Skessuhorn - 02.11.2005, Page 15
^■Usvnvnl I
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005
15
Stjóm SSV var endurkjörin áfundinum. Hér er hún ásamt Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra og starfsmömnum SSlj þeim Ólafi
Sveinssyni og Hrefnu B Jónsdóttur.
efni stefnir með rekstur fjölmargra
dvalar- og hjúkrunarheimila ef dag-
gjöldin verða ekki leiðrétt.
Svæðisútvarp
Þá samþykkti fundurinn að beina
því til stjómvalda að komið verði á
fót svæðisútvarpi fyrir Vesturland og
krefst þess að Vesturland sitji við
sama borð og aðrir landshlutar þar
sem starfrækt er svæðisútvarp.
Svæðisútvarp starfar nú í öllum
landsfjórðungum nema á Vestur-
landi. Því er afar brýnt að tryggja
hlut Vesturlands í umfjöllun ríkis-
fjölmiðla.
Menntun og
málefhi fatlaðra
I menntunarmálum var fagnað vel
heppnuðu fyrsta starfsári Fjöl-
brautaskóla Snæfelhnga og lögð á-
hersla á áffamhaldandi eflingu skól-
ans. Fundurinn studdi ffamkomnar
hugmyndir Borgfirðinga um stofn-
tm ffamhaldsskóla í Borgamesi enda
væra þær hugmyndir í anda tillagna
í drögum að vaxtarsamningi fyrir
Vesturland. Lögð var áherslu á
áffamhaldandi öflugan stuðning við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi sem sinnt hefur með sóma hlut-
verki sínu sem aðalffamhaldsskóli
landshlutans undanfarin ár. Sérstak-
lega er mikilvægt að efla stuðning
við verknám á Akranesi þannig að
nemendur af Vesturlandi þurfi ekki
að leita í aðra landshluta eftir þeirri
þjónustu. Viðskiptaháskólanum á
Bifföst var óskað tdl hamingju með
Rannsóknarmiðstöð Viðskiptahá-
skólans sem hóf formlega störf fyrr á
þessu ári og lýst var ánægju með það
samstarf sem þegar á sér stað milli
SSV og RVB og væntir góðs árang-
urs af því í ffamtíðinni.
Fundurinn samþykkti að láta
gera úttekt á stöðu á málefhum
fatlaðra á Vesturlandi með það að
markmiði að sveitarfélög yfirtaki
málaflokkinn að fullu sem til-
raunaverkefni.
Atvinnu- og orkumál
Varðandi atvinnuþróunarverk-
efni lögðu fundarmenn áherslu á
mikilvægi atvinnuþróunarstarf-
seminnar og töldu hana einn af
hornsteinum þess að atvinnustarf-
semi á landsbyggðinni eflist. Þá
var fagnað gerð vaxtarsamnings
við Vesturland.
Varðandi orkumál samþykkti
fundurinn að skora á stjórnvöld að
vinna gegn hækkun raforkuverðs í
kjölfar breytinga á raforkulögum.
„H®kkandi raforkukostnaður hef-
ur veruleg áhrif fyrir einstaklinga
og atvinnurekstur. Brýnt er að
fylgjast vel með þeirri þróun sem á
sér stað á raforkumarkaði og auka
niðurgreiðslur til húshitunar." Þá
lýsti fundurinn yfir ánægju sinni
með aukna starfsemi orkufyrir-
tækja sem hafa stuðlað að lækkun
orkuverðs á Vesturlandi. Víða hef-
ur tekist að lækka orkuverð veru-
lega til heimila og atvinnulífs á
undanförnum misserum.
Hágengi og
peningastefna
Fundurinn lýsti yfir þungum
áhyggjum af háu gengi íslensku
krónunnar fyrir starfsemi og afkomu
útflutningsatvinnuveganna, sérstak-
lega sjávarútvegs og ferðaþjónustu.
Mikil þensla sé í íslenska hagkerfinu,
drifin áffam af stóriðjuffamkvæmd-
um og stórauknum útlánum pen-
ingastofnana, skortur er á vinnuafli
og hátt gengi heldur uppi kaup-
mættd. Mikill vaxtamunur við út-
lönd hefur leitt til aukins flæðis fjár-
magns til landsins sem þannig hefur
styrkt gengi íslensku krónunnar.
