Skessuhorn - 02.11.2005, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005
SB1SSUIIÖ12RI
Bæjarráð Akraness hafiiar bótaskyldu vegna lóðaúthlutunar
Bæjarráð Akraness hefur hafnað
kröfu hjóna um bætur vegna sölu
húss þeirra vegna fyrirhugaðrar
nýbyggingar á lóð er þau höfðu
fengið úthlutað. Ekki varð af ný-
byggingunni af ýmsum ástæðum
og því fóru hjónin fram á bætur úr
bæjarsjóði.
Forsaga málsins er sú að hjónin
bjuggu í Garðholti, Garðagrund
29b á Akranesi en það hús höfðu
þau fest kaup á árið 1992.
Nokkrum árum eftir að þau höfðu
fest kaup á húsinu var gert nýtt
skipulag af svæðinu sem gerði ráð
fyrir fjölbýlishúsi skammt frá húsi
hjónanna. I bréfi, sem þau sendu
bæjarráði, segir að áætlað hafi ver-
ið að byggja 3-5 hæða hús skammt
frá húsi þeirra „eða um 20 metrum
frá stofuglugga okkar,“ segir í bréf-
inu. Hjónin ásamt nágrönnum
þeirra reyndu að knýja fram breyt-
ingar á skipulaginu og varð niður-
staðan sú að fjölbýlishúsið var fært
fjær og lækkað í 3 hæðir. Þau töldu
forsendur fyrir veru sinni í Garð-
holti brostnar því þau vildu ekki
búa í þéttbýli.
I framhaldinu óskuðu þau eftir
lóð og brást bæjarfélagið skjótt við
beiðni þeirra og þann 12. desem-
ber 2002 var þeim úthlutað lóð við
Innstavog í Vogahverfi. Eftir sam-
töl við starfsmenn bæjarfélagsins,
þar á meðal bæjarstjórann Gísla
Gíslason, ákváðu þau að selja
Garðholt í febrúar 2003 á 8,5
milljónir króna. Af ýmsum ástæð-
um gat Akranesbær ekki staðið við
lóðarúthlutun sína og hófst þá að
nýju leit að lóð og fékkst loforð
i ’ 'Xcí, ‘->4-''''|
Rykmengun frá
Jámblendiverksmiðjunni
Rykmengun var í útblæstri frá
Járnblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga síðastliðinn miðvikudag
vegna viðgerða á skolloftsviftu.
Viftan sér um að hreinsa poka
reyksíu verksmiðjunnar og því var
eitt reykhreinsivirki verksmiðj-
unnar óvirkt um tíma meðan við-
gerð stóð yfir eða fram undir
kvöldmatarleitið. I tilkynningu frá
verksmiðjunni segir að ekki hafi
verið mögulegt að skipta um viftu-
hjól þegar reykhreinsivirkið er í
rekstri. Þá fer útblástur frá ofnin-
um ósíaður um skorsteina og ryk í
reyknum verður sýnilegt vegfar-
endum.
Kísilrykið er aukaafurð í járn-
blendiframleiðslu og er selt bæði
innanlands og utan. Því er meðal
annars blandað í sement hérlendis
til þess að vinna gegn alkalí-
skemmdum. Einnig selur fyrirtæk-
ið verulegt magn til Japan þar sem
rykið er notað í framleiðslu á þak-
plötum. Ekki eru þekkt neikvæð
umhverfisáhrif af kísilryki ef frá er
talin sjónmengun og óþægindi
vegna þess. Þá segir í tilkynning-
unni að reyklosunar megi að há-
marki vera 1,5% af rekstrartíma,
reiknað sem þriggja ára meðaltal,
samkvæmt starfsleyfi Islenska járn-
blendifélagsins ehf. Raunlosun
fyrir ofn 1 hefur verið 0,2% und-
anfarna 12 mánuði. Segir að það sé
markmið félagsins að vera sem
hingað til í fremstu röð á þessu
sviði og helst að ná enn betri
árangri .
HJ/ Ljósm: MHH
Landsbankiiin styður við
umferðaröryggi
Nemendur í fyrsta bekk Brekku-
bæjarskóla komu í heimsókn í
Landsbankann á Akranesi á þriðju-
daginn í liðinni viku til að fá af-
hent endurskinsvesti sem bankinn
gaf þeim. Endurskinsvestin ætla
krakkarnir að nota í vettvangsferð-
um á vegum skólans. Allir krakk-
arnir voru klæddir í vestin og síðan
sungu þau fyrir bankastarfsmenn.
Á myndinni eru auk krakkanna;
kennarar þeirra og fulltrúar frá
Landsbankanum.
