Skessuhorn - 02.11.2005, Side 22
22
^ó£SsunuK.
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005
Enski boltinn í
Grundarfirði
Síðastliðinn laug-
ardag hélt Ung-
mennafélagið í
Grundarfirði svo-
kallaðan „dag enska
boltans.“ Þar komu
getspakir Grund-
firðingar saman og
tippuðu á Lengjuna
og 1x2. Að sögn
Eyglóar Jónsdóttur,
formanns UMFG
tóku Grundfirðing-
ar framtakinu vel og
gekk dagurinn eins
og í sögu. Hún seg-
ir að getraunatekjur
félagsins hafa nú
þegar margfaldast. I tilefni dagsins
var búið að safna munum tengdum
enska boltanum svo sem treflum,
húfum, treyjum og könnum svo fátt
eitt sé nefnt. Foreldrafélag UMFG
hélt kökubasar sem lukkaðist vel og
einnig var gestum boðið að kaupa
Garðar og Eyþór
að spá í seðil vikunnar.
sér tertusneið af veglegri UMFG
tertu. Ekki munu getspakir Grund-
firðingar láta þar við sitja því í allan
vetur verður hópleikur í gangi og
mikill spenningur og miklar
spekuleringar í gangi hvaða hópur
tippar best. BG
Adamótið í badminton
Adamót Badmintonfélags Akra-
ness fór ffam laugardaginn 27. októ-
ber. A mótinu kepptu 30 spilarar í
M.fl og A.fl. og komu keppendur frá
ÍA, TBR, BH og Þór í Þorlákshöfn.
Adamótið er haldið tíl minningar
um Ada Þór Helgason sem lést af
slysförum árið 1980.
Halldóra Jóhannsdóttir TBR
vann það affek að vinna þrefalt í
M.fl. á mótinu í einliða,- tvíliða- og
tvenndarleik. Skagamenn stóðu sig
mjög vel og voru í úrslitum í þrem-
ur af fimm úrslitaleikjum í M.fl. Til
úrslita í einliðaleik M.fl. karla léku
þeir Magnús Helgason TBR og
Helgi Jóhannesson TBR og sigraði
Helgi 16/17 - 15/7 og 15/6. I ein-
liðaleik M.fl. kvenna vann Halldóra
Jóhannsdóttir TBR, Karitas Ósk Ó-
lafsdóttir ÍA. 11/8 og 11/7. Tvíliða-
leikur karla M.fl. fór þannig að
Helgi Jóhannesson TBR og Helgi
Magnússon TBR sigruðu Brodda
Kristjánsson TBR og Hólmstein
Valdimarsson ÍA, 15/11 og 15/13. í
tvíliðaleik kvenna M.fl. sigruðu Þor-
Diskur með efiii Theódórs
Einarssonar kominn út
Systkinin Ragnhildur, Ester og
Ólafur Theódórsbörn hafa gefið út
12 laga hljómdisk með efni eftir
Skagamanninn Theódór Einars-
son. Diskurinn heitir „Kata rokk-
ar“. A honum eru lögin Angelía,
Berst til mín vorið, Báruhúsið,
Blómið, Gleym mér ey, A hörpunn-
ar óma, Kata rokkar, Við gluggann,
Hvítir svanir, Tvö sofandi böm,
Bréfið og Vinarkveðja. Akranes-
kaupstaður styrkti verkefnið en
Davíð Þór Jónsson annaðist m.a.
undirleik og útsetningar auk fleiri
tónlistarmanna. Hönnun umslags
var í höndum Jospeh Spaid og
Önnu Halldórsdóttur, barnabarns
Theódórs.
