Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006
Til minnU
Skessuhorn vil minna alla Vest-
lendinga á hreinan úrslitaleik
Skallagríms og Keflavíkur í
undanúrslitum lceland Express
deildarinnar. Leikurinn fer fram
í Keflavík á fimmtudaginn og
hefst klukkan 19:15. Hvernig
væri nú að allir sem geta kom-
ið því við fjölmenni til Keflavík-
ur og hvetji Vestlendinga til
sigurs?
Ve5t\rhorftfr
Á fimmtudag og föstudag er
gert ráð fyrir allhvössum norð-
lægum áttum með einhverri
ofankomu á fimmtudag. Um
helgina er útlit fyrir bjart veður
á köflum á vestanverðu land-
inu og dregur verulega úrvindi
en frost verður á bilinu 0 til 6
stig. Á mánudag er gert ráð
fyrir vestlægum áttum og vætu
og heldur hlýnandi veðri.
Spnrnin^ v&nnnctr
Við spurðum í síðustu viku á
vef Skessuhorns: Styður þú rík-
isstjórn íslands? Einungis 35%
sögðust styðja núverandi ríkis-
stjórn og 10% þeirra sem svör-
uðu eru hlutlausir. 55% að-
spurðra segjast ekki styðja ríki-
stjórn íslands og vilja þá eflaust
sjá einhverjar breytingar á
stjórnarheimilinu í framtíðinni.
í næstu viku spyrjum við:
„Hljópst þú
apríl gabb?"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlendiwjwr
viKi\nnar
Fyrir hönd fjölmargra vaskra
manna og kvenna er Bjarni
Þorsteinsson, slökkviiiðsstjóri í
Borgarnesi fulltrúi Vestlend-
inga vikunnar.
PEYSUDAGAR!
20% afsláttur
af peysum
fimmtudag, föstudag
og laugardag.
SSadin
VESTURGÖTU 147 • AKRANESI
^ SÍMI431 1753 & 861 1599 j
ÚLPUDAGAR!
20% afsláttur
af úlpum
fimmtudag, föstudag
og laugardag.
cS^t/a éMuðm
VESTURGÖTU 147 • AKRANESI
SÍMI 431 1753 & 861 1599
Samkeppni um þjóðgarðsmiðstöð
á Snæfellsnesi
Snæfellsbær og Umhverfisstofnun
hafa ákveðið að efha til samkeppni
um hönnun þjónustumiðstöðvar
Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hell-
issandi og fer samkeppnin fram
samkvæmt reglum Arkitektafélags
Islands. Miðstöðin mun rísa á lóð
við Útnesveg. Við hlið lóðarinnar er
Sjómannagarðurinn þar sem gömul
verbúð heíúr verið endurgerð. I Sjó-
mannagarðinum er einnig annað
hús í gömlum stíl sem hýsir safh sem
tengist sjómennsku. Akveðið hefur
verið að tjaldsvæði verði upp með
hraunjaðri vestan við þjóðgarðsmið-
stöðina. Svæðið í heild verður því
miðstöð fyrir ferðafólk sem leggur
leið sína um Hellissand.
Meginmarkmið keppninnar er að
skapa aðlaðandi og hentuga um-
gjörð um starfsemi þjóðgarðsins. I
keppnislýsingur segir að staðsetning
hússins geri kröfur til aðlögunar
þess að umhverfi. Innra skipulag
þarf að þjóna vel mismunandi þátt-
um starfseminnar tun leið og innri
tengsl þurfa að vera eðlileg og greið.
Æskilegt er að húsið undirstriki
hlutverk þjóðgarðsins. Miðað er við
að stærð hússins verði ekki meiri en
745 fermetrar og að byggingar-
kostnaður verði ekki meiri en 150
milljónir króna.
Veitt verða verðlaun að heildar-
fjárhæð allt að kr. 3,4 milljónir
króna. Stefnt er að veitingu þriggja
verðlauna, 1., 2. og 3. verðlauna. 1.
verðlatm verða eigi lægri en 1,7
milljón króna. Auk þess er dóm-
nefnd heimilt að veita tillögum við-
urkenningar fyrir allt að 600 þúsund
krónur. HJ
Uppbyggingu Skógahverfis flýtt
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að fela skipulags- og um-
hverfisnefhd að láta nú þegar hefja
skipulagsvinnu við nýjan hluta
Skógahverfis og verður það sá hluti
hverfisins sem næstur er Garða-
lundi og Safnasvæðinu að Görðum.
