Skessuhorn - 02.11.2005, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005
IM. ■■ |
Drottningar dagsins, keppendur í dragi.
Skammhlaup í FVA
Síðastliðinn föstudag var
haldið árlegt skammhlaup í
Fjölbrautaskólanum á Akra-
nesi. Langflestir nemendur
skólans tóku þátt í hinum
ýmsu greinum. Dagurinn
hófst með skrúðgöngu að
íþróttahúsinu við Vestur-
götu þar sem að nemendur
kepptu í íþróttum, fimess,
reiptogi og fleiru. Keppnin
fluttist svo yfir í skólann þar
sem keppt var í bóklegum
greinum. Að þeim loknum
fór fram keppni í dragi,
hópsöng og kappáti á sal
skólans. Auk þessara keppn-
isgreina spilaði hin sívinsæla
hljómsveit The Teachers
fyrir nemendur og kennara
en að þessu sinni hafði þeim
Hljómsveitin IrontKnov).
borist liðsauki og kallaðist hljóm-
sveitin The teachers and a student.
Seinna um daginn fór fram árleg
tónlistarkeppni NFFA sem að þessu
sinni bar nafnið Partýrokk. Fjöldi
hljómsveita hefur oft verið meiri en
engu að síður voru margir ffam-
bærilegir hljóðfæraleikarar sem
stigu á stokk. Sigurhljómsveitin bar
nafnið Something beyond og var
hún skipuð ungum drengjum af
Akranesi, í öðru sæti var hljóm-
sveitin Ypsilon og í því þriðja The
Band. Something beyond hafði
einnig á að skipa besta trommuleik-
aranum; Jóhanni Aðalsteini Arna-
syni, besta bassaleikaranum; Birni
Breiðfjörð og besta gítarleikaran-
um; Sigurði Bachmann. Besta
söngkonan var valin Ylfa Flosadótt-
ir söngkona í hljómsveitinni
Ypsilon. Einnig fékk hljómsveitin
Faital Exorcism verðlaun fýrir
besta sviðsframkomu og Kristján
Ingi Arnarson metalnikkuleikari
hljómsveitarinnar fékk verðlaun
fýrir besta aukahljóðfæraleikarann.
Dagurinn endaði á stórdansleik á
sal skólans þar sem hljómsveitin
Papar lék fyrir dansi. ÞGB
Gatnagerð, slápulag og
sorpmál í Grundarfirði
Á fundi bæjarráðs Grundarfjarð-
ar þann 26. október sl. og á fundi
umhverfisnefndar viku fýrr var
kynnt tillaga um gatnagerð í Fella-
brekku. Um er að ræða nýjan botn-
langa, sem kemur í framhaldi af nú-
verandi hluta Fellabrekku. Á næstu
dögum verður tillagan kynnt íbú-
um í nágrenninu. Búið er að út-
hluta öllum lóðum við botnlang-
ann, samtals fýrir sjö hús og munu
áform vera um byggingar á næsta
ári.
Arkitektastofan Zeppelin, Orri
Árnason og félagar, munu í byrjun
nóvember kynna skipulagshópi
bæjarins fýrstu hugmyndir sínar og
grófar tillögur, sem eru liður í
vinnu þeirra við tiltekin skipulags-
verkefni bæjarins. Verkefnin felast
nánar tiltekið í því að endurhanna
miðbæ, skipuleggja íþrótta- og
skólasvæði, nýtt hverfi við vestan-
verða Grundargötu og íbúðahverfi
í Grafarlandi. Eins og fyrr segir er
um fýrstu hugmyndir að ræða, sem
lagðar verða fýrir skipulagshópinn
til skoðunar og athugasemda, áður
en lengra verður haldið í vinnunni.
Unnið er að útboði sorpmála,
þ.e. sorphirðu og rekstri og fram-
kvæmdum við uppbyggingu sorp-
móttökustöðvar. Grundarfjarðar-
bær fékk Ríkiskaup til að annast
gerð endanlegra útboðsgagna og til
að sjá um útboðið og val verktaka
skv. því. Samhliða fer fram verk-
ffæðihönnun og gerð verklýsingar
á framkvæmdum við byggingu
móttökustöðvarinnar, en Teikni-
stofan Eik hafði hannað svæðið.
