Skessuhorn - 01.03.2006, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006
g££í)íi»IÍii&£H
Dalabyggð styrkir
íþróttafélög
DALIR: Byggðaráð Dalabyggðar
hefur samþykkt að veita 500 þús-
und krónum til að styrkja starfsemi
sex íþróttafélaga í sveitarfélaginu
vegna starfsemi þeirra á síðasta ári.
Hestamannafélagið Glaður, Ung-
mennafélagið Olafur Pái, Ung-
mennafélagið Æskan og Glímufé-
lag Dalamann fá 100 þúsund krón-
ur í styrk hvert félag og Ung-
mennafélagið Dögun og Golf-
klúbburinn fá 50 þúsund krónur
hvort félag. -hj
Dagsektir lagðar
á ffamkvæmdir
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt tillögu bygging-
arfulltrúa bæjarins um að lagðar
verði dagsektir á lóðarhafa lóð-
anna nr. 9 við Holtsflöt og nr. 7
við Hagaflöt vegna seinagangs við
að tryggja öryggi í kringum lóð-
irnar með girðingum og dælingu
úr grunnum þeirra. Dagsektirnar
eru 3.600 krónur á dag fyrir hvora
lóð. Jafnframt mun byggingafull-
trúi láta innheimta þann kostnað
sem stofnað hefur verið til vegna
aðgerða byggingarfulltrúa til þess
að tryggja öryggi við ofangreind-
ar lóðir, sem fólust í dælingu úr
grunnunum og girðingu við þá.
-hj
Stútar og
réttindaleysi
AKRANES: Galsi virðist hafa
hlaupið í allnokkra ökumenn á
Akranesi í góðviðrinu í liðinni
viku. Ovenju mikið var um hraða-
akstur, en alls voru 34 kærðir fyr-
ir að aka of hratt. Mældur hraði
var á bilinu 112 - 130 km/klst þar
sem hámarkshraði er 90 og 93 -
100 í Hvalfjarðargöngum þar sem
hámarkshraði er 70. Einn þeirra
ökumanna sem kærðir var reynd-
ist að auki réttindalaus og hafði
aldrei haft ökuréttindi. Þá voru
fjórir aðrir kærðir fyrir akstur án
ökuréttinda. Um helgina voru
tveir ökumenn handteknir grun-
aðir um ölvun við akstur. Annar
þeirra reyndist að auki vera öku-
réttindalaus.
-mnt
Sparisjóðurinn Akranesi er teldnn
til starfa ásamt umboði TM
Fyrsti viðskiptavinurinn afgreiddur. Guðmundur Jóhannsson var mœttur snemma sl.
fimmtudagsmorgun.
Fyrstu starfsmenn Sparisjóðsins Akranesi, þau Þorkell Logi Steinsson ogAsta Valdimars-
dóttir. I afgreiðslunni er Guðríður Sigfúsdóttir, en hún nuetir úr Borgamesi fyrstu dag-
ana eða þar til mannað hefur verið í öll störf í nýja sparisjóðnum á Akranesi.
Síðastliðinn fimmtudag hóf
Sparisjóðurinn Akranesi starfsemi
sína við Stillholt 18. Sparisjóðurinn
er í eigu Sparisjóðs Mýrasýslu en
rekin sem sjálfstæð eining og með
eigið bankanúmer (1104) og kenni-
tölu. Samhliða almennri sparisjóðs-
starfsemi er umboð Tryggingamið-
stöðvarinnar einnig á sama stað.
Utibússstjóri er Þorkell Logi Steins-
son en auk hans er gert ráð fyrir að
2-3 öðrum starfsmönnum þegar
mannað verður í allar stöður. Síðast-
liðinn fimmtudag voru þær Asta
Valdimarsdóttir og Guðríður Sig-
fúsdóttir að störfum ásamt Þorkeli.
„Við muntun leggja áherslu á per-
sónuleg tengsl og góða þjónustu við
viðskiptavini okkar. Samkvæmt
könnunum mörg ár í röð hafa Spari-
sjóðimir þá ímynd á sér í huga al-
mennings í landinu að ánægðustu
viðskiptavinimir em hjá þeim. Boð-
leiðir era óneitanlega styttri en í
bönkunum þar sem þeir em stærri
fyrirtæki. Okkar áhersla verður á
þjónustu við einstaklinga og lítdl og
meðalstór fyrirtæki,“ sagði Þorkell.
Aðspurður segir hann að ekki hafi
verið rekinn sparisjóður á Akranesi
síðan á 7. áratug síðustu aldar en þá
hafi Sparisjóður Akraness verið
keyptur upp af Landsbankanum.
Sagði hann jafhframt að Sparisjóður
Mýrasýslu hafi ekki verið með útibú
á Akranesi fyrr, þrátt fyrir að margir
Skagamenn væra þar í viðskiptum.
„Við em staðráðin í að gera góða
hluti héma á Akranesi og mín til-
finning er sú að margir muni koma í
viðskipti til okkar. Ef allt gengur upp
mun því störfum hjá okkur fjölga og
að öllum líkindum þurfrun við fljót-
lega að færa starfsemina í stærra
húsnæði. Sparisjóðurinn Akranesi er
í það minnsta kominn til að vera, því
get ég lofað,“ sagði Þorkell Steins-
son, útbússtjóri á Akranesi í samtali
við Skessuhom.
MM
-------------*------
Vatnsveður í Olafsvík
Mikið suðaustan vatnsveður
gekk yfir Vesturland allt sl. mið-
vikudag og klukkan 13:00 mældist
vindhraðinn við Olafsvíkurhöfn
24-36 metrar á sekúndu. Mikil
rigning fylgdi rokinu og leysing úr
fjöllum og náðu niðurföll í bænum
ekki að anna vatnsflaumnum.