Theódór Einarsson var fæddur
að Eystri Leirárgörðum 9. maí árið
Ragnhildur, Ester og Ólafur afhenda Gísla bœjarsqóra fyrsta eintak disksins. Ljósm: TG
1908 en bjó lengst af á Akranesi. revíuhöfundum landsins. Hann
Hann var í áratugi einn af þekkt- andaðistí ágúst árið 1999.
ustu gamanvísna-, dægurlaga- og
björg Kristinsdóttir TBR og Hall-
dóra Jóhannsdóttir TBR þær
Birgittu Rán Asgeirsdóttur IA og
Karitas Ósk Ólafsdóttur ÍA 15/12
og 15/12. Tvenndarleikur M.fl. fór
þannig að Arthúr Jósefsson TBR og
Halldóra Jóhannsdóttir TBR sigr-
uðu Magnús Helgason TBR og
ÞorgerðiJóhannsdóttirTBR. 15/8 -
15/1. í A.fl. einliða vann Daníel B.
Thomsen TBR Róbert Þór Henn
ÍA 15/10 og 15/6. Hanna María
Guðbjartsdóttir IA sigraði Hrefiiu
Rós Matthíasdóttur TBR 13/10 -
11/8 í A.fl. einliðaleik. í tvíliðaleik
karla A.fl. unnu Valdimar Guð-
mundsson IA og Jörgen Nilsson IA,
þá Róbert Þór Henn IA og Heiðar
Hanna María Guðbjartsdóttir sigraði
Hrefnu Mattíasdóttur TBR í A.flokki.
B. Sigurjónsson BH 15/2 og 15/7.
Tvenndarleikur A. flokks fór þannig
að Róbert Þór Henn ÍA og Hulda
Einarsdóttir IA sigmðu þau Tómas
Guðmundsson BH og Karen Sæ-
mundsdóttur Þór, 15/2 og 15/11.
BL
Heimsókn úr Hálsaskógi
Atriði úr Dýrunum í Hálsaskógi.
Það er mikið um að vera hjá
Skagaleikflokknum á Vökudögum
sem hefjast nú í vikunni. Um helg-
ina kemur Lilli klifurmús í heim-
sókn ásamt nokkrum vinum úr
Hálsaskógi. Að sjálfsögðu verður
hann með gítarinn með sér og tekur
lagið. Hérastubbur bakari og bak-
aradrengurinn æda að rifja upp pip-
arkökusönginn, því bangsamamma
þarf að fara að baka fyrir jólin.
Marteinn skógarmús heldur uppi
lögum og reglurn og gætir þess að
Mikki refur gleymi sér ekki og borði
Lilla. Heyrst hefur að Mikki hafi
staðið sig býsna vel upp á síðkastið
og friður hafi haldist í skóginum. En
en maður veit aldrei... betra að fara
varlega.
Hér er um að ræða 40
mínútna dagskrá fyrir
börn, eins konar upprifjun
Skagaleikflokksins á
barnaleikritinu góðkunna
Dýrunum í Hálsaskógi
eftir Thorbjörn Egner.
Flutt verða nokkur lög úr
verkinu og söguþráðurinn
rifjaður upp með börnun-
um. Sýningar verða laug-
ardaginn 5. og sunnudag-
inn 6. nóvember klukkan
14:00 báða dagana, í hús-
næði Skagaleikflokksins að Suður-
götu 126, efri hæð (Bifreiðaverk-
stæði Daníel Friðriksson stendur
utan á húsinu). Leikskólabörn eru
sérstaklega boðin velkomin, ásamt
pabba og mömmu. Miðaverð er
krónur 500 pr. fjölskyldu.
Miðvikudagskvöldið 9. nóvember
klukkan 20:30 verður síðan leiklest-
ur á vegum Skagaleikflokksins.
Nokkrir af reyndari leikurum fé-
lagsins munu lesa upp (með tilþrif-
um) sakamálaleikrit í léttum dúr
sem heitir Fiskur handa fjórurn.
Dagskráin fer einnig ff am að Suður-
götu 126 og tekur um 80 mínútur í
flumingi. Aðgangur er ókeypis en
selt verður kaffi. MM
Hljóðbækur Hörpuútgáfimnar
fáanlegar á geisladiskum
Hljóðbækur á geisladiskum njóta
mikilla vinsælda um þessar mundir.
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
undanfarin ár gefið út mikinn
fjölda hljóðbóka á snældum. Nú
hefur útgáfan látið endurvinna
flestar hljóðbækurnar á geisladiska
og er um að ræða efni bæði fyrir
fullorðna og börn. Hljóðbækurnar
eru fáanlegar í bókaverslunum og
nokkrum hljómplötuverslunum.