Peningastefha Seðlabankans dugar
ekki ein og sér tdl að ná tökum á
þessum aðstæðum. Brýnt er að hið
opinbera gætd aðhalds í rekstri.
Stuðningur
við vaxtarsvæði
Aðalfundurinn fagnaði gerð
Byggðaáætlunar 2006 - 2009 og á-
lyktaði að tekið hafi verið tillit til
flestra ábendinga frá Vestlending-
um við gerð hennar. Itrekað var að
eitt af meginmarkmiðum byggðaá-
ætlunar verði að styðja við vaxtar-
svæði á landsbyggðinni til að
tryggja það að áhrif byggðaáætlun-
arinnar verði sem viðtækust. Því
taldi fundurinn að markmið
Byggðaáætlunarinnar eigi m.a. að
vera að treysta búsetuskilyrði á
landsbyggðinni með því að efla
þau byggðarlög sem hafa mest að-
dráttarafl fyrir fólk og bestu
möguleikana til uppbyggingar at-
vinnulífs, skóla, menningarlífs og
opinberrar þjónustu.
Mörg samgöngumál
bar á góma
Varðandi samgöngumál fagnaði
aðalfundurinn lækkun gjalds í
Hvalfjarðargöng, ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að þétta GSM
netið og fagnaði jafnffamt þeim
framkvæmdum sem orðið hafa að
veraleika á síðustu árum, eins og í-
búar og gestir Vesturlands hafa
kynnst og fundið fyrir, eins og nýj-
um vegi í Húsafell, um Kolgrafar-
fjörð og langþráðum framkvæmd-
um um Útnesveg og Svínadal í
Dölum.
Varðandi ffamtíðina var lögð á-
hersla á nauðsyn þess að viðhalda því
vegakerfi sem nú þegar hefur verið
byggt upp, nauðsyn þess að meira
fjármagn verði veitt í safhvegi, tengi-
vegi og styrkvegi og að hraðað verði
enn ffekar uppbyggingu þjóðvegar 1
í Norðurárdal, eins og kostur er. Þá
var áhersla lögð á að lagt verði fjár-
magn í að ljúka uppbyggingu vegar
um Fróðárheiði, lagfærinu gama-
móta Varmalands og Borgarfjarðar-
brautar, haldið áfram uppbyggingu á
Skorradalsvegi, lögð verði aukin á-
hersla á að lagt verði bundið shtlag á
helstu tengivegi á Vesturlandi og að
tryggt verði nægt fjármagn til áffam-
haldandi lagfæringa á þjóðvegi 1 í
gegnum Borgames og tál uppbygg-
ingar á aðreinum að þjóðvegi 1 við
Brúartorg. Einnig lögðu fundar-
menn áherslu á að tryggt verði fjár-
magn til girðinga meðffam öllum
þjóðvegum landsins og veghaldara
verði skylt að sjá um viðhald á ölltun
girðingum meðfram vegum sem
hafa meira en 300 SDU (Sumar-
dagsumferð). Þá var gömul saga
endursögð, þ.e. að virðisaukaskattur
verði afnuminn af gjaldtöku um
Hvalfjarðargöng.
Skuggagjald
verði skoðað
Aðalfundurinn hvatti auk þess
stjórnvöld tdl að halda áfram við
endurbætur á vegi milli Vestur- og
Suðurlands um Uxahryggi og Lund-
arreykjadal, að hugað verði að úr-
bótum vega á Skógaströnd, Fells-
strönd og á Laxárdalsheiði, farið
verði betur í undirbúningsranns-
sóknir á vegstæði yfir Grunnafjörð,
að þjóðvegi nr. 502 (Svínadalsvegur)
og 504 (Leirársveitarvegur) verði
endurbyggðir með bundnu slitlagi
og lögð áhersla á að Vegagerðin,
heimamenn og þingmenn nái sam-
komulagi um forgangsröð. Þá var
hvatt til að þjóðvegur milli Þverár-
hlíðar og Hvítársíðu verði endur-
byggður, að gert verði átak við gerð
hjáreina á þjóðvegi 1 við fjölfarin
gatnamót eins og t.d. við minni
Hvalfjarðaganga og Borgarfjarðar-
braut við Seleyri og að áfram verði
unnið að átaki við fækkun einbreiðra
brúa, en jafhffamt er bent á nauðsyn
þess að endurbyggja þær brýr sem
ekki þola núverandi umferðarþunga.
