Skessuhorn - 02.11.2005, Qupperneq 19
SBéSS'UHÖBKI
MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER 2005
19
Samið við golfklúbbinn Leyni
Bæjarstjórn Akraness hefur sam-
þykkt samninga við Golfklúbbinn
Leyni um rekstur Garðavallar og
uppbyggingu hans. Rekstrarsamn-
ingurinn gerir ráð fyrir árlegu
framlagi Akraneskaupstaðar til
klúbbsins að fjárhæð fimm millj-
ónir króna til reksturs golfvallarins
að Görðum, vegna daglegs rekst-
urs fasteigna, véla, hirðingar golf-
brauta og annars sem til fellur á
hverjum tíma. I samningnum er
einnig gert ráð fyrir að Golfklúbb-
urinn annist, án endurgjalds, golf-
kennslu fyrir a.m.k. einn árgang
grunnskólanna á ári hverju, viku í
senn. Samningurinn gildir til loka
árs 2008.
Minnihluti bæjarstjórnar óskaði
eftir því að samningnum yrði vísað
til bæjarráðs til frekari skoðunar
en á það var ekki fallist. Minni-
hlutinn telur að með samningnum
sé verið að greiða upp kostnað við
framkvæmdir liðinna ára og setur
Frá undhritun samninganna. F.v. Brynjar Sæmundsson, Heimir Gunnlaugsson, Gtsli
Gíslason og HörSur Kári Jóhannesson.
spurningamerkið við þá ætlan. Þá
telur minnihlutinn samninginn
stefnubreytingu frá því að bæjar-
ráð leysti til sín eignir Knatt-
spyrnufélags IA en eru ánægðir
með stefnubreytingu meirihlutans
á þann veg að með samningnum sé
Akraneskaupstaður „nú tilbúinn að
veita meira fé til íþróttastarfsemi
en áður hefur þekkst,“ eins og seg-
ir orðrétt í bókun minnihlutans.
HJ/ Ljósm: akranes.is
Krefjast flugvallar áfiram í Reykjavík
AFRAM, hagsmunasamtök íbúa í
Dalvíkurbyggð, hafa nú hrundið af
stað undirskriftarsöfnun til að árétta
þá hagsmuni sem í húfi eru fyrir allt
landsbyggðarfólk, þegar rætt er um
flutning innanlandsflugs úr Vams-
mýrinni. Sérstaklega er minnt á þá
öryggishagsmuni sem tengjast
sjúkraflugi, þar sem stærsm sjúkra-
hús landsins eru aðeins steinsnar ffá
Reykjavíkurflugvelli en þessi nálægð
er ómetanleg þegar um bráðatilfelH
er að ræða. Auk þessa mun ferðatími
almennra farþega til Reykjavíkur
tvöfaldast ef lenda þarf á Keflavíkur-
flugvelli og má ljóst vera hvert óhag-
ræði það verður fyrir alla hlutaðeig-
andi, þ.e. farþega, fyrirtæki og stofii-
anir. Þess utan hefur verið bent á
fleiri öryggisþætti tengda flugvellin-
um, bæði fyrir borgarbúa og lands-
byggðina alla.
Hagsmunasamtökin AFRAM
óskar eftír því að félagasamtök hvar
sem er á landinu, sem áhuga hafa á
að beita sér fyrir þessari undirskrift-
arsöfnun í sinni heimasveit eða bæ,
hafi samband við okkur á
afram@afram.is og munu samtökin
halda skrá yfir það hverjir safna hvar.
Við leggjum áherslu á að margar
hendur vinna létt verk og með góðu
skipulagi má vænta að vel muni til
takast. Ætlunin er síðan að safna öll-
um undirskriftarblöðunum á einn
stað og því óskast þau send að söfn-
un lokinni, eða fyrir 1. desember
n.k. til:
Hagsmunasamtökin AFRAM
621, Dalvíkurbyggð
Þá verður fjöldi undirskrifta talinn
og þær síðan afhentar samgöngu-
ráðherra fyrir hönd ríkisstjómarinn-
ar, sem og afrit borgarstjóranum í
Reykjavík fyrir hönd borgarstjómar,
í byrjun desember. Almenningi gefst
kosmr á að fylgjast með fféttum af
gangi mála, og e.t.v. taka þátt í um-
ræðum um þau á vefsíðu okkar;
affam.is. Við skorum á afrnenning,
hvar sem er á landinu, að taka þátt í
þessu með okkur og sýna ffam á að
ekki kemur til greina að færa völlinn
út fyrir borgarmörkin.
