Skessuhorn - 02.11.2005, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER 2005
Tengivagn á bíl
MELASVEIT: Tengivagn valt í
Skorholtsbrekkunni í Leirár- og
Melasveit snemma sl. mánudags-
kvöld og lenti á kyrrstæðri fólks-
bifreið sem þar var í vegarkanti.
Við það festist ökumaður fólks-
bifreiðarinnar, sem var ung kona,
inni í bílnum. Kallaðir voru til
tækjabílar frá slökkviliðtmum á
Akranesi og í Borgarnesi til að-
stoðar við að losa konuna úr
bílnum. Hún var flutt á sjúkra-
húsið á Akranesi til aðhlynningar
en meiðsl hennar voru ekki al-
varleg og taldi vakthafandi lækn-
ir á SHA það ganga kraftaverki
næst hversu vel konan slapp og
undir það tóku slökkviliðs- og
sjúkraflutngamenn sem Skessu-
horn ræddi við. Morgun sama
dags fóru tveir bílar út af Vestur-
landsvegi í námunda við Skor-
holt. Engin slys urðu á fólki.
Minniháttar skemmdir á öðrum
bílnum. -mm
Móti samræmd-
um prófum
LANDIÐ: Vinstrihreyfingin -
grænt ffamboð leggst gegn sam-
ræmdum stúdentsprófúm í fram-
haldsskólum. I tilkynningu frá VG
segir m.a: „Eins og orðalagið gefúr
til kynna gera samræmd próf nám-
ið í framhaldsskólunum einsleitara
auk þess sem aðeins er prófað í
fáum greinum sem fá þá aukið
vægi á kostnað annarra." Þá vilja
Vmstri grænir meina að samræmd
próf muni njörva skólana niður í
sama far og reynslan sýni að brátt
gæti kennslan farið að snúast um
prófin en ekki um námið sem slíkt.
„Vinstri grænir krefiast þess að
horfið verði af braut miðstýringar
og samræmingaráráttu sem ein-
kennt hefur menntastefnu núver-
andi ríkisstjórnar,“ segir loks í
tillkynningu frá hreyfingunni.
-mm
Sögunemar í
ferðalag
AKRANES: í byrjun október
lögðu 13 nemendur ásamt kenn-
urum við Fjölbrautaskólann á
Akranesi upp í söguferð tdl Dan-
merkur og Svíþjóðar. Ferð þessi
var hluti af námsskrá söguáfang-
ans Norðurlandasaga. Fyrst var
haldið til Kaupmannahafnar þar
sem danska Þjóðminjasafnið var
skoðað. Þaðan var svo ferðinni
heitið til Svíðþjóðar og háskóla-
bærinn Lundur heimsóttur ásamt
framhaldsskólanum í Almhult.
Ferðinni lauk með viðkomu í Kal-
mar í Svíþjóð þar sem m.a. Kal-
markastali var skoðaður.
-bg
Geðorðin tíu
SKILMANNAHREPPUR:
Hreppnefnd Skilmannahrepps
samþykkti fyrir skömmu að panta
50 eintök af bæklingnum Geð-
orðin 10 og dreifa þeim á öll
heimili í hreppnum. Lýðheilsu-
stöð gaf bæklinginn út og mæltist
til þess við sveitarfélögin í landinu
að honum yrði dreift á öll heimili.
-bj
Vilja ekld öryggisnet fyúr
nýjan bæjarstjóra
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjórn Akraness treysta
sér ekki til þess að samþykkja ráðn-
ingarsamning Guðmundar Páls
Jónssonar verðandi bæjarstjóra á
Akranesi vegna ákvæða um bið-
laun. Sem kunnugt er lætur Gísli
Gíslason af störfum bæjarstjóra á
Akranesi um næstu mánaðamót. I
hans stað var Guðmundur Páll
Jónsson forseti bæjarstjórnar og
starfsmannastjóri HB-Granda hf.
ráðinn bæjarstjóri til vors. I viðtali
við Skessuhorn fyrir nokkru sagði
Guðmundur Páll að hann hefði
fengið leyfi frá störfum sínum í
HB-Granda og ætti því afturkvæmt
í það starf. A bæjarráðsfundi 20.
október var lagður fram ráðningar-
samningur við Guðmund Pál frá 1.
nóvember 2005 til 30. júní. Bæjar-
-------------7»-----------------------
ráð, sem í þetta skipti var eingöngu
skipað varamönnum, samþykkti
samninginn með atkvæðum Krist-
jáns Sveinssonar og Magnúsar
Guðmundssonar fulltrúa meiri-
hluta bæjarstjórnar. Guðrún Elsa
Gunnarsdóttir fulltrúi minnihluta
bæjarstjórnar sat hins vegar hjá við
atkvæðagreiðsluna.
