Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 8

Skessuhorn - 05.04.2006, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. APRIL 2006 L listi Félagshyggju- framboðs kynntur í Stykldshólmi Framboðslisti Félagshyggju- framboðsins í Stykkishólmi var kynntur fyrr í vikunni. Boðið er fram undir listabókstafnum L. Listann skipa: 1. Lárus Astmar Hannesson, kenn- an. 2. Berglind Axelsdóttir, framhalds- skólakennari. Davíð Sveinsson, skrifstofu- maður / bíejaffulltrúi. Helga Guðmundsdóttir, póst- maður. Hreinn Þorkelsson, kennari. Guðmundur Kristinsson, skipa- smíðameistari / bæjarfulltrúi. Hrefna Frímannsdóttir, sjúkra- pjálfari. Jón Torfi Arason, verkamaður. Hilmar Hallvarðsson, raf- virkjameistari og bæjarfulltrúi. 10. Elín Guðrún Pálsdóttir, leik- skólakennari. 11. Guðbjörg Egilsdóttir, skrifstofu- maður. 12. Anna Sigríður Guðmundsdótt- ir, leikskólastarfsmaður. 3. Lárus Astmar Hannesson, skipar fyrsta sæti listans. 13. Björgvin Olafsson, fiskverkandi. 14. Elín Sigurðardóttir, Ijósmóðir. L - listinn hefur nú þrjá fulltrúa í bæjarstjórn Stykkishólms; þau Davíð Sveinsson, Hilmar Hall- varðsson og Guðmund Kristinsson. Sjálfstæðisflokkurinn er með hrein- an meirihluta í bæjarstjórn og hlaut fjóra fulltrúa kjörna í síðustu kosn- ingum. MM Sveitarstjómakosningar 2006 á www.skessuhom. is Þau lentu í efstu sœtunum íforvali J listans. Góð þátttaka í forvali J - listans í SnæfeUsbæ Forval fór ffam hjá Bæjarmála- samtökum Snæfellsbæjar, J-listan- um, á sunnudagskvöld. Að Bæjar- málasamtökunum standa önnur stjórnmálaöfl en Sjálfstæðisflokkur- inn og í síðustu bæjarstjórnarkosn- ingum hlaut listinn þrjá menn Mildl endumýjun hjá Samfylkingunni á Akranesi kjörna í bæjarstjóm Snæfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut hins vegar fjóra menn kjörna og hreinan meirihluta. Sautján manns gáfu kost á sér í forvalinu á sunndagskvöldið og 125 manns greiddu atkvæði. Þeir sem urðu í átta efstu sætum forvalsins vinna nú í samstarfi við uppstilling- arnefnd að uppröðtm á ffamboðs- listann. Að sögn Drífu Skúladóttur hefur ekki verið ákveðið hvenær uppstillingu verður lokið. Hópur- inn muni taka sér þann tíma sem þarf til verksins. Hún segir mikla ánægju með þátttökuna í forvalinu og það gefi sterka vísbendingu um kröfu til breytinga við stjórn Snæ- fellsbæjar. Þau sem efst urðu í forvalinu vom í staffófsröð: Drífa Skúladótt- ir, Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir, Fríða Sveinsdóttir, Guðný Heið- björt Jakobsdóttir, Gunnar Orn Gunnarsson, Kristján Þórðarson, Pétur Steinar Jóhannsson og Stein- ey Kristín Olafsdóttir. HJ Á félagsfundi hjá Samfýlkingunni á Akranesi á föstudagskvöld var einróma samþykkt tillaga uppstill- ingarnefndar að framboðslista Samfylkingarinnar og óháðra fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akra- nesi í vor. Miklar mannabreytingar em á listanum ffá síðustu kosning- um. 1. Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi 2. Hrönn Ríkharðsdóttir, aðstoðar- skólastjóri 3. Anna Lára Steindal, siðfræðingur 4. Sigrún Osk Kristjánsdóttir, há- skólanemi 5. Hrafnkell Proppe', garðyrkjumað- ur 6. Bjöm Guðmundsson, húsasmiður 7. Ingibjörg Valdimarsdóttir, deildar- sýóri 8. Valgarður Lyngdal Jónsson, kenn- ari 9. Guðmundur Valsson, mælinga- verkfræðingur 10. Vilhjálmur Gunnarsson, jámiðn- aðarmaður 11. Jónína Margrét Sigmundsdóttir, háskólanemi 12. Jón Ingi Þrastarson, nemi 13. Edda Agnarsdóttir, kennari 14. Sigrún Asmundsdóttir, iðjuþjálfi 15. Hlini Eyjólfsson, sjómaður 16. Guðlaugur Ketilsson, vélfræðingur 17. Agústa Friðriksdóttir, bæjarfull- trúi 18. Ingvar Ingvarsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í síðustu kosningum hlaut Akra- neslistinn (S) þrjá menn kjörna í bæjarstjórn Akraness, þau Svein Kristinsson, Kristján Sveinsson og Ágústu Hjördísi Friðriksdóttur. Eins og ffam hefur komið í fféttum Skessuhorn ákvað Ágústa fyrir nokkm að gefa ekki kost á sér að þessu sinni til setu í bæjarstjórn. Kristján Sveinsson, forseti bæjar- stjórnar gaf kost á sér til setu á list- anum en ekki var gerð tillaga um hann. Guðlaugur Ketilsson for- Sveinn