(Fréttatilkynning frá stjóm hags-
munasamtakanna AFRAM)
Yfirlýsing
Þegar gengið var til kosninga í
sveitarstjórn Dalabyggðar 2002,
var tvísýnt um það hvort ffamboð-
ið myndi ná meirihluta í hrepps-
nefnd. Það var því gleðilegt þegar
niðurstöður lágu fyrir og það ffam-
boð sem við undirritaðir vomm
umboðsmenn fyrir, L-listinn, listi
samstöðu, hafði náð meirihluta,
fjórir gegn þremur.
Við voram ánægðir með verk
okkar og glaðir, tilbúnir að leggja
okkar að mörkum við að taka þátt í
að bæta samfélagið.
En svo bregðast krosstré sem
önnur. Oþarfi er að tíunda hvern-
ing fór, það veit alþjóð.
Við umboðsmenn L-listans, lýs-
um því yfir að við hörmum hvern-
ing mál hafa þróast í Dalabyggð,
þetta kjörtímabil, undir forystu L-
listans. Framkoma sveitarstjórnar-
manna í garð íbúa, með mála-
rekstri, svikum og málatilbúnaði er
nóg til að lýsa vanþóknun okkar á
vinnubrögðum forystumanna L-
listans og er mjög leitt til þess að
vita hverning orku og fjármagni
sveitarfélagsins hefur verið sólund-
að í þeim málum. Stór hluti þeirra
sem stóðu að L-Hstanum hefur á
engan hátt stutt þessar aðgerðir,
heldur reynt eftír megni að stuðla
að bót og betrun, án árangurs.
Við styðjum ekki lengur L-list-
ann og það sem hann hefur verið að
boða undanfarið!
I fréttatilkynningu ffá Snæbjörgu
R. Bjartmarsdóttur og Guðrúnu
Jónu Gunnarsdóttur, í síðasta tölu-
blaði Skessuhorns, kemur frarn að
þær ásamt fleyrum af L-lista hafi
sagt sig ffá listanum, og er greint
ffá því í sömu setningu að við und-
irritaðir höfum einnig sagt skilið
við L-listann. Það er rétt.
Hér er um tvo algerlega óskylda
gjörninga að ræða og ber alls ekki
að skylja sem svo að við höfum
gengið af L-listanum til að mynda
með þeim nýtt afl.
Við gerðum grein fyrir okkar af-
stöðu á fundi 19. október að stuðn-
ingi okkar við L-listann væri form-
legalokið. I kjölfar þess á fundi 23.
október, greindu þær frá sinni
ákvörðun í sínum stuðningsmanna-
hópi.
Við viljum undirstrika að við
hörmum hvernig L-listinn hefur
unnið sl. misseri og erum andvígir
þannig vinnubrögðum, hver svo
sem á í hlut!
Þorgrímur Einar Gubbjartsson og
Eyþórjón Gíslason
Eldri borgarar á Snæfellsnesi
Um liðna helgi gerðu eldri borgarar á þéttbýlisstöðunum á Snæfellsnesi sér glaðan dag og komu saman í Grundarfirði, snœddu saman og
stigu síðan dans fram eftir nóttu. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar samkomugestir lyftu glósum í tilefni hátíðarinnar.
Ljósm: Sverrir Karlsson
HvítársíÖuhreppur
Aðalskipulag
Almennur fundur, samanber 1. málsgrein 17. gr.
skipulags- og byggingarlaga um tillögu að aðalskipulagi
Hvítársíðuhrepps 2003-2015 verður haldinn íBrúarási
fimmtudaginn lO.nóvember 2005 kl. 20:00.
Allir velkomnir
Hreppsnefnd Hvítársíðuhrepps
Allíaf á fimmfudögum frá kl. 18:00.
7; é'
h TL
few * Hfrttakskaaá • Ftœtskar kartefiw • Iratiðsjanpr • RjBmetíojai súpa • Broxí
Sate • Témefor • Gwkur • Papriko • Sveppkr • Ananas • Metósmr • Egg • Tánfeksir
Móskom • Wriber • ÓSfur • teStóukur • ItfsterpWaup • Bnxtórtongæésa * Támafsósa
Rukfeitsásœ • Oregano krydá • Ctt kryéi • Swrtirr jxpor • Parroesœr ostur • Hwftauksoiia
Verð:
Kr. 1.150, — á monn
yngrt en 10 áro kr. 575, -
(fistfi 00 vútingastaðw við
tt 437 2345 * motel@emax.is
ipstituf á msgu wtnði
Kynning á nýju vetrartískunni
frá OROBLU á laugardaginn,
5. nóv. kl. 12-16 íLitlu Búðinni
ewKnMasrs.MKKKa