Skessuhorn - 05.04.2006, Side 7
SBlSSUiiöBK!
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006
7
Hreppsnefnd Reykhólahrepps kærir úrskurð
Sldpulagsstofiiunar
Hreppsnefnd Reykhólahrepps
samþykkti á fundi sínum í síðustu
viku með fjórum atkvæðum gegn
einu að kæra til tunhverfisráðherra
úrskurð Sldpulagsstofnunar um um-
hverfisáhrif vegagerðar ffá Bjarka-
ltmdi að Eyri í Reykhólahreppi. Eins
og ffam hefur komið í fréttum
Skessuhoms lagðist Skipulagsstofii-
un meðal annars gegn lagningu veg-
ar um Teigsskóg. Með samþykktinni
er hreppsnefnd í raun að fallast á
samþykkt umhverfis- og náttúra-
vemdamefiidar Reykhólahrepps frá
því í þarsíðustu viku og samþykkt
skipulags-, bygginga- og hafnar-
nefiidar Reykhólahrepps sem fund-
aði um máfið í síðustu viku.
I samþykkt skipulagsnefndar á
þriðjudag í liðinni viku kemur með-
al annars ffam furða nefhdarinnar
„hversu léttvægt staðfest svæðis-
skipulag Reykhólahrepps virðist
vera í meðförum Skipulagsstofiiunar
og beinar rangfærslur stofnunarinn-
ar,“ eins og segir orðrétt í bókun
nefiidarinnar. Þá segir meðal annars:
„Ekld verður því haldið ffam að
sldpulagið hafi farið hljótt eða verið
Hlust-
vörslu á
rás 9 hætt
Stjórn vaktstöðvar siglinga, í
samráði við Siglingastofnun og
Siglingaráð, hefur tekið ákvörðun
um að hætta hlustvörslu á rás 9 á
metrabylgju (VHF). Rás 9 hefur
til nokkurra ára verið nomð fyrir
tilkynningaskyldu skipa og báta á
Faxaflóa, Breiðafirði og sunnan-
verðum Vestfjörðum. Skip og
bátar í öðrum landshlutum hafa
notað svokallaðar vinnurásir t.d.
25 og 26 fyrir sambærilegar til-
kynningar. Nú hefur því verið
ákveðið að notast eingöngu við
vinnurásir til þessara tilkynninga.
Eins og ffam kemur í tilkynningu
til sjófarenda nr. 1-2 2006 verður
hlustvörslu formlega hætt frá og
með 1. apríl. Þó mun Vaktstöð
siglinga hafa þessa rás opna um
nokkurra vikna skeið ffam yfir
þann tíma til að vísa mönnum á
aðrar rásir.
Bent er á að fjarskiptabúnaður
fyrir vinnurás 26 er á fjallinu Þor-
birni norður af Grindavík og
hentar því vel fyrir Reykjanes og
Faxaflóasvæðið. Fjarskiptabúnað-
ur fyrir rás 23 er á Sandi og hent-
ar því vel fyrir t.d. Olafsvík, Rif og
utanverðan Breiðafjörð. Fjar-
skiptabúnaður fyrir rás 26 er
einnig í Hænuvík og hentar vel
fyrir t.d. Patreksfjörð, Tálkna-
fjörð og fleiri staði á Vestfjörðum.
Ef ekki næst samband á þessum
rásum þá er þéttara net fyrir rás
16 og ætti því að vera auðvelt að
ná sambandi til tilkynninga á
þeirri rás. „Með tilkomu sjálf-
virkra tilkynningarkerfa hefur
mjög dregið úr notkun á rás 9 en
töluverður sparnaður mun hljót-
ast af því að hætta hlustvörslu á
þeirri rás. Sá sparnaður mim nýt-
ast við uppbyggingu á öðrum
þáttum í öryggismálum sjófar-
enda sem Vaktstöð siglinga ber á-
byrgð á,“ segir í tilkynningu ffá
Landhelgisgæslu Islands og vakt-
stöð siglinga.
MM
unnið án vitundar allra helstu nátt-
úmverndarsamtaka á Islandi því
þetta sama svæðisskipulag gerir
einnig ráð fyrir þverun Gilsfjarðar,
sem á þeim ti'rna var mikið hitamál.
