Skessuhorn - 02.11.2005, Side 1
Munið aðventublaðið
23. nóvember
Samkaup lucrVfll
Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaðir • Hafnarfjörður • Húsavík • ísafjörður • Neskaupsstaður • Njarðvík • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd
Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 3,- 6.nóv.
Norðurál
greiðir mest
Norðurál ehf. greiðir hæstu
gjöldin á Vesturlandi samkvæmt
álagningarskrá fyrir lögaðila,
sem birt var á mánudaginn.
Greiðir fyrirtækið rúmar 70
milljónir króna. Akraneskaup-
staður er næsmr í röðinni með
tæpar 57 milljónir króna, Heil-
brigðisstofhun Akraness greiðir
tæpar 46 milljónir, Islenska járn-
blendifélagið tæpar 44 milljónir,
Guðmundur Runólfsson hf. í
Grundarfirði tæpar 39 milljónir,
Hraðfrystihús Hellissands hf.
rúmar 38 milljónir, Loftorka
Borgarnesi ehf. 38 milljónir,
Soffanías Cecilsson hf. rúmar 34
milljónir, Hvalur hf. tæpa 31
milljón og KG fiskverkun ehf.
greiðir rúmar 28 milljónir
króna.
HJ
Aðalfundur SSV var baldinn sl. föstudag á Hvalfjarðarströnd. Fundurinn þótti venju fremur góður en þar var m.a. landað mikilvœgu
máli sem er nýr menningarsamningur milli ríkisins og sveitarfélaga á Vesturlandi. A myndinni er endurkjörm stjóm SSVásamt
Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra sem staðfesti menningarsamninginn f.h. ríkisins. Sjá umfjöllun umfundinn á bls. 14-15.
Bflvelta við
Hvalíjarðar-
göngin
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús
í Reykjavík eftir bílslys við Hval-
fjarðargöngin sunnanverð um
eittleytið sl. föstudag. Sam-
kvæmt upplýsingum ffá slysa-
deild var fólkið ekki alvarlega
slasað og fékk fljótlega að fara
heim. Vegna slyssins voru Hval-
fjarðargöng lokuð fram eftir
degi og óku því margir fyrir
fjörð í ffemur slæmu veðri og
skyggni.
MM/Ljósm: KS
Mannvirki
hverfa af
Essólóðinni
Umhverfis- og skipulags-
nefnd Borgarbyggðar hefur
samþykkt beiðni Borgarlands
ehf. um að rífa öll mannvirkin á
gömlu Essólóðinni að Borgar-
braut 59 í Borgarnesi. Um er að
ræða húsið sem lengst af hýsti
gömlu Essóstöðina en nú síðast
Ferðaskrifstofu Vesturlands og
verslunina Knapann. A baklóð-
inni er svo húsnæði Biffeiða-
þjónustunnar sem rekur bæði
smurstöð og dekkjaverkstæði, en
sú starfsemi mun flytjast í næsta
hús, við hlið efnalaugarinnar
Múlakots. Eins og greint er frá í
blaðinu hefur Knapinn flutt sig
yfir götuna í Hymutorg með
verslun sína en Ferðaskrifstofa
Vesturlands hefur breytt um á-
herslur og er rekin í heimahúsi.
MM
Vetrarlægðir
hver af
annam
Skilti þetta lýsir betur en
margt annað veðráttunni nú í
vetrarbyrjun, en myndin var
tekin sl. föstudag. Haustlægðir
hafa gengið yfir hver af annarri
og enn eru umhleypingar í spá-
kortunum. Skessuhorn hvetur
ökumenn og umráðamenn bif-
reiða til að flýta dekkjasldptum
enda hefur mildð af illa „skóuð-
um“ bifreiðum verið á ferðinni í
hállíunni og hvassviðrinu und-
anfarna daga. Slys og óhöpp
endurspegla það, þó ekki sé
alltaf sumardekkjunum um að
kenna.
MM
Bónus opnar verslim á
Akranesi vorið 2007
Alcveðið hefur verið að Bónus
opni nýja verslun á Akranesi vorið
2007 en fram til þessa hefur engin
slík verslun verið í bæjarfélaginu.
Hefur fyrirtækið fengið úthlutað
lóð við Þjóðbraut undir hina nýju
verslun. Jóhannes Jónsson, eigandi
Bónus sagði í samtali við Skessu-
horn að nú þegar hafi verið samið
við verktakafyrirtækið Sveinbjörn
Sigurðsson ehf. um byggingu húss-
ins. „Það eru áætlanir uppi um að
gera Þjóðbraut aftur að aðalinn-
keyrslunni í bæinn og verðum við
því í afskaplega góðum tengslum
við umferðina,“ segir Jóhannes.
Hann segir að hin nýja verslun
verði svipuð að stærð og verslun
þeirra í Borgarnesi, eða 1100 til
1200 fermetrar að flatarmáli. Að-
spurður um ástæðu þess að Bónus
hafi nú ákveðið að byggja á Akra-
nesi segir Jóhannes: „Það hafa dun-
ið á okkur beiðnir frá fólki um að
við komum með verslun á Akranes.
Við höfum auk þess fengið gríðar-
lega jákvæðar viðtökur með nýja og
endurbætta verslun í Borgarnesi og
trú manna á áframhaldandi vöxt
þessa svæðis er sterk. Við erum því
ekki í vafa um að okkur verði vel
tekið á Akranesi sem annars staðar
Jóhannes Jónsson.
og fögnum því að tekin hefur verið
ákvörðun,“ sagði Jóhannes Jónsson
að lokum. MM
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
nettö
alltaf gott - alltaf ódýrt
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI
43. tbl. 8. árg. 2. nóvember 2005 - Kr. 300 í lausasölu
ATLANTSOLIA
Dísel *Faxabraut 9.