Skessuhorn - 02.11.2005, Síða 9
^aiðaunuiL
9
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005
Þingmenn í kjördæma-
heimsóknum
Síðastliðinn mánudag voru 9 af
10 þingmönnum NV kjördæmis á
ferð í Borgarnesi og hittu þar m.a.
fulltrúa sveitarstjóma á Vesturlandi.
„Á fundinum bar margt á góma,
eins og gefur að skilja, bæði sem lýt-
ur að landshlutanum öllum og
þrengri hagsmunamál svæða innan
hans eða einstakra sveitarfélaga,“
sagði Hrefna B Jónsdóttir, ffam-
kvæmdastjóri SSV í samtali við
Skessuhom. Sagði Hrefna að mikið
hafi verið rætt um framhaldsskóla-
mál, jafnt hugmyndina sem verið er
að vinna að á Borgarfjarðarsvæðinu
og snýr að menntaskóla sem og nýj-
an ffamhaldsskóla í Grundarfirði.
Einnig var lögð áhersla á að ffam-
boð iðnnáms við Fjölbrautaskólann
á Akranesi myndi ekki skerðast, því
ef iðnnámsffamboð er ekki í lagi, þá
fara nemendur að leita annað. „Það
barst í tal á fundinum sá kostnaður
Forvamastarf í
FVA
AKRANES: A þessari námsönn
við Fjölbrautaskólann á Akranesi
er forvarnarstarf við skólann með
svipuðu sniði og undanfarin
misseri, segir í ffétt á vef skólans.
Forystu í þessu starfi hafa for-
varnafulltrúi skólans og for-
vamahópur nemenda. A önninni
hefur hópurinn gengist fyrir
tveimur fyrirlestrum á sal skól-
ans. Sá fyrri var um sjálfsmat og
sjálfsmynd og sá seinni um kyn-
ferðislegt ofbeldi og forvarnir
gegn því. Forvamahópurinn hef-
ur einnig skipulagt spennandi
vélsleðaferð á Langjökul sem far-
in verður á morgun, 3. nóvember
og er hugsuð sem val fýrir nem-
endur að gera eitthvað skemmti-
legt án vímuefna. I gangi em þrír
stuðningshópar eða sjálfshjálpar-
hópar fyrir nemendur með ýmis
vandamál. Einn sérstaklega fyrir
stráka, einn stelpuhópur og loks
hópur fyrir þolendur kynferðis-
legs ofbeldis. -mm
sem sveitarfélögin á Snæfellsnesi
em að taka á sig vegna aksturs nem-
enda á Nesinu en sveitarfélögin
skiptu á milli sín tæplega fjögurra
milljóna króna halla eftir fyrsta
starfsár skólans. Þetta er nokkuð
sem Snæfellingar biðja um að verði
skoðað.“
Hrefna sagði miklar umræður
hafa verið um Landbúnaðarháskóla
Islands og var þar lagt upp með að
þegar stoftianir era sameinaðar, eins
og LBHÍ, að þeim sé tryggt að lagt
sé upp í slíka starfsemi án skuldahala
fyrri stofhana. Einnig var rætt um
samfélagið á Hvanneyri m.t.t. þeirra
tækifæra sem þar liggja og snúa að
útvíkkun starfseminnar og jafnvel
frekari flutningum stofnana til
Hvanneyrar til að nýta betur rann-
sóknarþáttinn o.fl. Þá segir Hrefna
að Anna Kristín Gunnarsdóttir, al-
þingismaður hafi rætt um flutning
opinberra stofnana út á landsbyggð-
ina. „Sagði þingmaðurinn nokkuð
áberandi að þegar stofnanir væm
fluttar út á land, þá lægju þær oft
undir neikvæðu umtali um að þær
stæðu sig ekki í sínu fagi. Vísaði
Anna Kristín í Byggðastofhun og
Landmælingar íslands á Akranesi í
því sambandi. Þetta er athyglisverð-
ur punktur og ég er sammála því að
ráðamenn verða að halda vöku sinni
til að verja þessar stofhanir gagnvart
neikvæðri og oft á tíðum ómaklegri
umfjöllun,“ sagði Hrefha.
Ymis fleiri mál bar á góma á þing-
mannafundinum með sveitarstjórn-
armönnum. Meðal annars var rætt
um að peninga skorti til að byggja af
reisn upp starfsemi við þjóðgarðinn
Snæfellsjökul eins og vonast var eft-
ir. „Það er ljóst að þjóðgarðurinn
færir okkur á Vesturlandi heilmikil
tækifæri ef vel verður staðið að upp-
byggingu og skipulagningu hans og
nægir að nefha tækifæri sem snerta
Green Globe verkefhið í því sam-
hengi.
Einnig var rætt á fundinum um
samgöngumál og vísað til ályktana
sem samþykktar vom á aðalfundi
SSV fyrir liðna helgi. MM
rtÚTUNGASAQ
* Bráðsmellinn **
gamanleikur í flutningi
þriggja ungmennafélaga
ur Flóanum
Laugardagskvöldið
5. nóvember kl. 21:00
í Brautartungu,
Lundarreykjadal
Leikstjóri er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson.
Miðapantanir í síma 892-8202.
Umf. Baldur, Samhygð og Vaka
BUREKSTRARDEILD
BORCASKSSI
Sólbakka 8-310 Borgarnesil
Afgreiðsla sími 430 5620 - Fax 430 5621
sansiei"-* aWönöui
KO-WW slfJJ5nauW*W'
ctouiart ueswmjn
J
Nemendafélag Grundaskóla kynnir:
eftir Flosa Einarsson, Einar Viðarsson, og Gunnar Sturlu Hervarsson
Frumsýning: Laugardaginn 5. nóvsmber kL 16:00
2. sýning: Mánudaginn 7. nóvember kl. 20:00
3. sýning: Þriðjudaginn 0. nóvember kL 20:00
4. sýning: Miðvikudaginn 9. nóvember kl. 20:00
5. sýning: Fösiudaginn 11. nóvember kl. 20:00
6. sýning: Laugardaginn 12. nóvember kl. 17:00
Sýnt verður í sal Grundaskóla
Miðasala hefst í Grundaskóla tveimur tímum fyrir hverja sýningu. Einnig er hægt að
panta miða í síma 433-1400 á skólatíma.
Miðaverð 1000 kr.
Höfundar: Flosi Einarsson, Einar Viðarsson og Gunnar Sturla Hervarsson
Leikstjóri: Einar Viðarssan
Tónlistarstjóri: Flosi Einarsson
Danshöfundar: Karen Lind Ólaísdóttir og Tinna Kristinsdóttir
Verkefnisstjóri: Sigurður Arnar Sigurðsson