Margir sömu einstaklingar, samtök
og stofnanir sem mótmæltu þverun
Gilsfjarðar era nú að mótmæla vega-
gerð í Gufúdalssveit samkvæmt leið
B, en gerðu ekki athugasemdir á sín-
um tíma við þá þætti svæðisskipu-
lagsins sem gera ráð fyrir legu Vest-
fjarðavegar á þeim stað sem Vega-
gerðin nú leggur tdl, þ.e. þverun
Þorskafjarðar við Kinnarstaði í 1. á-
fanga og áffam effir leið B frá Þóris-
stöðum út með norðanverðum
Þorskafirði og yfir Djúpafjörð milli
Hallsteinsness og Gróuness og það-
an yfir Gufúfjörð vestur á Melanes
og að Kraká í 2. áfanga." Þá segir
einnig: „Skipulagsnefnd bendir á að
þó skóglendi við norðurströnd
Þorskafjarðar sé á náttúruminjaskrá
er mun stærra og víðáttumeira svæði
vestar í Reykhólahreppi á náttúm-
minjaskrá af sömu ástæðum."
Þá vekur skiptdagsnefnd Reyk-
hólahrepps athygfi á því að Skipu-
lagsstofiiun heldur því ffam á bls. 45
í úrskurðinum að Breiðafjörður sé
ffiðaður samkvæmt sérstökum lög-
um.
„Þetta er rangt, Breiðafjörður er
ekki ffiðaður, er ekki ffiðland, en
nýtur vemdar samkvæmt lögum um
vemd Breiðafjarðar. Þeirri vemd er
hins vegar ekki ætlað að setja bú-
setuskilyrðum við Breiðafjörð
skorður eða atvinnuháttum og
hlunnindanytjum, heldur þvert á
mótd að efla mannlífið og bæta bú-
setuskilyrðin. Hins vegar er í Vatns-
firði rétt vestan við sveitarfélaga-
mörkin milfi Reykhólahrepps og
Vesturbyggðar 20.000 hektara stórt
ffiðland með víðáttumiklum birki-
skógi, sem nýtur mim meiri vemdar
heldur en aðrar náttúruminjar eins
og skóglendi á norðurströnd
Þorskafjarðar."
í niðurstöðu skipulagsnefndarinn-
ar segir meðal annars um leið B:
„Skipulagsnefnd telur að einungis
þessi valkostur uppfylh þau skilyrði
sem gera verði til nýrra vega hvað
varðar umferðaröryggi og greið-
fæmi. Með henni séu best tryggðir
hagsmunir þeirra íbúa Reykhóla-
hrepps sem búa vestan Þorskafjarðar
og þurfa að sækja vinnu eða skóla til
Reykhóla eða Króksfjarðamess, en
um leið allra sem um veginn þurfa
að fara s.s. íbúa í Vestur-Barð og
ferðamanna.“
Hjf
Komdu íbæinn
Tilboð á gistingu á Hótel Sögu og Hótel íslandi
•
Nú getur þú látið það verða að veruleika að gista á glæsilegu hóteli
í höfuðborginni. Við bjóðum þér gistingu um helgar og um páskana
á einstöku tilboðsverði.
Hfi
/ ; Aií—-
Radisson SAS Hótel Saga
Einstaklingsherbergi - verð pr. nótt kr. 7.
Herbergi fyrir tvo - verð pr. nótt kr. 8.000
Morgunmatur innifalínn.
Hótel ísland v |j '\ /v
Bnstaklingsherbergi - verð pr. nótt kr. 5.000
Herbergi fyrir tvo - verð pr. nótt kr. 6.000
Morgunmatur innifalinn.
Tilboðið gildir fyrir gistingu til og með 15. maí.
advm>!\ j
inri
SAGA HOTEL, REYKJAVIK
Radisson SAS HDtei Saga / Hagatorgi / sDmí 525 9900
Email Sales.Saga.Reykjavik@RadissonSAS.com
REZI DOR JJj
Island, Reykjavik
Park inn / Ármúla 9 / Sími 525 9900
EmailSaies.Reykjavik@RezidorParkjnn.com
rAl Ferðamálastofa
KF www.ferdalag.is