I samþykkt ráðsins segir að lóðum í
þessum hluta hverfisins verði út-
hlutað á haustdögum. Það voru
bæjarráðsmenn meirihluta bæjar-
stjórnar, Guðni Tryggvason og
Kristján Sveinsson, sem fluttu þessa
tillögu í bæjarráði. Guðrún Elsa
Gunnarsdóttir fulltrúi mirmihlut-
ans lét bóka að hún fagni tillögunni
en hefði viljað sjá stærra svæði
deiliskipulagt nú þegar.
Á dögunum var úthlutað fyrstu
einbýlishúsalóðunum í Skóga-
hverfi. Til ráðstöfunar voru 61 lóð
en alls voru 194 gildar umsóknir
um lóðirnar.
HJ
Þriggja bíla árekstur
Síðdegis á föstudag varð umferð-
arslys á gatnamótum Vesturgötu og
Akurgerðis. Fólksbiffeið sem ekið
var af Akurgerði og inn á Vestur-
götu lenti í hörðum árekstri við
fólksbifreið sem ekið var norður
Vesturgötu en við áreksturinn skall
sú biffeið á kyrrstæða biffeið er
stóð í biffeiðastæði við árekstur-
stað. Okumaður annarrar fólksbif-
reiðarinnar var fluttur með sjúkra-
bifreið á Sjúkrahús Akraness til að-
hlynningar. Reyndist hann óbrot-
inn en nokkuð marinn. Þurfti hann
að dvelja á sjúkrahúsinu yfir nótt.
Okumaður hinnar bifreiðarinnar
auk þriggja farþega sluppu ómeidd-
ir og má það þakka notkun öryggis-
belta, að því er segir í tilkynningu
ffá lögreglu á Akranesi. Mikið tjón
varð á báðum bifreiðum og voru
þær fluttar af vettvangi með krana- ness kom á vettvang til aðstoðar og
bifreið. Tjón á kyrrstæðu biffeið- var Vesturgötu lokað fyrir umferð
inni var óverulegt. Slökkvilið Akra- um tíma vegna óhappsins. HJ
Eirmig sinubrunar í Borgarfirði
Sinueldurinn náði langleiðina að b<Jarhúsunum í Kletti.
Segja má að vaskir
menn í Slökkviliði
Borgarfjarðardala hafi
haft í nógu að snúast
síðustu viku. Auk þess
að taka virkan þátt í
slökkvistarfinu á Mýr-
um hituðu þeir upp á
fimmtudag, en þá
þurftu þeir að slökkva
sinuelda á tveimur
stöðum þar sem sinu-
brenna bænda hafði
farið nokkuð úr bönd-
unum vegna hvassviðr-
is og óvenjulega þurrs
jarðvegs. Fyrst var út-
kall vegna sinubruna á Mófellsstöð-
um í Skorradal um kaffileytið.
Slökkvistarf þar gekk vel. Voru
menn vart komnir heim úr Skorra-
dalnum þegar þeir voru kallaðir út
vegna sinubruna í neðanverðum
Reykholtsdal þar sem eldur í sinu á
bökkum Reykjadalsár færðist hratt
undan vindi og var talinn ógna hús-
um og skógi á bænum Kletti. Að
sögn Péturs Jónssonar, slökkviliðs-
stjóra gekk slökkvistarf vel þrátt
fyrir erfiðar aðstæður en vatni var
dælt úr Reykjadalsá. Slökkvistarfi
lauk um klukkan 2 um nóttina, að-
fararnótt föstudags. Daginn eftir
var slökkviliðið kallað á Mýrarnar
þar sem það hélt til meira og minna
næstu tvo sólarhringa.
