Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2005, Qupperneq 15

Skessuhorn - 29.06.2005, Qupperneq 15
Jk£3»un</^ MIÐVIKUDAGUR 29. JXÍNÍ 2005 15 Ný tegund af ferða- og menningarmiðstöð Eyrbyggja - Sögumiðstöð er upplýsinga- og ferðamiðstöð í Grundarfirði. Þann 17. júní var þar opnuð sýning sem nefnist „Lífsbjörg þjóðar". Ingi Hans Jónsson er forstöðumaður Sögu- miðstöðvarinnar: „Hér á svæðinu eru myndarleg byggðasöfn þannig að við vildum vera öðruvísi og vera góð viðbót við það sem fyrir er. Við erum að reyna að búa til nýtt módel af ferða- og menningarmið- stöð þar sem við drögum upp sögu síðustu aldar með óhefðbundnum hætti á staffænan máta og getum þannig höfðað til nýrrar kynslóðar. Við höfum unnið að þróun nýs sýningarbúnaðar ásamt EJS og Kudos Digital Group í London sem eru einna færastir í heiminum á þessu sviði. Þessi nýi búnaður er þannig hannaðtu- að allir ættu að geta nýtt sér hann og starfsmenn safna geta með honum unnið sjálf- ir að uppsetningu sýninga. Þetta er „puttavænn" gagnagrunnur, eins og ég útskýri hann stundum,“ seg- ir Ingi Hans. Það sem er einnig athyglisvert við þennan nýja búnað er að allt viðmót hans er ekki hannað af tölvusérfræðingi heldur af einstak- lingum með almenna tölvuþekk- ingu og því er ekki sú hætta fyrir hendi að hann verði of flókinn. „Gesturinn velur, með því að snerta tölvuskjá með einum fingri, hvaða tungumál hann vill heyra, hvað hann vill sjá, hvaða myndir koma upp á vegg og svo ffamleið- is. Ef verið er að sýna gömul verk- færi er hægt að velja eitt þeirra á skjá og með einni snertingu fengið frekari upplýsingar um það verk- færi, það getur verið kvikmynd eða ljósmyndir til dæmis. Þessi sýning- arbúnaður þarfnast ekki neinnar tölvukunnáttu. Þetta heitir á ensku „digital showroom" og við höfum notað vinnuheitið „two-touch- away“ sem vísar til þess að þú þarft aðeins að snerta skjáinn tvisvar og þá ertu kominn með allar upplýs- ingar.“ Þrátt fyrir góða undirbún- ingsvinnu hefur verið erfitt að fjár- magna stafrænar sýningar: „Svo virðist sem þeir sem stjórna sjóð- unum sem veita fjármagni í þessi mál sjái ekki sérstöðuna í þessu. Það er líka ákveðin varúð gagnvart hugbúnaðargerð sem er kannski eðlilegt því það eru margir sem fóru illa út úr þeim bransa um árið, þó að margt gott hafi líka komið fram.“ Auk sýningarinnar geta gestir Sögumiðstöðvarinnar leitað upplýsinga auk þess að fá sér kaffi eða virða fyrir sér gamlar ljós- myndir í Bæringsstofu. GG Nú bráðvantar fólk til ýmissa starfa í Dölum Mikill skortur er á vinnuafli í Dalabyggð og fjöldi starfa hafa ný- lega verið auglýst laus til umsókn- ar í sveitarfélaginu. Haraldur L Haraldsson, sveitarstjóri sagði í samtali við Skessuhom að nú þeg- ar vantaði 10-15 manns í ýmis störf bæði á vegum sveitarfélagins og axmarra aðila. „Meðal þeirra starfa sem nú vantar að manna má nefna bókara og fólk til afleysinga á sveitarfélagsskrifstofuna, þá vantar í störf hjá leikskólanum, í störf á Laugum í Sæhngsdal, í Mjólkur- stöðinni, trésmiði og ekki síst vant- ar fólk til sláturhússstarfa í haust. Það vantar jafht iðnaðarmenn sem faglært og ófaglært fólk,“ segir Haraldtn-. Hann telur skýringuna fyrir vaxandi eftírspurn eftir vinnu- afli nú felast m.a. í að byggð hafi verið upp atvinnutækifæri í sveitar- félaginu og árangur þeirrar vinnu sé nú að skila sér með jákvæðum hætti. Aðspurður um íbúðarhúsnæði fyrir væntanlegt starfsfólk segist Haraldur binda vonir við að aðili sem fengið hefur úthlutað lóðum fyrir byggingu 6 leiguíbúða fari af stað með ffamkvæmdir í sumar þannig að þær verði tilbúnar í haust. ,Annars er ekki mikið af lausu húsnæði eins og sakir standa, þó alltaf hafi það bjargast ffam að þessu að koma fólki fyrir,“ segir Haraldur. Hann segir að til viðbótar þeim störfum sem nú eru laus muni haustíð 2006 verða til 10-15 ný störfvið hjúkrunarheimilið á Fells- enda vegna þeirrar stækkunar sem nú er hafin á heimilinu. Það er því sannarlega bjart framundan í at- vinnumálum í Dölum. MM Safiiaðfyrir útskriftarferð Þessar glæsilegu stúlkur úr í Borgarnesi að selja vörur en ágóða Varmalandsskóla í Borgarfirði ætla sölunnar á að verja tíl útskriftar- greinilega að hafa tímann fyrir sér, ferðar þeirra eftír 2 ár. því hér eru þær í anddyri Samkaupa Ljósm. HSS Ingi Hans við einn tölvuskjáinn þar sem hægt er að fá ýmsar upplýsingar um ferðaþjónustu á svæðinu með „puttavœnum “ hætti. BORGARBYGGÐ UMHVERFISVERÐLAUN - TILNEFNINGAR - Bæjarstjórn Borgarbyggbar og Lionsklúbburinn Agla hafa ákvebib ab veita í sameiningu viburkenningar fyrir fallegan garð, snyrtilega götu og sveitabýli í Borgarbyggð 2005. Hér með er auglýst eftir tilnefningum íbúa á þeim qörðum, götum og býlum sem þeir telja að ástæða sé til að hljóti viðurkenningu. Tilnefningarnar skal senda til Lionsklúbbsins Öglu, b.t. Elfu j Hauksdóttur Höfbaholti 10, Borgarnesi eba á netfangib i borgarbyggd@borgarbyggd.is fyrir 8. ágúst 2005. Bœjarstjórn Borgarbyggbar Lionsklúbburinn Agla Fimmtudaginn 30. júní Raqnheiður Gröndal ásamt landslioi íslenskra jazzhljóðfæraleikara Föstudaginn 1. júlí Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar Hjörleifsson flytja sígildar dægurperlur Veitingahúsið Tíminn og vatnið býður upp á glæsilegan matseðil og sanngjörn verð skoðið á: www.stelnsnar.is Tilboð: Fimmtudag - Laugardag Grillað gómsætt bjórlamb (Kryddlegið lambalæri í Egil's Gull bjór, hunangi, útlenskum og borgfirskum kryddjurtum) með ofnsteiktum kartöflubátum og steiktu grænmeti + 1 kaldur úr krananum = 1900 kr. Barnaskammtur + Stór Pepsi = 1000 kr. Fyrstur kemur fyrstur fær. Pantanir í síma: 433 5803 FOí

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.