Gert er ráð fýrir að Rikiskaup verði
tilbúin með gögn til útboðs í lok
nóvember.
Af grundarfjordur.is
Ungfrú Rebekka í Arnardal
Dragkeppni var njlega haldin í œskuljðsmiðstöðinni Amardal á Akranesi. Keppnina
sigraði ungjrú Rebekka en það voru stóllumar Eyrún og Lilja sem umbreyttu Eggert
Kára í þessa líkafríðu þokkadís. Fyrir sinn snúðfengu þau öll bíómiða frá Bíóhóllinni.
Auk þessfengu sigurvegaramir boðsmiða í mat í Skútunni.
Um byggða- og atvinnumál
Byggðin og búsetan út til stranda
og inn til dala er ein af hinum dýru
auðlindum þessa lands. Hún er ein
af mikilvægum forsendum fyrir
fjölbreyttu mannlífi og tryggir
verndun og sjálfbæra nýtingu auð-
linda landsins á þjóðhagslega hag-
kvæman hátt. Þarna gegnir sjávar-
útvegurinn, fiskvinnslan og fjöl-
þættur landbúnaður lykilhlutverki.
Vöxtur og þróun sjálfbærrar nátt-
úru- og menningartengdrar ferða-
þjónustu byggir á blómlegu at-
vinnulífi og byggð um allt land.
„Nú þarf að breyta“ var yfirskrift
Landsfundar Vmstrihreyfingarinn-
ar græns framboðs um síðustu
helgi, en þar var ályktað kröftugt
um breytta stefnu í byggða- og at-
vinnumálum.
Efla ber íslenskan land-
búnað og treysta byggð
í sveitum landsins
Vinstrihreyfingin grænt framboð
leggur áherslu á fjölskyldubúið sem
grunneiningu í landbúnaði. Fréttir
af stórfelldum raðuppkaupum stór-
eignamanna og fjármálafýrirtækja á
jörðum í búskap og söfnun fram-
leiðsluréttar í landbúnaði á fárra
hendur er ógn við byggðina til
sveita. Slík samþjöppun er andstæð
hugmyndum um sjálfbæra þróun og
getur stefnt búsetu og öryggi land-
búnaðarframleiðslunnar í hættu
með ófýrirsjáanlegum afleiðingum
fýrir neytendur. Þingmenn Vmstri
grænna hafa lagt fram á Alþingi til-
lögur sem miða að því að takmarka
magntengdan framleiðslustuðning
ríkisins við landbúnað að ákveðnu
hámarki í bússtærð. Stuðningurinn
fari lækkandi á framleidda einingu
eftir að ákveðinni bústærð er náð
uns hann fellur alveg niður. Þess í
stað verði tekinn upp búsetutengd-
ur grunnstuðningur þar sem al-
mannahagsmunir eins og land-
varsla, verndun og endurheimt
landgæða og framleiðsla landbún-
aðarvara á sjálfbæran og lífrænan
hátt fær aukið vægi. Gleðileg ffétt
var í vikunni að kjötvinnsla kaupfé-
lagsins á Hvammstanga hóf vinnslu
á kjöti sem framleitt er á líffænan
hátt og er sérstök ástæða til að
hvetja neytendur til að styðja það
lofsverða ffamtak.
Byggðatenging
fiskveiðiheimilda og
vistvænar veiðar
Sjávarútvegurinn og fiskvinnslan
er enn sem fýrr einn af höfuða-
tvinnuvegum okkar og byggðin og
búsetan meðfram ströndum lands-
ins hefur byggst á nálægðinni við
fiskimiðin. Sjálfbærar veiðar og
vinnsla byggja einmitt á því að
þannig sé staðið að málum. Bar-
áttumál Vinstri - grænna er að hluti
fiskveiðiheimilda sé bundinn sjáv-
arbyggðunum og megi hvorki selja
eða leigja burt. Stöðugt stærri hluti
aflans fer óunninn í gámum úr
landi. Á síðasta ári nam sá útfluto-
ingur nærri 50 þús. tonnum.