Kristinsson, skipar fyrsta sæti lista Samfylkingar og óbáðra á Akranesi. maður uppstillingarnefndar segir Kristján Sveinsson, sem nú er for- seti bæjarstjórnar Akraness, hafa gefið kost á sér til áffamhaldandi setu á listanum. Það hafi einnig gert fjöldi mikils hæfileikafólks. Því hafi uppstíllingamefnd ákveðið að hlýða kalli um endurnýjun um leið og byggt yrði á þeim mikla árangri sem bæjarfulltrúar flokksins hafi náð í störfum á undanförnum ámm. Á listanum nú séu einungis þrír sem sátu á listanum við síðustu kosningar. Einróma stuðningur við tillögu uppstillingarneftidar sé gott veganesti fyrir það kraftmikla fólk Leggja til breytingar á fasteignaskatti Sigríður Finsen leiðir D - listann í Grundarfirði -----------i----------------------- Sigríður Finsen leiðir listann. Á fundi Sjálfstæðisflokksins í Gmndarfirði á dögunum var sam- þykkt tillaga uppstillingameftidar að framboðslista flokksins, D-lista, við bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Listínn er þannig skipaður: 1. Sigríður Finsen, hagfiæðingur 2. Þórey Jónsdóttir, skrifstofústjóri 3. Asgeir Valdimarsson, fram- kvæmdarstjóri 4. Rósa Guðmundsdóttir, viðskipta- fræðingur 5. Þórður Magnússon, fram- kvæmdastjóri 6. Elvar Alfreðsson, fótboltaþjálfari 7. Dagbjartur Harðarson, bygginga- meistari 8. Unnur Bima Þórhallsdóttir, kennari 9. Guðmundur Jónsson, smiður 10. Þorsteinn Friðfinnsson, trésmiður 11. Þórdts Guðmundsdóttir, sjúkra- liði 12. Kristmundur Harðarson, raf- virkjameistari 13. Hrólfur Hraundal, vélvirki 14. Dóra Haraldsdóttir, afgreiðslu- stjóri Við síðustu kosningar hlaut listi Sjálfstæðismanna þrjá menn kjörna í bæjarstjórn, þau Ásgeir Valdi- marsson, Dóm Haraldsdóttur og Sigríði Finsen. Flokkurinn hefur myndað meirihluta í bæjarstjórn með Framsóknarflokknum. Ræða stöðu iðngreina í Fjölbrautaskóla Vesturlands Þingmenn Frjálslynda flokksins, þeir Guðjón Arnar Kristjánsson, Magnús Þór Hafsteinsson og Sig- urjón Þórðarson hafa lagt ffam á Alþingi ffumvarp tíl breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfé- laga. I ffumvarpinu segir að við hækkun fasteignamats verði óheimilt að hækka fasteignaskatt meira en nemur breytíngu á launa- vísitölu. Þá er einnig lagt til að hafi útihús í sveitum ekki verið nýtt í tvö ár skuli enginn fasteignaskattur á þau lögð. Skattlagning hefjist að nýju ef útihúsin em tekin í notkun á ný sem gripahús. I greinargerð með fmmvarpinu segir að fasteignaskattur sé ein af meginstoðum í tekjuöflun sveitar- félaga ásamt útsvarstekjum. Fast- eignagjöld taki ekki mið af tekjum fólks eins og útsvarið gerir og því tengist þau ekki greiðslugetu þegn- anna. Að því leyti séu fasteigna- skattar ekki réttlátir þar sem álögur geti hækkað meira milli ára en laun þeirra sem greiða eiga. Þá segir að fmmvarpið kunni að minnka tekjur sumra sveitarfélaga og því telja flutningsmenn að mjög tímabært sé orðið að sveitarfélög fái hlut í tekjustofnum sem færa þeim tekjur af neyslusköttum eins og til dæmis virðisaukaskatti. HJ Aðsókn í bygginga-, rafiðna- og málmiðnagreinum í Fjölbrauta- skóla Vesturlands hefur minnkað nokkuð að undanförnu og til þess að ræða þá stöðu boðaði Hörður Helgason skólameistari til fundar með fulltrúum fyrirtækja og stétt- arfélaga í þessum greinum. Einnig var fulltrúum stéttarfélaga í þessum greinum boðið til fundarins auk fulltrúa frá Félagi iðn- og tækni- greina. Síðastliðið haust byrjaði einfaldur hópur í gmnnnámi í þess- um deildum og var það annað árið í röð sem gmnndeild rafiðna hefur einfaldan byrjendahóp. Einfaldan hóp skipa tólf nemendur. Til þessa hafa að jafnaði byrjað tveir hópar eða um 24 nemendur í hvorri þess- ara deilda. I byggingagreinum hef- ur hins vegar oftast verið einföld granndeild og aðsókn í hana hefur heldur aukist undanfarin ár. Að því er fram kemur á heima- síðu Fjölbrautaskólans skiptust fundarmenn á skoðunum og ræddu stöðu iðngreina við skólann. I lok fundar vom fjórir fulltrúar atvinnu- lífsins valdir í starfshóp sem mun verða skólanum til ráðuneytis um kynningu á iðnnámi og leiðir til að auka aðsókn að því. HJ

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.