Skessuhorn - 02.11.2005, Blaðsíða 17
SHgSSUH©I2KI
MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER 2005
17
Gott viðmót og góðar aðstæður
mæta nýjum presti í Olafsvík
Séra Magnús Magnússon, ný-
skipaður sóknarprestur í Olafsvík
segist horfa björtum augum til nýja
starfsins en um leið kveðji hann
blómlegt starf á Skagaströnd þar
sem hann hefur verið sóknarprestur
síðan síðla árs 2000. Var það fýrsta
brauð hans.
Magnús er Húnvetningur, fædd-
ur og uppalinn á Staðarbakka í
Miðfirði. Þar var löngum prestsset-
ur og þar var Guðbrandur biskup
Þorláksson fæddur og uppalinn.
Eins og Guðbrandur gekk Magnús
menntaveginn og útskrifaðist úr
guðfræðideild Háskóla Islands árið
1999. Séra Magnús er kvæntur
Berglindi Guðmundsdóttur og eiga
þau þrjú böm, tvær dætur og einn
son, á aldrinum 1-9 ára. Berglind á
ættir að rekja til Hrútsholts í Eyja-
hreppi en er fædd og uppalin í
Kópavogi.
Séra Magnús segir skiptmartíma
presta vera fimm ár og því hafi þau
hjón ákveðið að kanna möguleika á
nýju brauði. Eftir að hafa kynnt sér
aðstæður í Olafsvík hafi hann
ákveðið að sækja um. „I Olafsvík er
góð kirkja, gott safnaðarheimili og
ekki síst mætti okkar þar gott og
elskulegt viðmót. Því var það mjög
gleðilegt að fá köllun þangað.
Aðspurður segist séra Magnús
skipaður frá 1. desember og inn-
setningarmessan verði 18. desem-
ber. Því verði messur um jól fyrstu
eiginlegu embættisverkin og það sé
ekki slæmur tími til að hefja störf í
nýrri sókn. Fjölskyldan sé afar
spennt fyrir flumingnum vestur en
um leið sé erfitt að kveðja skemmti-
legt og blómlegt starf á Skaga-
strönd.
HJ
------7-----------------------------
Karl Omar ráðinn að nýju til Leynis
Heimir Fannar Gunnlaugsson formaSur Leynis og Karl Ómar Karlsson.
Golfklúbburinn Leynir hefur
gert samning við Karl Omar
Karlsson PGA golfkennara til 3ja
ára. Karl Omar verður yfirþjálfari
barna- og unglingastarfs Leynis og
jafnframt golfkennari klúbbsins.
Hann er menntaður íþróttakenn-
ari og hefur starfað sem slíkur í 12
ár. Hann lauk HGTU golfkenn-
aranámi í Svíþjóð árið 2003 og
hefur sótt ýmis námskeið á vegum
norska- og sænska golfsambands-
ins.
Karl Omar tók fýrst þátt í golf-
kennslu í unglingastarfi GR árið
1985 og hefur verið við golf-
kennslu meira og minna síðan þá
og meðal annars tekið þátt í ýms-
um verkefnum hjá Golfsambandi
Islands. Hann var golfkennari í
barna- og unglingastarfi Leynis á
árunum 1998-2000 með góðum
árangri en fluttist síðan til Noregs
þar sem hann hefur verið golf-
kennari undanfarin ár.
í frétt frá klúbbnum segir að það
sé ásetningur stjórnar Leynis að
útvíkka starf golfkennara klúbbsins
í barna- og unglingastarfinu með
ráðningu Karls Omars og gera það
markvissara, faglegra og árangurs-
ríkara þannig að fleiri börn og
ungmenni taki þátt í íþróttinni
með góðum árangir á golfvellin-
um.
HJ
Hvannir seldar Borgarlandi
Sveitarstjórn Borgarfjarðarsveit-
ar hefur samþykkt að selja einka-
hlutafélagið Hvannir ehf. og hefur
falið stjórn félagsins að ganga ffá
samningum þar að lútandi. Félagið
var stofriað til að byggja og reka
skrifstofuhús á Hvanneyri og eru
nokkrar þjónustustofnanir og
einkafýrirtæki þar til húsa. Linda
Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri segir
að tap hafi verið af rekstri félagsins
og því hafi hann verið betur kom-
inn í höndum einkaaðila. Linda
Björk sagði að kaupandinn væri
Borgarland ehf. sem m.a. á nokkrar
fasteignir í Borgarnesi. Söluverð er
ekki gefið upp að svo stöddu enda
hefur enn ekki verið endanlega
gengið frá samningum. Sagði
Linda stefnt að því að ganga frá söl-
unni fyrir vikulokin.
Þegar skrifstofuhúsið var byggt á
sínum tíma var gert ráð fyrir að
bætt yrði við bygginguna síðar og
er þjónusturými fýrir stærri bygg-
ingu þegar til staðar.
HJ
Kaffisala 5.nóvember
í leikskólanum Vallarseli á
Akranesi
Kaffisalan hefst kl. 15:00 og stendur til 17:00.
Aðgangseyrir er 500 kr fyrir fullorðna.
Fritt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum.
Allur ágóði rennur til barnanna á Vallarseli.
Allir hjartanlega velkomnir.
Foreldrafélagið á Vallarseli
r,
Borgarfjarðarsveit
Atvinna
Laust starf í Andabæ
Leikskólinn Andabær á Hvanneyri auglýsir
eftir aðstoðarmanni í eldhús.
Um er að ræða 50% starf og þarf
viðkomandi að geta byrjað sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember.
i Nánari upplýsingar veitir Áslaug Ella
I Císladóttir leikskólastjóri ísíma 437 0120
Hárgreidslustofa til leigu
Rekstraraðili óskast að hárgreiðslustofu Dvalarheimilisins
Höfðafrá næstu áramótum. Upplýsingar gefur
framkvæmáastjóri Höfða í síma 433 4302.
Á Höfða btía 78 íbtíar, bœði aldraðir og öryrkjar, þar af41 í hjtíkrunarrými
og 37 íþjónusturýmum. A heimilinu er aukþess rekin félags- og
þjónustumiðstöð, m.a. eru 20 rýmifyrir dagdeild aldraðra, veitt er
heimsending á mat og rekinferðaþjónusta fyrir fatlaða.
31 sjálfseignaríbúð fyrir aldraða er á lóð heimilisins.
Þar verður einnig reist 12 íbúða fjölbýlishús á nœstunni.
Starfsmenn eru 88 i 63 stöðugildum.
Stjórn Dvalarheimilisins Höfða,
Akranesi.
DvaíarfieimiCið Höfði
Akranesi
Basar verður íDvalarheimilinu Höfða
laugardaginn 5. nóv. kl. 14-16.
Fjölbreytt úrval góðra muna.
Komið og gerið góð kaup.
Molasopi fyrir þá sem staldra við.
Sýning Blaðaljósmyndarafe'lags Islands
Jq verður á Höfða næstu daga.
Verið velkomin.
— ' Ath. tökum ekki greiðslukort
Dvaiarfieimiíið Höfði
Akranesi