Þessa mynd tók Alfons Finnsson,
ljósmyndari af gilinu, en fleiri
myndir hans af óveðrinu er að
finna á vef Snæfellsbæjar.
MM
Kaupsamningum
fyrir 482
milljónir
AKRANES: I janúarmánuði var
þinglýst 25 kaupsamningum að
verðmæti 482 milljónir króna á
Akranesi. I fjölbýli vom samning-
amir 20 talsins að verðmæti 372
milljónir króna. Meðalverð á íbúð
var því 18,6 milljónir króna. I sér-
býfi vora samningarnir 3 að tölu
og verðmætið 56 milljónir króna.
Meðalverðið er því nánast það
sama og í fjölbýli eða 18,6 milljón-
ir króna. Þá vora 2 samningum um
aðrar eignir en íbúðarhúsnæði
þinglýst að verðmæti 53 milljónir
króna. Þessar upplýsingar koma
ffarn hjá Fasteignamatd ríkisins. -hj
Kennurum
fækkar
VESTURLND: Starfsfólki við
kennslu í grunnskólum á Vestur-
landi fer heldur fækkandi ef marka
má nýjar tölur ffá Hagstofu Is-
lands. I haust vom starfsmennimir
294 talsins og hafði fækkað úr 298
árið á undan. Nokkrar sveiflur hafa
verið í fjölda undanfarin ár því árið
2000 voru starfsmennirnir 275
talsins en árið 2003 vora þeir 315
að tölu. Hlutfall kennara með rétt-
indi er aftur að hækka eftir nokkra
lækkun á undanfömum árum. I
haust vom 78,6% kennara með
kennsluréttindi en árið 2001 var
það hlutfall 72,8%. Þá hefiir hlut-
fall kvenna við kennslustörf einnig
hækkað og var það 74,8% í haust.
-hj
Samningur um
ffamkvæmdir við
safnahús
DALER: Byggðaráð Dalabyggðar
hefur lagt tdl við sveitarstjóm að
hún samþykki samning sem gerð-
ur hefur verið milli Dalabyggðar
og menntamálaráðuneytisins um
framkvæmdir við Safnahúsið í
Búðardal. I samningnum skuld-
bindur ráðuneytið sig til þess að
veita 10 milljónum króna árlega á
árunum 2006-2010 til byggingar-
irmar eða samtals 50 milljónum
króna. -hj
PISTILL GISLA
Minning um naut
Eg geri mér fulla grein íyr-
ir að Morgunblaðið er vin-
sælli vettvangur fyrir minn-
ingargreinar en Skessuhorn
þótt ég hafhi því að sjálf-
sögðu að það annars ágæta
blað hafi yfirburði yfir mitt
heimarit á öðrum sviðum.
Þessvegna nýti ég mér að
sjálfsögðu miðil í mínu
heimahéraði til að rita fáein
minningarorð um Vestlend-
ing sem nú er fallinn frá.
Hann var að vísu fæddur í
Þingaeyjasýslum norður en
uppalinn hér syðra, nánar
tiltekið á Hvanneyri í Borg-
arfirði.
Við Eldur Sprotason,
þarfanaut, kynntumst fyrst á
haustdögum við undirbún-
ing fegurðarsamkepnninnar
Þarfanaut Islands sem ég
stýrði á vegum Kastljóssins.
Vel fór á með okkur og þótt
ég hafi eldað grátt silfur við
ýmsa aðra keppendur þá
brunnu engir eldar okkar á
milli. Eldur sýndi heiðarlega
framkomu og hvergi bar
skugga á framgöngu hans í
keppninni enda var hann
laus við bolabrögð og tudda-
skap.
Eldur var óvæntur sigur-
vegari í keppninni enda kom
hann inn bakdyramegin eftir
að Þorri varð uppvís að kyn-
ferðisbroti sem kostaði hann
sæti í úrslitakeppninni. Eld-
ur nýtti tækifærið út í yrstu
æsar og heillaði dómnefhd-
ina upp úr skónum með
prúðnautslegri framkomu og
tígulegum limaburði.
Seinna kom síðan í ljós að
þar fór fól undir fagurrauðu
skinni, eða hvað?
Eldi var gefið að sök að
vera eins og naut í flagi og
án þess að hann fengi form-
lega áminningu eins og
stjórnsýslulög kveða á um
varðandi opinbera starfs-
menn og væntanlega opin-
ber starfsnaut einnig, var
hann felldur á bak við hús.
Eg trúi því hinsvegar að ekki
séu öll kurl komin til grafar
og neyta að viðurkenna það
sem tilviljun að Eldur skuli
felldur á nákvæmlega sama
tíma og matarhátíðin Food
and fun (Fóður og fjör)
stendur sem hæst. Þar að
auki er það á allra vitorði að
það er nautakjötsskortur í
landinu.
Sjálfsagt verður það seint
fullsannað að um samsæri sé
að ræða þótt minni skoðun
verði ekki haggað. Hitt
stendur þó eftir að það fór
ekki á milli mála að Eldur
spilltist á mölinni. Hann fór
úr sveitinni sem ómeirnað
ungnaut og glaptis af glysi
og glaum stórborgarinnar.
Ekki ætla ég að fullyrða að
hann hafi verið kominn í
neyslu en það var allavega
Ijóst að frægðin steig honum
til höfuðs og síðustu vikurn-
ar var orðinn hrokafullur og
lét eins og hann vissi ekki af
okkur sem studdum hann
þegar enginn vissi hver hann
var.
Ég vona að lokum að örlög
Elds verði þeim víti til varn-
aðar sem telja að grasið sé
ávallt grænna hinum 'megin
Elliðaánna. j
Heima er best.
Gísli Einarsson, nautabani.