Skessuhorn - 02.11.2005, Side 24
Nýtt og öflugt
f fl y**l>**Pf-8*?
til íbúöakaupa
íbúðalán.is
www.ibudalan.is
Síðasti bæjarstjómarfimdur Gísla
Gísli Gíslason sem gegnt hefur
starfi bæjarstjóra á Akranesi í 18 ár
sat sinn síðasta fund í bæjarstjórn
Akraness, í bili að minnsta kosti, á
þriðjudag í liðinni viku. Hann hef-
ur sem kunnugt er verið ráðinn
hafnarstjóri Faxaflóahafna og tekur
við því embætti 1. nóvember. I lok
fundar í gær kvaddi Kristján
Sveinsson forseti bæjarstjórnar sér
hljóðs og færði hann Gísla þakkir
fyrir störf hans hjá bæjarfélaginu.
Gísli tók að því loknu til máls og
óskaði efrirfarandi bókunar: „Það
eru forréttindi að hafa verið þess
heiðurs og trausts aðnjótandi að fá í
liðlega 20 ár, þar af rúm 18 ár sem
bæjarstjóri, að þjóna bæjarbúum á
Akranesi. A þessum tíma hefur með
samstilltu átaki margra tekist að
efla það blómlega velferðarsamfé-
lag, sem bæjarfulltrúar fyrri ára
lögðu grunn að. Fyrir mig og konu
mína, Hallberu Jóhannesdóttur,
eru það vissulega tímamót nú þegar
ég læt af störfum, en fyrir framsæk-
ið og öflugt samfélag er aðeins um
að ræða áfanga á langri og farsælli
leið. Framundan eru fjölbreytt
tækifæri fyrir samfélagið á Akra-
nesi, sem bíða þess að fúsar og vilj-
ugar hendur grípi þau og nýti til
hagsbóta fyrir fólkið í bænum. Eg
færi öllu því frábæra samstarfsfólki
sem ég hef notið að starfa með, all-
ar mínar hjartans þakkir um leið og
ég óska bæjarstjórn Akraness, effi-
manni mínum, Guðmundi Páli
Jónssyni og öllu starfsfólki bæjarins
farsældar og gæfu á komandi tíð.“
Gísli færði bæjarfélaginu að gjöf,
frá honum og Hallberu, málverk af
Akrafjalli sem Bjarni Þór Bjarnason
hefur málað. Þakkaði forseti bæjar-
stjórnar gjöfina. Fleiri bæjarfulltrú-
ar tóku til máls og færðu Gísla
þakkir fyrir mikil og farsæl störf í
þágu bæjarfélagsins og óskuðu
honum velfarnaðar á nýjum vett-
vangi.
HJ/ Ljósm: akranes.is
Svandís G Stefánsdóttir og Sigrún Sigurgeirsdóttir í eldhúsinu.
Þjóðlegt og gott
Á þriðjudag í liðinni viku var tekið hafa slátur á hverju hausti í
góður dagur hjá íbúum og starfs- áratugi. Létt var yfir mannskapn-
fólki á Dvalarheimilinu Höfða á um við sláturgerðina og greinilegt
Akranesi en þá var unnið í slámr- að fólk hafði gaman af þessu verk-
gerð. Tekin voru 120 slátur. Mikill efrii. Fyrsta sláturmáltíðin var svo
kraftur var í sláturgerðinni og fag- snædd á fimmtudag.
mannleg handtök, enda margir sem MM
Þærfóru fnnum fingrum um nálar ogþrád enda vafalaust komió aó sláturgerð áður
þessar heiðurskonur.
9 rétta jólamatseðill 18., 25., 26. nóv, 2., 3., 9., 10., 16. og 17. des.
Forrétúr:
Kryddlegnar rjúpur með marineruðum gráfíkjum og peru.
Bláberjagrafinn lax með hunangskexi og ristuðum furuhnetum.
Jarðarberja- og mintusorbet.
Verá hr. 5.500
cr mami
Aðalrétúr, val um einn aðalrétt:
Andabringa með hindberjagljáa, kanillegnum kartöflum og
púrtvínslagðri hindberjasoðsósu.
Smjörsteikt smálúða með pistasíum og rósapipar, borinfram með
maker kartöflum og kampavínslagaðri saffransósu.
Lambahryggjarvöðvi með rósmarin engifer, borinfram með
rauðlaukssultu og kartöflu-sveppa “sauté”.
Eftirréttahlaðborð:
Riz a l’amande, alvöru súkkulaðiterta með hindberjasósu, berjaterta,
kransakökutoppar, ávaxtafoss með vanillukremi.
Efþú vilt leggja þig eftir
matinnfærðu gistingu,
kvöldverð og morgunverð
á kr. 9.900 á mann.
Borðapantanir í síma
433 6600 eða í tölvupósti
hamar@icehotels. is
Hótel Hamar - Borgarnesi - sími 433 6600 - h a m a r @ i c e h o t e I s . i s