A fundi bæjarstjómar 25. októ-
ber kom ráðningarsamningurinn
til staðfestingar. Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, Gunnar Sig-
urðsson, Guðrún Elsa Gunnars-
dóttir, Sæmundur Víglundsson og
Þórður Þ. Þórðarson lögðu fram
svohljóðandi bókun: „I ráðningar-
samningi Guðmundar Páls Jóns-
sonar sem bæjarstjóra Akranes-
kaupstaðar er ákvæði um þriggja
mánaða biðlaun eftir að ráðningar-
tíma hans lýkur þann 30. júní 2006.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
á Akranesi geta ekki samþykkt
þennan ráðningarsamning vegna
þess að Guðmundur Páll Jónsson
fékk launalaust leyfi ffá starfi sínu
hjá HB-Granda hf. til að gegna
starfi bæjarstjóra Akraneskaupstað-
ar og getur því gengið beint inn í
fyrra starf sitt að loknum ráðning-
artíma sem bæjarstjóri. Vegna þess
er ástæðulaust að Guðmundur Páll
Jónsson hafi öryggisnet af hálfu
Akraneskaupstaðar."
Ráðningasamningur Guðmund-
ar Páls var síðan borinn upp í bæj-
arstjóm og greiddu fiórir bæjar-
fulltrúar honum atkvæði en Guð-
mundur Páll bókaði að hann tæki
ekki þátt í atkvæðagreiðslunni
vegna vanhæfis. HJ
Uthlutunarreglur byggðakvóta
í Hólminum
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar
hefur samþykkt samhljóða með
hvaða hætti byggðakvóta þeim er í
hlut sveitarfélagsins kom fyrir
skömmu verður úthlutað. Sem
kunnugt er komu 210 tonn í hlut
bæjarins. I reglunum segir að út-
hluta skuli kvótanum milli þeirra
útgerða sem áttu aflahlutdeild í
hörpudiski þann 1. september 2005
og stunduðu skelveiðar í Breiða-
firði á síðustu tveimur skelvertíð-
um. Þá verða bátarnir að hafa verið
skráðir í Stykkishólmi 31. október
2005 og skiptist kvótinn á gmnd-
velli aflahlutdeildar í hörpudiski
fiskveiðiárið 2005/2006.
Byggðakvótann þarf að veiða á
bátum skráðum í sveitarfélaginu,
landað þar og þar skal aflinn unn-
inn. Þá er útgerðum skylt að leggja
til aflaheimildir að lágmarki til jafns
við úthlutaðan byggðakvóta, sem
einnig verði unnin í fiskvinnslu í
bæjarfélaginu. I ágústlok 2006
skulu útgerðir þeirra skipa er fá út-
hlutun skila inn upplýsingum til
Stykkishólmsbæjar, um nýtingu
hans.
HJ
Niðurstöður búreikninga liggja fyrir
Árleg skýrsla Hagþjónustu land-
búnaðarins um uppgjör búreikn-
inga í hefðbundnum greinum land-
búnaðar fyrir árið 2004 er komin
út. I heild bámst bókhaldsgögn frá
381 búi víðsvegar að af landinu en
til uppgjörs nýttust gögn frá 346
búum. Búin í uppgjörinu fram-
leiddu 28,3% mjólkur sem lögð var
inn í afurðastöðvar á landinu á ár-
inu 2004 og 13,2% kindakjöts.
Skýrslan er birt í heild sinni á
heimasíðu Hagþjónustunnar á vef-
slóðinni: www.hag.is
Samkvæmt samanburði sömu
búa (135 bú) vora heildartekjur á
sérhæfðum kúabúum að meðaltali
15.190.000 krónur 2004 sem er
8,3% aukning ffá fyrra ári. Hagn-
aður fyrir laun eigenda nam að
meðaltali 1.929.000 krónum sem er
3,3% aukning milli ára. Innlegg
mjólkur í afurðastöð nam 150.334
lítrum sem er 5,4% aukning frá
fyrra ári. Meðalbúið var með 33,8
mjólkurkýr að meðaltali sem er
nánast óbreyttur bústofn saman-
borið við fyrra ár, er fiöldi mjókur-
kúa var 33,7.
Samkvæmt samanburði sömu
búa (53 bú) vom heildartekjur á
sérhæfðum sauðfiárbúum að með-
altali 4.158.000 krónur 2004 sem er
5,6% aukning frá fyrra ári. Hagn-
aður fyrir laun eigenda nam að
meðaltali 996.000 krónum sem er
3,8% aukning milli ára. Innlegg
kindakjöts í afúrðastöð nam 6.461
kílóum sem er 12,3% aukning frá
fyrra ári. Meðalbúið var með 312,1
vetrarfóðraða kind sem er nánast ó-
breyttur bústofn samanborið við
fyrra ár, er fiöldi vetrarfóðraðra
kinda var 311,7.