Þingmenn Vinstri - grænna hafa
lagt fram á þingi tillögur um að-
gerðir sem hvetja til þess að allur
fiskur sem ekki fer í eigin vinnslu í
heimahöfn fari á markað hér á landi
þannig að íslenskar fiskvinnslur geti
boðið í hann til vinnslu. En fari
fiskurinn í gámum beint á markaði
erlendis eiga innlendar fiskvinnslur
enga aðkomu að því að bjóða í þann
fisk.
Heildstæðar rannsóknir
á lífríkinu verði
forsenda veiðiráðgjafar
Loðnuveiðar hófust að marki upp
úr 1970 og hafa veiðarnar sum árin
numið um og yfir 1 milljón tonna.
Áratugum saman fýrr á síðustu öld
voru einnig veidd um 500 þús tonn
af þorski á Islandsmiðum, sem þá
voru ekki aðeins opin íslenskum
bátum heldur einnig fjölda stór-
virkra erlendra fiskiskipa. Nú er
þorskkvótinn einungis um 200 þús
tonn og sumum þykir það ofrausn.
Hver lífvera er háð annarri og
það að vaða skyndilega inn í
lífmassann meðfram ströndum
landsins og taka þaðan allt upp í
milljón tonn af loðnu hlýtur að hafa
áhrif. Loðna og síli ýmiskonar eru
einmitt aðalfæða þorsksins. Ef
loðnan er ofveidd hvað verður þá
um fæðu fýrir þorskinn? Sumir telja
að hann ráðist þá á innfjarðarækj-
una og þess vegna sé hún búin.
Hver veit?
Gríðarlega stór loðnutroll eru
dregin af aflmiklum loðnubátum
fram og til baka um loðnumiðin.
Það getor enginn fullyrt um hver á-
hrif þessi veiðaðferð hefur á lífríkið.
Fiskveiðarnar verður að stunda á
sjálfbærum grunni
Veiðiráðgjöfin á að byggja á
heildstæðum rannsóknum á líffíki
hafsins og innra samspili lífveranna
í hafinu og þá ekki síst áhrifum mis-
munandi veiðarfæra.
Það sjá allir áhrif jökulánna þar
sem þær falla tdl sjávar, gríðarlegur
framburður þeirra leirlitar sjóinn
langt á haf út og hefur gert um þús-
undir ára. Geta menn vænst þess
eða fullyrt að það hafi engin áhrif á
lífríki sjávarins meðfram ströndinni
að stífla jökulárnar og heffa fram-
burð þeirra og flóð?
Ferðaþjónustan er
vaxtargrein sem verður
að fá aukið svigrúm
Ferðaþjónustan er sá atvinnuveg-
ur landsmanna sem vex hvað hrað-
ast og skilar mestri aukningu gjald-
eyristekna til þjóðarbúsins ár hvert,
35 milljörðum nettó á sl. ári. Þar
eigum við mikla möguleika.
I ár er talið að um 370 þús ferða-
menn komi til landsins og búist er
við að fjöldi erlendra ferðamanna
geti þrefaldast á næstu 10 árum. Nú
eru blikur á lofti, fjölgun ferða
manna var 10% í fýrra en um 1% í
ár. Tekjur af ferðamönnum minnka
aðeins á milli ára. Ríkisstjórnin hef-
ur skorið niður framlög til mark-
aðsmála. Hömlulaus stóriðjustefna
ríkisstjórnarinnar með háu gengi
krónunnar mun að óbreyttu kyrkja
vaxtarbrodda ferðaþjónustunnar.
„Ferðaþjónustan, mesta vaxtar-
grein íslensks atvinnulífs undan-
farna áratugi verðskuldar að njóta
stuðnings og viðurkenningar í hlut-
falli við mikilvægi sitt í þjóðarbú-
skapnum,“ segir í stjórnmálaálykt-
un Landsfúndar Vinstri - grænna.
Jón Bjamason,
þingmaður VG