MM
Lóðir við Grundarfj arðarhöfii
lausar til umsóknar
Lóðir á nýrri landfyllingu við
Grundarfjarðarhöfn verða auglýst-
ar lausar til umsóknar á næstu vik-
um. Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns hefur dýpkun-
arskipið Perlan að undanförnu dælt
upp sjávarefhi undir fyrirstöðugarð
vegna landfyllingar við Gundar-
fjarðarhöfn. Berglín ehf. úr Stykk-
ishólmi bauð lægst í byggingu
garðsins og er verkið hafið. Verklok
garðsins eru í lok maí og landfyll-
ingar í lok júní.
Þá hefur verið auglýst útboð á
efniskaupum í stálþil fyrir gerð
nýrrar bryggju í stað „litlu
bryggju.“ Á næstu dögum auglýsir
Siglingastofnun útboð verksins,
það er rekstur stálþils og frágangs
sem vinna á í sumar og haust. Vinna
við lagnir, þekju og lýsingu fer fram
á næsta ári samkvæmt gildandi
hafnaáætlun.
HJ
Næstu blöð
SKESSUHORN: Vegna páska-
vikunnar sem nú fer í hönd kem-
ur Skessuhom í næstu viku út
degi fyrr en vant er, þ.e. þriðju-
daginn 11. apríl. Þeir sem þurfa
að koma efni og auglýsingum í
blaðið er bent á að frestur til þess
rennur út í síðasta lagi um kaffi-
leytið nk. mánudag. Efdr páska
kemur út blað miðvikudaginn 19.
apríl og er skilaffestur efhis og
auglýsinga í það tölublað þriðju-
daginn 18. apríl. -mm
Baldur farínn
STYKKISHÓLMUR: Breiða-
fjarðarferjan Baldur lagði upp í
sína síðustu ferð ffá Stykkis-
hólmi sl. föstudag yfir Breiða-
fjörðinn. Dágóð umferð var um
hafnarsvæðið þar sem ýmsir
voru á ferðinni að fylgjast með
gamla skipinu leggja upp í sína
síðustu ferð á þessum slóðum.
Nýja skipið sem tekur við er
væntanlegt 12. apríl. -mm
Bæjarmálafélag
stofnað
á Akranesi
AKRANES: Á sunnudags-
kvöldið var stofnað á Akranesi
Bæjarmálafélag Frjálslyndra og
óháðra. Á stofhfundinum var
kosin fimm manna stjórn sem
skipta mun með sér verkum. I
stjórninni sitja Guðbjörg Ás-
geirsdóttir, Kristinn Jens Krist-
insson, Gunnar Hafsteinssofi,
Stefán Þór Þórisson og Magnús
Þór Hafsteinsson. í samtali við
Skessuhorn segir Magnús Þór
fundinn hafa verið þokkalega
sóttan og þar hafi komið mjög
skýrt fram að tími sé kominn til
að hleypa nýju blóði og krafti
inn í bæjarstjórnarmálin og
pólitíska umræðu á Akranesi.
Félagið mun bjóða fram við
bæjarstjórnarkosningarnar í vor
og segir Magnús Þór nú þegar
liggja fyrir hverjir skipa muni
efstu sæti listans, en nöfn þeirra
verði ekki kynnt fyrr en síðar.
-hj
Leiðrétting
BORGARNES: í frétt í síðasta
Skessuhorni þar sem sagt var
ffá styrkveitingum Menningar-
málanefndar Borgarbyggðar
urðu þau leiðu mistök að einn
styrkþeginn var rangfeðraður.
Hallgrímur Sveinn er Sævars-
son en ekki Sveinsson eins og
sagði í fréttinni. Hallgrímur
veitt viðtöku styrk sem félagið
Nykur hlaut og var einnig rit-
villa í nafni félagsins. Beðist er
velvirðingar á þessum mistök-
um. -hj
Umferðaröryggi
á Kjalamesi
ALÞINGI: Birgir Ármannsson
hefur lagt ffam á Alþingi fyrir-
spurn til samgönguráðherra um
umferðaröryggi á Kjalarnesi.
Hann óskar svara við því hvaða
áform séu uppi af hálfu sam-
gönguyfirvalda um vegabætur í
þágu umferðaröryggis á Vestur-
landsvegi á Kjalarnesi. Þá spyr
þingmaðurinn að því hvort sér-
staklega séu fyrirhugaðar breyt-
ingar á vegtengingu við þétt-
býlið á Kjalarnesi og hvenær
megi vænta breytinga af því
tagi. -hj