Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Page 13

Skessuhorn - 05.04.2006, Page 13
■■nviiin.,. MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 13 di á Mýrum: rgað í mesta sinubruna sögunnar og hinsvegar var mikil áhersla lögð á að bleyta í vegum og vegköntum til að freista þess að hindra að eld- amir næðu yfir þá. Margs konar slökkvitæki; hefð- bxmdin sem óhefðbundin voru nýtt við slökkvistarfið allt frá svokölluð- um klöppum sem barið er á glóð og eld til stórvirkra vatnsflumings- tækja. Stórar haugsugur dregnar af öflugum dráttarvélum voru í raun einu tækin sem hægt var að aka með um mýrar og holt enda tækin á stórum og flotmikfum dekkjum. Tankar þeirra höfðu flutningsgetu upp í 15 tonn af vatni. Þá voru dælu- og tankbílar slökkviliðanna nýttir til hins ítrasta, aðrir vatns- flutningabílar, jarðýtu var beitt við að flekkja land og drepa í eldjöðrum og jafnvel þyrla var kölluð til í tvígang en hún dreifði vami úr um 2 þúsund lítra vamspoka yfir eldana þar sem önnur tæki komust ekki að af landi. Björgunarsveitarmenn, lögregla, nágrannar og ýmsir fleiri hjálpsamir aðilar lögðu auk þess hönd á plóg við ýmis verk sem fylgja svo umfangsmiklu og mann- freku slökkvistarfi sem þessu. Mannvirki varin og vamarlínur settar upp I þessum mesm sinueldum í manna minnum varð ekki tjón á mannvirkjum, mönnum eða búfén- aði og verður það að teljast blessun- arlega vel sloppið. Slökkvistjórinn í Borgarnesi; Bjarni Þorsteinsson stóð vakt á Mýrunum allt frá fimmtudagsmorgni og fram á mánudag með litlum hléum. Hann var að vonum þreytmr á mánudag þegar Skessuhorn hafði samband við hann: „Við lögðum áherslu á að enginn skaðaðist í þessum hamför- um; fólk eða fénaður, vörðum mannvirki og byggðum upp varnar- línur til að hefta enn frekari út- breiðslu eldsins. Eg tel að okkur hafi tekist það vel; það eru allir heil- ir, mannvirki voru varin og skepnur sluppu. Það ræður enginn mann- legur máttur við svona hamfarir þegar eldurinn flæmist áfram á ógnarhraða og eldsmaturinn er mikill. Því held ég að litið í baksýn- isspegilinn eigum við og allir sem að þessu komu á einhvern hátt að vera bæði þakklát og stolt yfir að ekki fór verr,“ sagði Bjarni. Lærum af þessu Aðspurður um þá gagnrýni sem fallið hefur á hann og stjórnun slökkvistarfs sagði Bjarni: „Eg held að við hefðum ekki getað gert margt öðruvísi en við gerðum mið- að við allar aðstæður og undir því álagi sem mannskapurinn var undir. Að sjálfsögðu á það við að lengi lær- ir sem lifir og á það við okkur öll. Auðvitað hefði mátt gera eitthvað öðruvísi en gert var, en árangurinn þegar upp er staðið er góður því menn og skepnur og mannvirki sluppu án skaða og okkur tókst að forða því að eldurinn næði enn meiri útbreiðslu, t.d. suður í Álfta- neshreppinn. Sú gagnrýni sem sett var ffarn sl. sunnudag á störf okkar er eðlileg í ljósi aðstæðna og þreytt- ur maður sem setur hana ffam. Eg held að búið verði að flokka hana sem einhvers konar áfallastreitu. Þessa gagnrýni tek ég ekki alvarlega en að sjálfsögðu munum við reyna að læra af því hvemig til tókst. Af reynslunni læra menn eirmi saman í tilvikum sem þessum og menn mega ekki gleyma því að þetta vora stærstu sinueldar Islandssögunnar. Þrátt fýrir að við höfum fengið á okkur gagnrýni fyrir eitthvað sem menn telja að við höfum gert rangt, þá eru miklu fleiri sem hafa haff samband og þakkað okkur einmitt fyrir að hafa gert allt sem hægt var í baráttunni við eldinn,“ sagði Bjarni að lokum. Viðbragðsaðilar muni koma saman á næstu dögum og meta brunann í heild sinni, við- brögð slökkviliðsmanna og annarra björgunaraðila. MM/ Ljósm. MM, nema þegar annað er tekið fram. Fréttatilkynning frá bæjarstjóm Borgarbyggðar Þaldár til allra þeirra sem aðstoðuðu við slökkvistarf á Mýrum í Borgarbyggð Sinueldamir á Mýrum í Borgar- byggð 30. mars til 1. apríl síðastlið- inn eru með mestu hamförum sinn- ar tegundar á landinu í áratugi. Með öflugri ffamgöngu og góðu samstarfi slökkviliða, lögreglu, ým- issa aðila sem buðu fram aðstoð sína og ekki síst íbúa í héraðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins. Tíminn leiðir í ljós hvaða áhrif sinubruninn hefur á h'ffíki á svæð- inu en mikilvægt er að hefja rann- sóknir í þeim efhum sem fyrst. Hins vegar er það mikið lán að eng- inn hlaut skaða í átökunum við eldana og sem bemr fer tókst að halda eignatjóni í lágmarki. Lands- menn eru dýrkeyptri reynslu ríkari og skynja væntanlega betur en áðtir mögulegar afleiðingar þess að sinu- eldur verði laus við hhðstæðar að- stæður og þarna sköpuðust. Bæjarstjórn Borgarbyggðar þakkar öllum þeim sem komu að slökkvistarfi á Mýrum fýrir ósér- hlífni og ómetanlega ffamgöngu. Frost og rok höföu slœm áhrif á ýmsar vatnsckelur og stútana á haugsugunum því vatnið náði oft að frjósa þegar frost herti á laugardag. Tankbtll var því fenginn á staðinn með heitt vatn og dalumar voru þýddar jafnharðan. Tóm tjöm eftir að bœndur höjðu dœlt úr henni öllu vatni. Klappað, sprautað, farið ogjyllt tankinn og síðan haldið áfram án afláts. Eldsmaturinn var gríðarmikill mda beitarálag víða lítið á Mýrunum í dag. nmtudaginn og hefta útbreiðslu eldsins sem þá var jnn eftir mátti sjá að eldurinn hafði slokknað við Ttvíreett gildi sitt. Þama við þjóðveginn hófstþetta allt. Greinilega mátti já hvar eldsupptökin voru. Þetta gœti eins verið gömul mynd af Kröflugosi, en tekin á Mýrum á fóstudagskvöldið síðastliðið. Ljósm. Eva Svmarliðadóttir. Sviðin jörð, lyng og mosi í sambland við sinu. Talið er að sumar gróðurtegutidir verði mörg ár að ná sér á strik eftir eld- Þessi mynd er tekin áfóstudag á sama stað og Unnsteinn í Laxárholti dreifði mykjumii daginn áður. Eldurinn náði ekki í gegnum mykjuröndina. A þessari mynd sem tekin var á fimmtudag við bœinn Voga sést hversu gríðarlega þéttur og dökkur reykurinn var þegar eldurinn óðyfir land á 4-6 metra hraða á sekúndu. Eld- tungumar náðu þá 3-4 metra upp í loftið. I

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.