir að áhuga- menn um enska boltann ættu sérstaklega að huga að því að vera tilbúnir strax, þ.e. að tengjast sjónvarpsþjónusm Sím- ans áður en boltinn byrjar að rúlla nú í ágúst. Ný á- skriftarstöð Islenska sjón- varpsfélagsins, tileinkuð enska boltanum, mun eingöngu verða send út á sjónvarpskerfum Símans frá og með næsta leik- tímabifi. I dag er biðtími eftir uppsemingu um tvær vikur en búast má við lengri biðtíma í ágúst þegar útsendingar enska boltans hefjast. Þrjár áskriftarleiðir Að sögn Evu Magnúsdótmr geta viðskiptavinir Símans valið um þrjár áskriftarleiðir. „I fyrsta lagi er um að ræða aðgang að opnum sjón- varpsstöðvum (RUV og SkjáEin- um) og geta viðskiptavinir náð út- sendingum þessara stöðva án við- bótargjalds við ADSL mánaðar- gjaldið. I öðra lagi er um að ræða á- skriftarpakka með 8 erlendum sjón- varpsstöðvum auk opnu stöðvanna. Fyrir þennan pakka greiða við- skiptavinir 1.695 krónur á mánuði," segir Eva. Ennffemur fá þeir sem panta þjónustuna fyrir 18. júlí fyrsta áskriftarmánuðinn án auka- gjalds. I byrjim ágúst hefjast síðan útsendingar enska boltans og mun áskriftargjald stöðvarinnar verða frá 1.990 kr. á mánuði. MM Flutningur starfsemi Sparisjóðs Mýrasýslu í nýjar höfuðstöðvar gekk í alla staði vel og það var bjart yfir starfsfólki sjóðsins sl. föstudag þegar það var nýlega búið að máta nýju stólana og koma sér fyrir á nýj- um vinnustöðvum að Digranesgötu 2 í Borgarnesi. Samhliða því að nýja húsið var tekið í notkun var bæði fyrrum húsnæði við Borgarbraut 14 og útibúinu í Hyrnutorgi lokað og er því öll starfsemi SPM í Borgar- nesi nú undir einu þaki. „Flutning- urinn gekk ljómandi vel, engin vandamál komu upp og starfsemin er komin í gott horf hér á nýja staðnum,“ sagði Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri í samtali við Skessu- horn. Mikill mannfjöldi skoðaði húsakynni Sparisjóðsins sl. sunnu- dag en þá var opið hús fyrir al- menning og veitingar í boði. „Það var gríðarlegur mannfjöldi sem leit við hjá okkur - skipti mörgum hundruðum,“ sagði Gísli. Hann segir að flestum komi skemmtilega á óvart þegar komið er í fyrsta skipti inn í húsið hve þar er bjart og hlut- unum haganlega fyrir komið og út- sýni m.a. út á klettana og mann- gerða tjörn bakvið húsið er glæsi- legt og umhverfið fer vel við bygg- inguna. „Húsið er ffemur þtmgbúið að sjá að framanverðu en þvert á móti bjart þegar inn er komið með stóram gluggum og útsýni til allra átta.“ Aðspurður um næsm stóra skref í framþróun starfsemi Sparisjóðs Mýrasýslu, þegar þessum áfanga er náð, svarar Gísfi því til að verið sé að skoða ffekari vöxt starfseminnar og hugsanlega fleiri útibú, þó ekk- ert hafi enn verið ákveðið. „Við erum alltaf með augun opin og úti- lokum ekki opnun útibúa hér í landshlutanum. Nú vinna í allt um 70 manns á ölltun stöðum sem und- ir okkur heyra, þ.e. hér í Borgar- nesi, í Reykjavík, á Siglufirði og Ólafsfirði,“ segir Gísfi, en sjóður- inn á eins og kunnugt er allt stofh- fé í Sparisjóði Olafsfjarðar og Sparisjóði Siglufjarðar. MM Gísli Kjartansson, sparisjóSsstjóri á spjalli viS Bjama Jóhansen í Fljótstungu, einn gest- annafyrsta daginn í nýju höfuSstóSvunum. Ljósm: MM Rætt vio lægstbjóðanda um leikskólabyggingu Á fundi bæjarráðs Stykkishólms þann 16. júní sl. var samþykkt að hafna öllum tilboðum í byggingu leikskóla við Búðanesveg, þar sem þau voru langt yfir kostaðaráætl- un. Bæjarstjóra var jafnffamt falið að ganga til viðræðna við Skipavík hf., sem átti lægsta boð í verkið og fara vandlega yfir kostnaðarliði sem hægt er að lækka. Alls buðu 3 aðilar í verkið og þar af voru tveir með frávikstilboð. Oli Jón Gtmn- arsson, bæjarstjóri sagði í samtali við Skessuhom að stefht væri að því að ganga frá samningi við Skipavík á bæjarráðsfungi eftir 2 vikur. „Verktakinn og við hjá bæj- arfélaginu erum að vinna ákveðna hluti og ætlum efrir næstu viku að setjast yfir verkáætlun, kostnað og slíkt og stefhum á að ganga ffá samningi á bæjarráðsfundi fyrri hlutann í júlí.“ MM Togari verður fóðurskip Gamli Haraldur Böðvarsson AK-12, togari HB Granda er nú að fá nýtt hlutverk þar sem verið er að gera breytingar á skipinu til að það geti þjónað hlutverki fóðurskips. Skipið heitir nú Stapaey og fer fljótlega austur á Berufjörð og verður fóðurstöð fyrir laxeldi sem þar er stundað á vegum dótturfé- lags HB Granda. Hér er skipið í höfhinni við Krókalón á Akranesi og bíður efrir að fá hvítan lit á stýr- ishúsið. Að öðru leyti er það komið í einkennisliti HB Granda. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.