Fullorðnir:
Fyrir fullorðna eru nú gefhir út
eftirtaldir hljóðdiskar: Blöndukút-
urinn eftir Braga Þórðarson. 6
geisladiskar, 8 klst. Frásagnir af
fólki og eftirminnilegum atburð-
um.
Kátir karlar eftir Braga Þórðar-
son. 3 geisladiskar, 4 klst. Sögur -
Kveðskapur - Gamanmál - Tónlist.
6 geisladiskar, 8 klst.
Æðrulaus mætm þau örlögum
sínum eftir Braga Þórðarson. Frá-
sagnir af fólki og eftirminnilegum
atburðum. Lesari: Bragi Þórðarson.
Glott í golukaldann eftir Hákon
Aðalsteinsson. 3 geisladiskar, 4 klst.
Smásögur, kveðskapur og gaman-
mál. Lesari: Hákon Aðalsteinsson.
Böm:
Fyrir börn eru nú fáanlegir þess-
ir hljóðdiskar: Emil í Kattholti, 2
geisladiskar. Sprenghlægilegar sög-
ur af Emil í Kattholti. Höfundur:
Astrid Lindgren og lesari er Bessi
Bjarnason.
Sögur fyrir svefhinn 1. 2 geisla-
diskar Ævintýri og kvöldbænir fyr-
ir sjö daga vikunnar.
Sögur fyrir svefninn 2. 2 geisla-
diskar. Ævintýri og kvöldbænir fyr-
ir sjö daga vikunnar.
Þjóðsögur Jóns Arnasonar og
gömul ævintýri. 2 geisladiskar;
Búkolla, Grámann, Gilitrutt, Jói og
baunagrasið og fleiri sögur.
Ævintýri H.C. Andersen 1. 2
geisladiskar: Ljóti andarunginn,
Þumalína og fleiri sögur.
Ævintýri H.C. Andersen 2. 2
geisladiskar: Hans klaufi, Nýju föt-
in keisarans, Litla stúlkan með eld-
spýturnar o.fl. Lesari: Heiðdís
Norðfjörð.
'rt'ri'ífiiH/ /'if /nuuti'
GriUaðar lambalundir með
kartöfluteningum
timijani, flórsykri, ólífuolíu, salti
og pipar. Blandið vel saman.
Raðið tómötunum á bökun-
Nú er sláturtíð að ljúka og
því mikið til af nýju og fersku
lambakjöti í verslunum
landsins. Af því tilefni kom-
um við hér með spennandi
uppskriff þar sem einn dýr-
asti hluti lambsins er nýttur;
lundirnar, hér með bökuðum
tómömm og kartöflutening-
um.
800 gr. lambalundir
1 stk. hvítlauksgeiri
4 greinar timijan
10 msk. ólífuolta
Afhýðið og saxið hvítiauk. Tak-
ið timianlaufin af greinunum og
setjið í skál ásamt lambalundun-
um og ólífuolíu. Blandið vel sam-
an og marinerið í nokkrar klst.
Grillið kjötið í ca. 2 mínútur á
hvorri hlið, við háan hita.
Bakaðir tómatar:
6 stk. plómutómatar
2 greinar timjan
2 msk. flórsykur
3 msk. ólífuolía
salt og pipar.
Skerið tómatana í fernt, fjar-
lægið kjarna og setjið í skál með
arplötu og bakið í miðjum ofni við
150°C í um 30 mín. Afhýðið
tómatana.
Kartöfluteningar:
3 stk bökunarkartöflur
1/2 dl olía
salt
24 stk. ólífur
8 stk. Basilíkulauf.
Flysjið kartöflurnar og skerið í
teninga. Steikið í olíu á pönnu
þar til þær eru meyrar og kryddið
með smá salti. Sigtið olíuna ffá
og berið fram með tómötunum.
Leggið ólífur og basilíkulauf ofan
á þegar rétturinn er borinn fram.