MM
Með riffil á rjúpnaveiðum
„Við vorum vestur í Dölum nú
um helgina og fengum góða veiði,
samt var maður bara með riffil á
veiðunum, það er svo miklu
skemmtilegra núna,“ sagði Þórarinn
Sigþórsson, veiðimaður og tann-
læknir í samtali við blaðamann nú í
vikubyrjun. Aðrir veiðimenn sem
vom á svipuðum slóðrnn í Dölunum
fengu 12 fugla og höfðu á orði að
fughnn hafi verið styggur. Fregnir
bárast af Jóhannesi Kristjánssyni
sem var á veiðislóðum á Snæfellsnesi
og fékk 10 rjúpur eftir daginn. Tveir
veiðimenn vom á Bröttubrekku og
fengu 15 fúgla.
Veiðimenn hafa víða fengið ágæta
rjúpnaveiði og aflatölur em nokkuð
góðar víða í landshlutanum. Asókn-
in er því greinilega mikil efdr langt
veiðibann. Fróðir menn telja að nú
sé a.m.k. búið að skjóta á milli 5 og
6 þúsund fúgla það sem af er veiði-
tímabilsins. GB
Tóta timn fmnst skemmtilegast aó veiða rjúpuna með riffli. Spuming hvort þaS se' þá
rjúpnagúllash í matinn hjá honum ájólunum!
Enn er einn
sem hand-
mjólkar
LANDIÐ: Landssamband kúa-
bænda hefur tekið saman gögn
um þróun í fiósbyggingum síð-
ustu tvö ár, en sambærileg
könnun var gerð haustið 2003.
Fram kemur í niðurstöðum að
fiósum hefur fækkað um 111 á
þessum tveimur áram, úr 873 í
762 og lækkar hlutfall básafiósa
úr 86% í 77%. Hlutfall legu-
básafiósa með mjaltaþjónum
hefur hækkað gríðarlega mikið,
eða úr 1,3% af heild haustið
2003 í 5,4% nú í október 2005
og er með því hæsta sem gerist
í heiminum. Þá vekur verð-
skuldaða athygli að enn er einn
kúabóndi hér á landi sem hand-
mjólkar kýr sínar og 16 til við-
bótar eru með fötukerfi við
mjaltir.
-mm
Embla í
menntaskóla-
nefiid
BORGARFJÖRÐUR: Hrepps-
nefnd Borgarfiarðarsveitar hef-
ur tilnefnt Þórvöm Emblu
Guðmundsdóttur til að vinna
fyrir hönd hreppsins með
starfshópi þeim er undirbýr
stofnun menntaskóla í Borgar-
nesi. Hópinn skipa fulltrúar frá
Borgarbyggð, Viðskiptaháskól-
anum á Bifröst og Landbúnað-
arháskólanum á Hvanneyri. I
bókun hreppsnefndar kemur
fram að nefndin treysti því „að
við skipulag skólans, bæði hið
ytra og innra, verði við það
miðað að hann sinni vel ung-
lingum svæðisins," eins og seg-
ir orðrétt í bókun nefndarinnar.
Aðrir nefndarmenn em Agúst
Sigurðsson, rektor LBHI, Run-
ólfur Agústsson rektor Við-
skiptaháskólans og Helga Hall-
dórsdóttir, forseti bæjarstjórnar
Borgarbyggðar.
-hj
Forsetaembætt-
ið til Samfylk-
ingarinnar
AKRANES: Kristján Sveins-
son, bæjarfulltrúi Samfylking-
arinnar var í síðustu viku kos-
inn forseti bæjarstjórnar Akra-
ness með átta samhljóða at-
kvæðum. Tekur hann við for-
setaembættinu af Guðmundi
Páli Jónssyni sem ráðinn hefur
verið bæjarstjóri. Hefur emb-
ætti forseta því færst frá Fram-
sóknarflokknum við ráðningu
nýs bæjarstjóra. Þá var Agústa
Friðriksdóttir bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar kjörin vara-
forseti. Magnús Guðmundsson
bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins var kjörinn í bæjarráð
í stað Guðmundar Páls.
-hj
mm
SKESSUHÖ
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miövikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þribjudögum. Auglýsendum er bent á a& panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þribjudögum.
Blabið er gefiö út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og f
lausasölu.
Áskriftarver& er 1000 krónur meb vsk. á mánubi en krónur 900
sé greitt meb greibslukorti. Verb í lausasölu er 300 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 alla virka daca
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blabamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Gubrún Björk Fribriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is