Aðalfundurinn fagnaði ákvörðun
líkisstjórnarinnar að verja hluta af
söluandvirði Símans til að byggja
Sundabraut og þeirri ákvörðtm að
leggja Sundabraut í einu lagi alla leið
upp á Kjalames í einkaffamkvæmd
enda verði farin leið skuggagjalds.
Með skuggagjöldum er átt við leið í
einkaffamkvæmd sem er vel þekkt
erlendis, en hefur ekki verði notuð
hér á landi, þar sem eina einkaffam-
kvæmdarverkefnið í samgöngumál-
um (Hvalfjarðargöngin) var unnið
með leið notendagjalda. Með
skuggagjöldum er átt við að ríkið
greiði þeim sem byggir og rekur
mannvirkið ákveðið gjald sem ræðst
af notkun þess. I tilviki Sundabraut-
ar gæti skuggagjald til að mynda
falist í ákveðinni greiðslu ríkisins
fyrir hvem bíl sem æki um veginn.
Umferðarmiðstöð
í Borgames
Varðandi almenningssamgöngur
skoraði fundurinn á stjórnvöld að
tryggja öflugar almenningssam-
göngur um Vesturland og benti á
mikilvægi þess að komið verði á
umferðarmiðstöð í Borgarnesi sem
stuðlað geti að samræmdum áætl-
anaferðum sem leiddu til bættra al-
menningssamgangna innan Vest-
urlands sem og við aðra lands-
hluta.
Með góðu aðgengi að miðlægri
umferðarmiðstöð í Borgarnesi og
góðu skipulagi hópferðaáætlana
þar um, má bæta aðgengi ferða-
manna að Vesturlandi og íbúa
svæðisins að því að nýta möguleika
almenningssamgangna. Til þess að
almenningssamgöngur verði
áhugaverður valkostur þarf að
tryggja tíðni ferða og ferðahraða.
MM
SÍXIXG - BASAR - KAFFISALA
Hinn árlegi basar Dvalarheimilinsins verður haldinn
laugardaginn 5. nóvember 2005 kl. 16.30.
Munimir verða til sýnis kl. 15.00 - 16.30.
Kaffisala verður á staðnum kl. 15.00 - 17.30.
Sala á basar hefst kl. 16.30
*
Agóði afkaffisölu rennur íferðasjóð heimilisfólks.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dvalarheimili aldraðra - Borgarnesi
,&vl\\starskólinn á Akra(,e
50 ara
í tilefni þessara tímamóta verða nemendur
og kennarar skólans með ýmsar uppákomur í vetur.
Við byrjum veisluna á afmælisdaginn 4. nóvember með því að
nemendur, kennarar og velgjörðarmenn skólans safnast saman
í sal skólans kl. 14 þar sem boðið verður upp á afmælisköku.
Aðrir viðburðir tengdir skólanum í nóvember:
• 4. nóvember - Vökudagar hefjast.
• 6. nóvember kl 20:30 í Bíóhötlinni minningartónleikar um Karl J. Sighvatsson.
• Dagana 7. til 11. nóvember verða nemendur að leika tónlist á ýmsum stöðum í
bænum.
• 10. nóvember kl 20:30 í Bíóhöllinni tónleikar Þjóðlagasveitar og Stebba og Eyfa
• 11. nóvember óperettan "Gestur - síðasta máltíðin" eftir Gaut G. Gunnlaugsson
og Gunnar Kristmannsson sem eru fyrrverandi nemendur skólans.
• 14. nóvember "Þrír gítarar" á sat skólans kl.20. Jón Páll Bjarnason glímir við
tvo gítarleikara af yngri kynslóðinnj þá
Eðvarð R. Lárusson (Edda Lár) og Ásgeir Ásgeirsson.
Fleiri atburðir verða auglýstir síðar.
Fylgist með á nýrri heimasíðu skólans www.toska.is
ISKOLINN
Á AKRANESI