MM/ Ljósm: Valdís.
fyrir sjávarlóð í landi Ytri-Hólms
en hana fengu þau ekki afhenta
fyrr en í janúar á þessu ári. „I milli-
tíðinni höfum við búið í þröngu
bráðabirgðahúsnæði,“ segir í bréfi
þeirra til bæjarráðs. Vegna þessar-
ar seinkunar telja þau sig hafa orð-
ið fyrir fjárhagstjóni því Garðholt
hafi £ tvígang verið selt frá því að
þau seldu það og í síðara skiptið í
apríl á þessu ári. Þá var söluverð
hússins 12 milljónir króna. Sú
hækkun er tilkomin vegna hækk-
andi fasteignaverðs á Akranesi.
I bréfi hjónanna segir orðrétt:
„Ljóst er að við höfum orðið fyrir
verulegu fjárhagstjóni við að bær-
inn gat ekki staðið við loforð um
afhendingu lóðarinnar við Innsta-
vog en hvorki hefur úthlutun lóð-
arinnar verið dregin til baka né
okkur gefinn kostur á annarri lóð á
Akranesi.“ Telja þau sig því hafa
orðið fyrir tjóni sem nemur um 3
milljónum króna. Óska þau því
eftir viðræðum við bæjarfélagið
hið fyrsta um málið.
I bókun bæjarráðs er tekið fram
að fyrirvari hafi verið gerður um
hvenær umrædd lóð í Innstavogi
gæti orðið byggingarhæf og ræki-
lega hafi verið gerð grein fyrir því
að Orkuveita Reykjavíkur var ekki
reiðubúin til að leggja nauðsynleg-
ar lagnir vegna vatns og rafmagns
sökum þess að slíkt yrði of kosm-
aðarsamt á meðan ekki fleiri sóttu
um lóð á umræddu svæði. Þá segir
að bæjarfélagið hafi enga aðkomu
haft að sölu Garðholts og geti því
ekki fallist á að ákvarðanir hjón-
anna í þeim efnum leiði til ábyrgð-
ar bæjarins. „I ljósi framanritaðs er
ekki unnt að verða við erindinu, en
bæjarritara falið að láta lögmann
fara yfir gögn málsins," segir í nið-
urlagi bókunar ráðsins.
HJ
Hestavöruverslunin
Knapinn flutt
í Hymutorg
Á föstudaginn síðastliðinn var
starfsemi hestavöruverslunarinnar
Knapans flutt frá fyrra húsnæði á
Borgarbraut yfir í nýtt og glæsilegt
húsnæði í Hyrnutorgi (þar sem úti-
bú Sparisjóðsins var áður til húsa).
Mikið var um að vera við opnunina
á laugardaginn og voru hjónin
Guffy og Elli að vonum kát á þess-
um tímamótum. Þau þakka góðar
móttökur á nýjum stað og segja
framtíðina lofa góðu. I tdlefni flum-
ingsins eru hin ýmsu tdlboð í boði
auk 10% afsláttar af flestum vörum
út vikuna. Mikið úrval nýrra vara er
að vænta á næsm vikum svo úr
mörgu er hægt að velja þegar finna
skal jólagjöf hestamannsins í Knap-
anum þetta árið.
BG
Kosið að nýju í
Reykhólahreppi
A laugardaginn kemur gefst íbú-
um Reykhólahrepps tækifæri að
nýju til þess að segja hug sinn til
hugsanlegrar sameiningar sveitar-
félagsins við Dalabyggð og Saur-
bæjarhrepp. I kosningunum þann
8. október var umrædd sameining
felld í Reykhólahreppi en þar sem
íbúar hinna sveitarfélaganna sam-
þykkm og meirihluti þeirra er þátt
tóku í kosningunni í sveitarfélög-
unum þremur skulu íbúar Reyk-
hólahrepps gefa álit sitt að nýju.
Kosning fer ffarn í Hótel Bjarka-
lundi frá kl. 12-18.
I runfjöllun á vef Reykhólahrepps
em íbúar Reykhólahrepps minntir á
að fjárhagsstaða Reykhólahrepps
hefur verið best þessara sveitarfélaga
í árslok 2004. Þá hafi aldursdreifing
íbúa verið hagstæðust þar. Þá kemur
ffam að samanlögð framlög úr jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga til sveitarfé-
laganna þriggja hafi verið 76 millj-
ónir en hefðu verið 85 milljónir
króna ef búið hefði verið að sameina
sveitarfélögin. Þá segir einnig að
fjárhagur sameiginlegs sveitarfélags
verði fyrir ofan meðaltal sambæri-
legra sveitarfélaga.
Þá hefur einnig komið fram að
sveitarstjórn Dalabyggðar hefur
óskað eftir sameiningu við Saur-
bæjarhrepp fari svo að íbúar Reyk-
hólahrepps felli aftur sameiningu
sveitarfélaganna. HJ