Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Side 14

Skessuhorn - 05.04.2006, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 Alltaf jafin gaman að vera tíl Rætt við Jón rakara og Brimrúnu Vilbergs Það má með sanni segja að þau Jón Hjartarson og Brimrún Vil- bergs Vilbergsdóttir séu lífsglöð og fótafim hjón með eindæmum. Þessi síkátu og orkumiklu hjón hafa ferðast vítt um landið, jafnt gangandi sem á hestbaki og núna dansa þau niður úr hverjum skón- um á fætur öðrum þar sem þau mæta á allar þær danssamkomuna sem þau mögulega finna. Þau tóku vel á móti blaðamanni Skessuhorns og sögðu kát í bragði, en þó með hógværð, frá áhugamálum sínum, skoðtmum og því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur í gegnum tíðina. Var logandi hræddur Jón er fæddur árið 1934 og upp- alinn til 12 ára aldurs á bænum Stóru-Þúfu í Miklaholtshreppi en þá flytur fjölskyldan á Akranes. Jón segir fyrstu upplifanir sínar eftir að hann flutti á Akranes hafi verið góðar. „Eg var logandi hræddur lítill sveitastrákur að koma í þetta kraðak í bænum en mér var alltaf tekið vel og var aldrei tekinn fyrir, eins og það var kallað, frekar en nokkur annar krakki; allir voru vinir. Þessar fyrstu minningar hafa líklega mest með það að segja að mér hefur alla tíð síðan þá liðið vel á Akranesi. Brimrún er fædd árið 1947 á Patreksfirði, elst þar upp en fer snemma á unglingsárum að heim- an. Hún bjó um tíma í Borgarnesi og svo í Reykjavík en uppúr 1975 flytur hún á Akranes með börnin sín 2 þar sem hún fékk vinnu sem sjúkraliði við Sjúkrahús Akraness. Tók strax eftir henni „Við hittumst á þorrablóti í Rein árið 1974 þar sem Jón var dyra- vörður,“ segir Brimrún. Aðspurður um hvort það hafi verið læti í henni, svarar Jón með sposkum svip, „já, það var þess vegna sem ég tók eftir henni.“ Þau hlæja bæði hástöfum. Þau voru gefin saman þann 17. nóvember árið 1979 og ári seinna eignast þau Vilberg Hafstein. Það sama ár og þau giftu sig festa þau kaup á húsinu að Kirkjubraut 30 og setur Jón upp rakarastofu í kjallaranum. „Eg fór í læri þegar ég var 15 ára og hef unnið sem rak- ari síðan, í nærri 60 ár. Þetta starf er mjög gefandi, ég hitti mikið af fólki, kynnist mörgum og í hrein- skilni sagt hef í aldrei farið leiður til vinnu og það tel ég eitt það dýr- mætasta við starfið mitt.“ Jón seg- ist ekki vita hvað verði um starfs- grein hans en telur að óhjákvæmi- lega muni form starfsins breytast þó það mtmi nú ekki hverfa alveg af sjónarsviðinu, allavega ekki í bráð. Áhugamálin gefa lífinu gildi Þau hjónakorn sitja ekki auðum höndum. Bæði eru þau í fullri vinnu ásamt því að sinna áhuga- málum sínum; dansi og ferðalög- um, samviskusamlega. Undanfarin ár hafa þau ferðast mikið innan- lands. „A sumrin reynum við að ferðast sem mest með tjaldvagn- inn, að hrjóta í fersku lofri er mik- ið betra," útskýrir Brimrún og hlær dátt. „Aldurinn er ekki það sem skipt- ir máli, það er alltaf jafn gaman að vera til, jafnt í dag sem fyrir 10 eða 50 árum,“ segja þau og Jón bætir við; „það eru áhugamálin sem gefa lífinu gildi, fólk þarf að fara í ferðalög, vera í einhverjum félags- skap eða gera eitthvað skemmtilegt svo lífið verði ekki dauflegt,11 út- skýrir hann: „Það er ekki nóg að sjá bara húshornið heima og hvort annað.“ Með hestabakteríuna Jón segist alla tíð hafa verið í kringum hesta. „Eg ólst upp við hesta í sveitinni, faðir minn var mikill hestamaður en ég var bara svona áhugamaður. Fyrstu hest- arnir sem ég var með á Akranesi voru í útikofa á bakvið húsið á Vesturgötu 109 sem ég og félagi minn reistum." Eftir 1979 tekur Jón sér ffí frá hestunum á meðan þau hjónin voru að koma xmdir sig fótunum. Hestabakterían blússaði þó fljótt upp aftur og árið 1988 festi hann kaup á nokkrum klárum norðan úr Skagafirði og húsi í hesthúsahverfinu Æðarodda og kemur hestvmum þar fyrir. „Þetta var aldrei mitt hobby, það eru dans og skautar. En ég sagði honum að ég skildi keyra á eftir með kaffi, skeifur og áhöld þegar hann væri í útreiðum. Eg þorði líka að moka og kemba, en einn daginn fór ég á bak og fór ekki af baki aftur. Þetta tekur smá tíma að lærast, það tók mig um 3 ár að festast í hnakknum eða hreinlega læra hvernig maður Alltafkát og hress. Hér erujón og Brimrún í stofunni heima. Hér eru Jón ásamt félaga sínum honum Prins. Þeir vinimir hafa átt góðar stundir saman. Hér eru þeir áferðalagi um Hafnarskóginn og hafa lítiðfyrirþví að stilla sér uppfyrir Ijósmyndarann Brimrúnu. situr þar kyrr. Mér fannst þetta al- veg rosalega skemmtilegur tími meðan við höfðum hestana,“ út- skýrir Brimrún. A dansleik með Kátufólki, í síðkjól ogsmóking, en ekki hvað! Með á myndinni er Anna Magnúsdóttir, félagi í hópnum. Fyrsta sinn útfyrir landssteinana Jón segist ekkert hafa dansað áður en þau kynntust. „Það tók mig 13 ár að draga hann í dans,“ segir Brimrún og Jón skýtur inní: „Eg er nú alltaf þægur við hana og bæði feiminn og hræddur." Þau skella bæði uppúr. „Það hefur haldið í mér lífinu, lífsgleði hennar og kátína,“ bætir Jón við. „Við byrjuðum á námskeiði í gömlu- dönsunum árið 1988. Jón var með alls konar mótbárur til að byrja með en efrir fyrsta sporið hefur hann ekki stoppað," útskýrir Brim- rún og bætir við: „Við höfum verið félagar í félagsskap sem heitir Kátt fólk síðan 2000. Þessi félagsskapur var stofnaður árið 1949 og snýst um fjögur böll á ári þar sem síð- kjóll og smóking eru skilduklæðn- aður. Þetta er alfarið vín- og reyk- laus skemmtun og svo er prógram frá klukkan 8 og fram á nótt.“ „Þetta finnst mér skemmtilegur félagsskapur, þetta er alveg rosa- lega gaman. Þarna snýst allt um að dansa og skemmta sér, ég hef hreinlega ekki misst af balli í fleiri ár,“ segir Jón. Það er vert að nefna að í nóvember ætla þau hjónin að fara í skemmtisiglingu um Karab- íska hafið í 2 vikur þar sem dansað verður allan daginn. „Hvorugt okkar hefur farið útfyrir lands- steinana og þykir oklnir það nú ekki tiltökumál, við höfum bara ferðast þeim mun meira innan- lands,“ segja þau. Skemmta sér mest og best Þeir sem þekkja til þeirra hjóna vita að þau hafa alltaf mætt á flest- ar skemmtanirnar, skemmt sér

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.